Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Kommentin krufin – Guðrún ræðst á Eddu Falak: „Hún er náttúrulega vinkona ykkar“

Guðrún Ágústa Ágústsdóttir/Edda Falak
Guðrún Ágústa Ágústs­dóttir/Edda Falak

Guðrún Ágústa Ágústs­dóttir, þerapisti og sátta­miðlari, sakar hlaðvarps­stjórn­andann Eddu Falak um að bjóta á börnum, í færslu sem hún skrifar á Facebook. Færslan er deili­texti með frétt þar sem Edda er sögð njóta lífsins í Róm og vitnað í hana þar sem hún segir í glettni: „Kem aldrei aftur til Íslands.“

„Frábærar fréttir, enda ertu búin að leggja líf margra í rúst með rógburði og lygum,“ skrifar Guðrún Ágústa. Hún segir ennfremur að Edda viti upp á sig sökina, sé óvönduð og hafi ljótt innræti. Hún endar færsluna á eftir­farandi orðum: „Einn daginn verða börnin sem þú hefur brotið á stór… Farðu og komdu aldrei til baka!!!“

Skjáskot af færslu Guðrúnar Ágústu.

Blaða­maður Mannlífs hafði samband við Guðrúnu Ágústu til þess að spyrja hana út í ummælin, einkum og sér í lagi þau sem snúa að brotum gegn börnum.

Fjallað var um Guðrúnu Ágústu fyrr á árinu í tengslum við meint trúnaðar­brot í starfi, þar sem hún nafn­greindi móður barns, sem var skjólstæðingur hennar, í samtali við utan­aðkomandi aðila.

„Spurðu bara Eddu Falak sjálfa, hverjir voru að senda henni skilaboð til dæmis og fá hana til þess að hætta að fjalla um meðal annars mig,“ segir Guðrún Ágústa í samtali við blaðamann.

Ertu að tala um börn þarna?

„Meðal annars.“

Þú segir hérna beint að hún hafi brotið á börnum. Það er auðvitað stórmál.

„Já, auðvitað er það stórmál. En þið hafið nú ekki haft áhuga fyrir því hingað til.“

Aðspurð hvað nákvæmlega hún ætti við með þessari ásökun hélt Guðrún Ágústa áfram á svipuðum nótum. „Hún veit það sjálf. Hún Edda getur bara svarað þessu sjálf. Hringdu bara í hana, hún er náttúru­lega vinkona ykkar. Þið þekkist allar, þetta er eitthvað „crowd“ þarna og þið eruð bara í því að eyði­leggja líf fólks.“

Guðrún Ágústa vildi ekki tjá sig nánar um ásakanir sínar í garð Eddu Falak um brot gegn börnum, þrátt fyrir ítrekaðar spurningar blaða­manns.

Vert er að taka fram að engin tengsl eru milli blaða­manna Mannlífs og Eddu Falak.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur