Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Bragi Páll skaut þéttingsfast á Bjarna á Austurvelli: „Konungur þjófanna væri heiðarlegri titill“

Bragi Páll Sigurðarson
Bragi Páll Sig­urð­ar­son Mynd: Mannlíf

Margmenni safnaðist saman til að mótmæla sölu Íslands­banka, á Austur­velli í dag. Slagorð á borð við Bjarna burt! og spillinguna burt! ómaði um Austur­völl á milli ræða og skemmtiatriða.

Brúð­urnar skemmtu mót­mæl­end­unum

Ræðumenn fimmtu mótmæla­haldanna sem Jæja hópurinn boðar voru þau Drífa Snædal, forseti Alþýðu­sambands Íslands, Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata og rithöfundurinn Bragi Páll Sigurðarson en eins flutti dúettinn Down & Out lagið Sægreifi og Einar Már Guðmundsson, skáld og rithöfundur las ljóð undir gítarleik Guðmundar Péturs­sonar. Þá stigu alþingis­brúðurnar á sviðið og gerðu óspart grín að ráða­mönnum.

Guð­mundur Pét­urs­son og Einar Már Mannlíf Drífa Snædal Ljósmynd: Mannlíf
Guð­mundur Pét­urs­son og Einar Már Mannlíf Drífa Snædal Ljósmynd: Mannlíf
Björn Leví Gunn­ars­son

Allar ræðurnar þóttu góðar en af hinum ólöstuðum bar ræða Braga Páls af að margra mati. Fór hann þungum orðum um Bjarna Benediktsson og Sjálfstæðis­flokkinn. Megin­þráðurinn í ræðu hans var sú stað­hæfing að alþingis­menn væru ekki ómissandi fólk. „En sumir þingmenn upplifa sig ómissandi. Því hefur jafnvel verið fleygt fram að ef allir ætluðu bara að segja af sér um leið og þeir gerðu eitthvað rangt yrði enginn eftir til þess að stjórna landinu. Ég veit ekki með ykkur en það hljómar eins og mesta bull sem ég hef heyrt. Eins og ef allir sem eru teknir við akstur undir áhrifum misstu prófið þá yrðu engir bílar á götunni,“ sagði Bragi Páll meðal annars.

Bragi Páll Sig­urð­ar­son

Þá fór hann yfir rök Bjarna Benedikts­sonar fyrir því að hann segi ekki af sér og skaut þar fast á fjármála­ráðherrann. „Rök Bjarna fyrir því að hann þurfi ekki að segja af sér sem kjörinn alþingis­maður eru sem sagt þau að hann hafi verið kjörinn sem alþingis­maður. Ég var ráðinn, þess vegna er ekki hægt að reka mig. Kirkju­garðar heimsins geyma ómissandi fólk. En Bjarni Benediktsson er ekki ómissandi. Þó hann segði af sér held ég að landið myndi pluma sig bara alveg ágætlega. Hann ætti ekki einu sinni að kalla sig fjármála­ráðherra. Konungur þjófanna væri heiðarlegri titill.“

Bragi Páll skaut einnig á Katrínu Jakobs­dóttur og uppskar fagnaðar­læti frá mótmælendum: „Katrín Jakobs­dóttir er ekki ómissandi. Eitt sinn taldi ég mig vita hvað hún stæði fyrir, en það var þá. Það er nefnilega hægt að vinna jafn mikinn skaða með því að gera illt og að gera ekkert og leyfa því að viðgangast.“

Hér má lesa ræðu Braga Páls í heild sinni:

Góðir gestir.

Kirkju­garðar heimsins geyma ómissandi fólk. Svo sungu KK og Maggi Eiríks eitt sinn. Ómissandi fólk.

Það mætti þá kannski benda íslenskum stjórn­málamönnum á þá staðreynd að þeir eru ekki ómissandi. Samt segja þeir aldrei af sér. Virðing fyrir Alþingi hefur verið í sögulegu lágmarki síðustu 14 ár. Þingmenn þreytast ekki á að segja að reisa þurfi við virðingu þingsins. Á sama tíma neita þeir að stíga frá þegar þeir eru gripnir við að vanvirða þingið með spillingu og hreinum og klárum asnaskap. 

En sumir þingmenn upplifa sig ómissandi. Því hefur jafnvel verið fleygt fram að ef allir ætluðu bara að segja af sér um leið og þeir gerðu eitthvað rangt yrði enginn eftir til þess að stjórna landinu. Ég veit ekki með ykkur en það hljómar eins og mesta bull sem ég hef heyrt. Eins og ef allir sem eru teknir við akstur undir áhrifum misstu prófið þá yrðu engir bílar á götunni. 

Stenst það einhverja skoðun að einungis akkúrat 63 manneskjur ráði við það gríðar­lega flókna verk að vera alþingis­fólk? Nú hefur Bjarni Benediktsson ítrekað verið gripinn við afsagnar­verð athæfi sem alþingis­maður. Reyndar er nánast allt sem hann gerir afsagnarsök. Hann getur ekki farið fram úr rúminu án þess að selja ættmennum eignir okkar á útsölu­prís, eiga alveg óvart stafla af peningum falda í skúffum á aflands­eyjum eða skeina sér á skýrslum um sitt eigið vanhæfi. 

Þrátt fyrir það vill hann meina að hann sé ómissandi. Að ef bara nógu margir kjósi hann þá sé það fyrirgefning syndanna. Að kjósendur Sjálfstæðis­flokksins sjálf­krafa þvoi hendur hans af öllu því misjafna sem hann hefur gert. 

Samkvæmt þessari speki þarf aldrei neinn embættis­maður að segja af sér, sama hvað. Þú bara lætur greipar sópa, traðkar á þínum minnstu bræðrum og systrum, töfrar burtu óhentugar lýðræðislegar stjórnar­skrár-kosningar og óheppilegar skýrslur og lætur svo stígvélasleikjur og trénaða klapp­stýrur kjósa þig til áfram­haldandi starfa. 

Rök Bjarna fyrir því að hann þurfi ekki að segja af sér sem kjörinn alþingis­maður eru sem sagt þau að hann hafi verið kjörinn sem alþingis­maður. Ég var ráðinn, þess vegna er ekki hægt að reka mig.

Kirkju­garðar heimsins geyma ómissandi fólk.

En Bjarni Benediktsson er ekki ómissandi. Þó hann segði af sér held ég að landið myndi pluma sig bara alveg ágætlega. Hann ætti ekki einu sinni að kalla sig fjármála­ráðherra. Konungur þjófanna væri heiðarlegri titill. 

Pabbi hans er ekki er ekki ómissandi fjár­festir. Hann er bara einhver eldri borgari sem var heppinn að fæðast inn í eina voldugustu ætt landsins. Ræður ekki við sig að hvítþvo dæmda barnananíðinga, á meira af peningum en hann veit hvað hann á að gera við svo hann ræður ekki heldur við sig að kaupa hlut í banka af syni sínum. 

Sjálfstæðis­flokkurinn er ekki ómissandi. Sauma­klúbbur valda­sjúkra auðmanna og varð­hundanna þeirra. Hvernig getur þannig hópur verið gagnlegur þjóðinni? Sigurður Ingi er ekki ómissandi. Hann er rasískur dýra­læknir með flagara­klút og þumal­hring sem slysaðist á þing. 

Katrín Jakobs­dóttir er ekki ómissandi. Eitt sinn taldi ég mig vita hvað hún stæði fyrir, en það var þá. Það er nefnilega hægt að vinna jafn mikinn skaða með því að gera illt og að gera ekkert og leyfa því að viðgangast. 

Nú höfum við ítrekað, sem þjóð, lent í því að stjórnmála­fólkið okkar siglir í strand og neitar að taka ábyrgð. Ég held að hluti vandans sé sá að sjálfs­mynd þessa fólks er svo rígbundin því að þau séu stjórnmála­fólk. Geta ekki gert annað. Verða að halda í einhvern snefil af völdum á meðan slíkt er í boði. 

Forveri Bjarna, Davíð Oddsson fór af þingi inn á Seðla­banka og þaðan upp í Mogga með froðuna í munn­vikunum og rauð­sprungin augun límd við nýjustu samsæris­kenningar. Þegar fólk hefur haldið um valda­taumana svona lengi hljómar það að sleppa af þeim takinu eins og martröð. Völd eru nefnilega ávana­bindandi. 

Hugsið ykkur alla niður­læginguna sem Bjarni Ben hefur gengið í gegnum til þess eins að þurfa ekki að finna sér eitthvað annað að gera. Hann er sundur­barinn og brókaður með bremsu­farið upp á hnakka og berst samt um eins og tveggja ára sonur minn þegar skipta þarf um bleyju á honum. Er til sorglegri persóna íslenskri stjórnmála­sögu heldur en Bjarni Benediktsson. Drengurinn sem fæddist með munninn svoleiðis stapp­fullan af heilu spari­stelli silfur­hnífapara en getur samt ekki gert neitt rétt. 

En af hverju segir Bjarni ekki sagt af sér? Af því hann er ekki búinn. Hefur ekki lokið ætlunar­verki sínu. Áætlun hans er að smíða samfélag eftir sinni eitruðu hugmynda­fræði. Samfélag þar sem tvær þjóðir búa í einu landi undir einum fána. 

Önnur er lágtekju­þjóð. Fólkið sem þarf að bíða á biðlistum eftir því að komast á spítala sem eru fjár­sveltir og börnin þeirra sækja skóla sem eru undir­fjár­magnaðir og þarna vinna læknar, hjúkrunar­fræðingar og kennarar sem fara í rað-börnát á of lágum launum. Þetta er þjóðin sem lifir frá mánaða­mótum til mánaða­móta. Getur ekki leyft sér. Skrimtir. Launa­þrælar elítunnar hans Bjarna.

Hin þjóðin er hátekju­þjóð. Sú sem Bjarni starfar fyrir. Hún kaupir sig fram fyrir í röðinni. Kaupir sér aðgang að betri heilbrigðis­þjónustu, betri menntun fyrir börnin sín, betri mat, stærri húsum, betra lífi. Kaupir lúxus­bifreiðir og leggur þeim í fatlaðra­stæði og upp á gangstéttir. Kaupir ríkis­eignir, okkar eigur, í lokuðu útboði á undir­verði og græðir á því milljarða. 

Þetta gerir hátekju­þjóðin með aðstoð Bjarna Ben. Það er ævistarfið hans. Að tryggja að hinir auðugu og valda­miklu haldi sínum hlut og hagnist á kostnað okkar hinna. Þetta er ástæðan fyrir því að hann getur ekki sagt af sér. Ekki af því hann er ómissandi, nei, það er vegna þess að hann er konungur þjófanna. 

Takk fyrir mig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur