Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Matthildur stefnir hátt í fiðluleik: „Hugsaði oft til Tenerife þegar ég óð slabbið í vetur“

Matthildur Trausta­dóttir er 17 ára stúlka, sem myndi þiggja fleiri klukku­tíma í sólar­hringnum. Hún stundar af kappi nám í tveimur mennta­skólum, starfar í nemenda­félagi, gerir stuttmyndir, málar steina, leikur í uppsetningum leik­félagsins og stundar félagslíf af krafti. Þar að auki æfir hún að lágmarki fjóra tíma á dag á hljóð­færið sitt, en hún þykir efnilegur fiðlu­leikari. Á morgun heldur Matthildur tónleika í Dómkirkjunni m.a. til að safna fyrir kostnaði af þátttöku í eftir­sóttu og stífu tónlistar­námskeiði í Banda­ríkjunum, í sumar.

Ítalska kennitalan

Fyrsta ár ævi sinnar bjó Matthildur á Ítalíu. Foreldrar hennar störfuðu þar sem leið­sögumenn og fæddist Matthildur á ítölsku sjúkra­húsi í strand­bænum Rimini við strendur Adríahafs. Í farte­skinu hefur Matthildur því ítalska kennitölu. Getur þú sagt frá einhverjum minningum frá Ítalíu?

„Ég get bara sagt frá því sem foreldrar mínir hafa sagt mér, en mér er sagt að fyrstu skrefin hafi ég stigið á ströndinni og að ég hafi fengið að smakka fyrsta ísinn á eins árs afmæli mínu og þótt hann verulega góður. Síðan þá hef ég elskað ís. Þá hafa þau sagt mér að það hafi verið mikið stress að finna nafn á mig, þar sem þau vissu ekki fyrirfram að það ætti að gefa mér nafn strax við fæðingu, öðruvísi gætu ég ekki útskrifast af spítalanum. Um leið og ég kom í heiminn spurði læknirinn hvaða nafn ætti að gefa mér. Sögðust þau vera hrifin af nafninu Ronja en væru ekki alveg búin að ákveða það. Það nafn vildi læknirinn ekki taka í mál og útskýrði fyrir þeim að Ronja væri ítalskt orð yfir sjúkdóm sem legðist á hunda. Hann heimtaði því að ég fengi tignarlegra nafn og stakk upp á Viktoría. Mamma og pabbi voru ekki alveg til í það og lögðust yfir önnur nöfn og komust að endingu að þeirri niður­stöðu að ég ætti að heita Matthildur.“

Eyjan fagra

Frá Ítalíu, með stuttri viðkomu á Íslandi, lá leið fjöl­skyldunnar til Kanarí­eyja. Þar bjó Matthildur í 13 ár, þar af 12 ár á eyjunni fögru, Tenerife. Hvernig fannst þér að alast upp á Tenerife?

„Mér fannst það mjög gaman og hefði ekki viljað skipta því út fyrir neitt annað. Það var gott að vakna nánast alla daga í sól og blíðu, þó að ég hafi ekki alltaf getað notið góða veðursins á ströndinni. Ég flutti til Tenerife þegar ég var fjögurra ára og var fljót að læra spænsku, þar sem að ég fór strax í spænskan skóla. Mér finnst ómetanlegt að hafa spænsku sem mitt annað tungumál og ég er líka þakklát mömmu og pabba fyrir að hafa passað upp á að ég myndi ekki gleyma íslensk­unni. Ég eignaðist fullt af góðum vinum til framtíðar og á ég frábærar minningar með þeim. Ég sakna mest útihátíð­anna en Kanarí­búar eru mjög duglegir að vera með alls konar hátíðir á hvaða árstíma sem er. Skemmtilegasta hátíðin er klárlega kjöt­kveðju­hátíðin en þá er frí í öllum skólum í heila viku og fólk á öllum aldri klæðist búningum og skemmtir sér á götum úti frá morgni til kvölds.“

Fjölhæf listakona

Í spjalli við Matthildi kemur berlega í ljós að henni er margt til lista lagt. Ung að aldri ákvað hún að vinna fyrir sér með steina­málun og hefur hún árlega unnið sér inn dágóðan vasa­pening með sölu hand­málaðra steina á Borgar­firði eystri og er lundinn þar helsta myndefnið. Í tómstundum hefur hún gert stuttmyndir og sigrað tvær stuttmynda­keppnir, aðra erlendis og hina hér heima. Þar á ofan leiddi hún ræðulið sitt til sigurs í ræðu­keppni grunn­skóla á Spáni. Hvað af þessu er nú skemmtilegast, Matthildur?

„Þegar stórt er spurt! Mér finnst þetta allt mjög skemmtilegt og vildi stundum að ég hefði fleiri klukku­stundir í sólar­hringnum til að sinna áhuga­málum mínum en ég hef líka mjög gaman af því að fara á skíði, hlaupa, synda og fara í fjall­göngur. Ég hef einnig mikinn áhuga á ljós­myndun og fór á skemmtilegt ljósmynda­námskeið á Tenerife. Mér finnst ótrúlega gaman í leiklist og dansi en ég þurfti því miður að leggja ballettskóna á hilluna vegna álags í bæði dans­náminu og fiðlu­náminu. Ég var komin á þann stað að ég varð að velja. Leiklist næ ég samt að stunda og var svo heppin að fá hlutverk í leik­sýningum Kvennó í fyrra og í ár, en því miður varð að fella niður sýningarnar vegna Covid. Vonandi verður sýnt á næsta ári og þá næ ég kannski einni góðri sýningu áður en ég kveð Kvennó.“

Í ár ákvað hún líka að hætta í kórnum vegna anna. En saknar Matthildur dansins og söngsins?

„Já, mjög mikið, sérstak­lega dansins. Nýlega var ég til að mynda að hjálpa til við dans­keppni í Borgar­leikhúsinu, þar sem margir flottir dansarar komu fram, og ég fékk fiðring í magann, því mig langaði svo til þess að dansa. Ég hreinlega elska að dansa en á tímabili langaði mig að leggja dansinn fyrir mig. Hver veit, kannski fer ég aftur að dansa við tækifæri, ef tími leyfir.“

Framtíðaráform

Þegar heims­faraldurinn skall á stóð Matthildur frammi fyrir erfiðri ákvörðun. Þá óskaði fiðlu­kennari í eftir­sóttum tónlistar­menntaskóla í Sviss eftir því að hún kæmi þangað til náms og bauð henni myndar­legan styrk. Þetta var freistandi boð en sjálfa langaði Matthildi hins vegar líka að styrkja ræturnar og fara í íslenskan mennta­skóla. Hvað átti hún að velja? Tilboðið frá Sviss var vissulega freistandi en eftir að hafa leitað ráða hjá Víkingi Heiðari Ólafssyni píanó­leikara og vini hennar Didda fiðlu, var þetta ekki lengur spurning í hennar huga. Hvernig náðu þeir eiginlega að sannfæra þig um að flytja til Íslands?

„Í stuttu máli sagði Víkingur Heiðar mér að njóta þess að vera ung og upplifa félags­lífið á mennta­skólaárunum, fara á sem flest böll og dansa sem allra mest. Því að ég hefði nægan tími til að taka mig alvarlega þegar ég væri komin í stífan tónlistar­háskóla erlendis. Og svo sögðu, bæði Víkingur og Diddi, að ef ég kæmi Ísland væri Guðný Guðmunds­dóttir frábær fiðlu­kennari og að ég yrði ekki svikin ef ég kæmist í nám hjá henni. Ég var svo heppin að Guðný tók að sér að kenna mér og er ég þeim Didda og Víkingi mjög þakklát fyrir frábærar ráðleggingar, þrátt fyrir að böllin hafi verið alltof fá.“

Eftir að hafa búið stærstan hluta ævinnar erlendis liggur beinast við að spyrja Matthildi hvort það hafi verið erfitt að flytja til Íslands eða líkt og túristarnir eru alltaf spurðir: Hvernig líkar þér við Ísland?.

„Mér líkar mjög vel á Íslandi. Auðvitað sakna ég allra vinanna á Tenerife en er heppin að hafa líka eignast nýja og góða vini hér. Þó viðurkenni ég að ég sakna mjög góða veðursins og hugsaði oft til Tenerife þegar ég óð slabbið í myrkrinu á leið í skólann í vetur. En ég elska snjóinn og það mættu vera fleiri fallegir snjódagar.“

Fiðlan er framtíðin

Matthildur stefnir á að verða fiðlu­leikari og í sumar komst hún inn í hinn eftir­sótta sumar­tónlistar­skóla Meadowmount í Banda­ríkjunum, sem er einn kröfu­harðasti þar í landi. Til að geta sótt námið hefur Matthildur ákveðið að efna til fjáröflunar­tónleika í Dómkirkjunni, kl. 18, á morgun, föstudag 6. maí. Á efnisskrá eru mörg meistara­verk tónbókmenntanna.

„Mér datt í hug að halda þessa tónleika, bæði til að loka skóla­árinu og eins til fjár­öflunar fyrir sumar­námið. En ég viðurkenni að ég áttaði mig ekki alveg á því hvað þetta er mikil vinna þar sem ég hef æft stíft undan­farnar vikur meðfram öllu hinu, meðal annars ritgerðar­skrifum, verkefnum og prófum í tveimur mennta­skólum en ég hlakki mikið til tónleik­anna. Ég hlakka til að hitta sem flesta.“

Mannlíf hvetur fólk til að mæta í Dómkirkjuna á morgun klukkan 18 og heyra tónlist þessa unga og efnilega fiðlu­leikara. Jane Ade Sutarjo píanó­leikari leikur með Matthildi í nokkrum verkanna. Það kostar ekkert inn á tónleikana, en fólki er frjálst að láta eitthvað af hendi rakna til styrktar námi Matthildar við Meadowmount-tónlistar­skólann í sumar.

Reikningur: 0331-26-240804

Kennitala: 240804-3440

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur