Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Einstakur viðburður á Vestfjörðum: Fjórir af fimm voru vanhæfir

Sveitar­stjórn Tálkna­fjarðar­hrepps afgreiddi nýverið hugmyndir sínar um sérreglur um úthlutun byggða­kvóta sveitar­félagsins.

Kemur fram á vef bb.is að sá einstæði atburður hafi gerst að fjórir af fimm sveitar­stjórnar­mönnum voru vanhæfir til þess að ræða og einnig afgreiða málið; viku af fundinum. Um var að ræða Lilju Magnúsdóttur, Jenný Láru Magna­dóttur, Guðlaug Jónsson og Jón Inga Jónsson.

Því var svo að einungis einn sveitar­stjórnar­maður sat eftir, Jóhann Örn Hreiðarsson vara­oddviti; tveir varamenn, Magnús Óskar Hálfdánsson og Jónas Snæbjörnsson, tóku sæti á fundinum, en tveir aðrir varamenn þóttu einnig vanhæfir; voru ekki kallaðir til.

Fimmti vara­maðurinn var fjar­verandi og komst því ekki til fundarins. Og voru því aðeins þrír fulltrúar á fundinum undir þesum dagskrárlið.

Þessir þrír urðu sammála um afgreiðslu málsins; tókst því að afgreiða það.

Niður­staðan sveitar­stjórnar varð alveg sú sama og í fyrra; stjórnin vill að byggða­kvótanum verði úthlutað til báta sem skráðir eru í sveitar­félaginu, og helmingur kvótans skiptist jafnt milli þeirra og hinn helmingurinn skiptist samkvæmt lönduðuð afla hvers báts á síðasta fisk­veiðiári. Vill sveitar­stjórnin að aflanum verði landað í Tálkna­fjarðar­höfn, en að vinnslu­skylda verði afnumin enda engin fisk­vinnsla í sveitar­félaginu, og heimilt verði að selja aflann á markaði.

Kemur einnig fram að á síðasta fisk­veiðiári hafnaði ráðuneytið kröfunni um afnám vinnslu­skyldunnar; vísaði til þess að vinnsla væri í Vestur Barðarstrandarsýslu – svo sem á Patreks­firði, og urðu bátar frá Tálkna­firði sem fengu byggða­kvóta að gera samning við vinnslu á svæðinu og landa aflanum til vinnslu þar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp