Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Erla Sigríður harmar fréttaflutning síðustu daga: „Hvers konar ofbeldisfull hegðun er aldrei liðin“

Rúv greindi frá því í dag að nemandi Flens­borgarskóla sem varð fyrir alvarlegri líkams­árás er fimm samnemendur réðust á hann fyrir utan Hagkaup, segi að skólayfirvöldi bregðist ekkert við málinu og að hann treysti sér ekki til að mæta í skólann. Nemenda­félag Flens­borgarskóla segja skóla­stjórnendur ekki bregðast við einelti og alvarlegum líkams­árásum nemenda í skólanum á hendur samnemenda. Skóla­meistari Flens­borgar, Erla Sigríður Ragnars­dóttir, segir í yfir­lýsingu rétt í þessu að skólinn líði ekkert ofbeldi og að frétta­flutningur af málinu sé rangur.

Samkvæmt frétt Rúv sendi stjórn nemenda­félags Flens­borgar ráðuneytinu erindi eftir að ljóst var að Erla Sigríður Ragnars­dóttir, settur skóla­meistari skólans, hefði hlotið skipun í embættið, og mótmæltu skipuninni. Sagði stjórn nemenda­félagsins ekki tekið á ofbeldis- og eineltis­málum í skólanum. Margir nemendur mættu ekki í skólann í gær í mótmæla­skyni. Töldu nemendur sem Rúv ræddi við að um 70-80 nemendur hefðu ekki mætt. Þá funduðu nokkrir foreldrar um ástandið og hyggjast boða fleiri foreldra til fundar. Rúv ræddi við Unni Elínu Sigursteins­dóttur sem sögð er vera í stjórn nemenda­félagsins í fréttinni. „Ofbeldi er bara leyft að viðgangast innan skólans og að ekkert sé gert í málinu fyrr en þau eru opinberuð.

Þá ræðir Rúv einnig við annan drengjanna sem lenti í líkams­árásinni en hann segist enga hjálpa hafa fengið frá skóla­yfirvöldum.

Erla Sigríður Ragnars­dóttir, skóla­meistari Flens­borgar sendi frá sér yfir­lýsingu rétt í þessu á heimasíðu skólans. Athygli vekur að samkvæmt yfir­lýsingunni er frétt Rúv alröng, segir hún meðal annars að ályktun nemenda skólans varðandi þetta mál og önnur innan skólans og fjallað hefur verið um í fjöl­miðlum að undan­förnu, hafi aldrei borist yfir­völdum skólans. Stað­festir oddviti nemenda­félagsins að hún komi ekki frá núverandi stjórn.

Hér er yfir­lýsingin í heild sinni:

Flens­borgar­skólinn í Hafnar­firði líður ekki ofbeldi af neinu tagi

Vegna umfjöllunar í fjöl­miðlum um málefni nemenda skólans og ályktun þess efnis er rétt að eftir­farandi komi fram.

Ályktun sú sem fjöl­miðlar hafa fjallað um undan­farna daga og varðar málefni nemenda hefur hvorki borist skóla­meistara né stjórn skólans og því er erfitt að bregðast við efni hennar. Oddviti nemenda­félagsins hefur staðfest að hún komi ekki frá núverandi stjórn. 

Skóla­meistara er óheimilt að tjá sig um viðkvæm mál einstakra nemenda. Stjórn skólans fylgir aðgerða­áætlun um ofbeldismál og mikil áhersla er lögð á fagleg vinnu­brögð. Í slíkum tilvikum eru mál unnin í samvinnu við fagfólk bæði innan og utan skólans. Úrlausn mála af þessum toga er viðkvæmt ferli. Þau snerta gjarnan marga nemendur, eru flókin viðfangs og verða ekki leyst á vettvangi fjölmiðla.

Brugðist hefur verið við af festu vegna þess ofbeldis­máls sem nú er til umfjöllunar í fjöl­miðlum meðal annars með brott­vísunum úr skóla til lengri og skemmri tíma og var það gert strax í kjölfar atviksins. Öllum hlut­aðeigandi aðilum, nemendum og fjöl­skyldum þeirra, hefur verið gerð grein fyrir því að hvers konar ofbeldis­full hegðun er aldrei liðin, hvorki innan skólans né utan og þeim boðinn stuðningur, hvort sem það er í tengslum við námið eða líðan.

Vinna við úrlausn þessa máls sem um ræðir hófst strax um leið og skóla­yfirvöld fengu stað­festar upplýsingar um málsatvik enda var atvikið utan veggja Flens­borgarskóla. Atburðurinn átti sér stað í Garðabæ, lögregla var kölluð til og vinnur að rannsókn málsins. Stjórn­endur Flens­borgar­skólans hafa ekki fengið upplýsingar frá lögreglu um hvernig rannsókn málsins miðar en málið er einnig til rann­sóknar hjá Barna­verndar­nefnd Hafnar­fjarðar. Ítreka ber að skóla­yfirvöld hafa brugðist við málinu að fullu leyti í samræmi við þann ramma sem þeim er sniðinn.

Hvað varðar félagslíf nemenda þá hafa nemendur í Flens­borgar­skólanum þurft að sætta sig við sömu takmarkanir og nemendur annarra skóla. Hvorki nemendum né skóla­stjórnendum hefur þótt það auðvelt. Þegar samkomu­takmörkunum var aflétt í febrúar var róið að því öllum árum að haldin yrði árshátíð nemenda og að leik­sýning leik­félagsins nú í apríl yrði að veruleika. Það var mikið gleðiefni að hvort tveggja skyldi takast.  

Varðandi umræðu um óánægju innan Morfís liðs Flens­borgarskóla þá ber að taka fram að foreldrar óskuðu eftir því að skóla­stjórnendur tækju til baka heimild Morfís liðsins til þess að æfa eftirlits­laust á nóttunni í skóla­byggingunni. Stjórn skólans taldi rétt á sínum tíma að bregðast við þessum óskum foreldra.

Skólinn harmar frétta­flutning af málefnum nemenda skólans síðustu daga og þá neikvæðu mynd sem dregin hefur verið upp af skóla­starfinu almennt. Stjórn skólans ber virðingu fyrir skoðunum nemenda og leggur áherslu á að auka samtal á milli nemenda og skóla­yfirvalda, tryggja sátt og öflugt skóla­starf. 

Fyrir hönd Flens­borgar­skólans,
Erla Sigríður Ragnars­dóttir, skóla­meistari

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur