Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Calin dæmdur sekur fyrir manndráp af gáleysi – Ekki fallist á rök um neyðarvörn

Dumitru Calin og Unnsteinn Örn Elvarsson, verjandi hans.
Dumitru Calin og Unn­steinn Örn Elvars­son, verj­andi hans.

Héraðs­dómur Reykjaness sakfelldi nýverið hinn rúmenska Dumitru Calin, sem er á þrítugsaldri, fyrir manndráp af gáleysi í Vindakór í Kópavogi á síðasta ári en þar lést Daníel Eiríksson eftir að hafa dregist með bíl Calins og fallið í götuna. Dómurinn féllst ekki á þau rök að um neyðar­vörn hafi verið að ræða.

Sjá einnig: EINKAVIÐTAL: Eiríkur á Omega grætur sonar­missi: „Það er svo hræðilega sárt að missa Daníel“

Calin játaði verknaðinn sem honum var gefið að sök í ákærunni en taldi hann refsilausan. Sagði hann fyrir dómi að hann hefði hitt Daníel til að selja honum fíkniefni. Hvorugur hafi þó vitað hvern þeir væru að hitta en að þeir hefðu átt í miklum deilum fyrir atvikið.

Sagðist hann hafa orðið afar skelkaður vegna fyrri samskipta þeirra Daníels og að þegar Daníel hafi reynt að komast inn í bíl hans hafi hann verið æstur og með hótanir og því hafi hann neyðst til að keyra í burtu.

Tók Héraðs­dómur fram að Calin væri einn til frásagnar um málsatvik en ekki væri hægt að draga í efa að hann hefði orðið hræddur við að sjá Daníel og staðið ógn af honum. Hann hefði þó átt að vita að með því að aka af stað á malbiki með Daníel hangandi á bílnum, skapaði stórkost­lega hættu fyrir Daníel.

Þá er einnig bent á það að atvikið átti sér stað að morgni til fyrir utan fjölbýlishús og því hefði Calin getað gert vart við sig ef Daníel hefði ráðist á hann. Taldi Héraðs­dómur geta fullyrt það að Calin hefði getað komið sér í burtu með mildari hætti og að viðbrögð hans hefðu verið harkalegri en tilefni gaf til og því gæti ekki verið um neyðar­vörn að ræða.

Var Calin dæmdur sekur fyrir nokkur önnur brot, þar á meðal fjársvik, þjófnað á símum og akstur undir áhrifum fíkniefna. Hlaut hann þriggja og hálfs árs fangelsisdóm og gert að greiða foreldrum Daníels samtals þrjár milljónir króna í miska­bætur, 1,1 milljón króna í útfarar­kostnað og 700 þúsund í máls­kostnað. Þá þarf hann einnig að greiða verjanda sínum 5.100.000 krónur í málsvarnar­laun og annan sakar­kostnað 2.610.235 krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá