Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Nýtt „look“ Beyoncé: „Vildi leika sér að tískunni sem aldrei fyrr“

Beyoncé. Mynd/skjáskot. Vogue
Beyoncé. Mynd/skjá­skot. Vogue

Söngdívan og fjöl­listakonan Beyoncé er þekkt fyrir það, meðal annars, að hrista vel upp í internetinu með reglulegu millibili. Síðasta plata söng­konunnar Lemonade sló heldur betur í gegn þegar hún gaf hana út, óvænt, í apríl 2016. Sú plata er talin vera meistara­verk af tónlistar­unnendum, en platan var einnig mjög sjónræn, full af tákn­myndum, pælingum um ást og mann­réttindi. Nú 6 árum síðar er að vænta nýrrar plötu, en Beyoncé tilkynnti formlega sjöundu stúdíó­plötuna sína, sem ber titilinn Renaissance (Endur­reisn). Platan á að koma út þann 29. júlí 2022.

Beyoncé. Mynd/skjá­skot. Vogue
Beyoncé. Mynd/skjá­skot. Vogue

Nýtt „look“ Beyoncé

Í tilefni af nýjustu plötunnar birtist viðtal og myndir af söng­konunni í nýjum stíl í breska Vogue. Ritstjórinn, Edward Enninful, stíleseraði mynda­tökuna þar sem miklar pælingar voru um það að ná fram hinni „nýju“ Beyoncé. Nokkrum mánuðum fyrir mynda­tökuna skiptust Beyoncé og Edward á skila­boðum um útlitið, en þar var rætt um spegil­kúlur, ljósa­kassa, höfuðföt og jafnvel rætt um að fá hest á dans­gólfið, sem þau hafa látið verða af ef marka má forsíðu­mynd Vogue.

Settið átti að vera eitthvað alveg nýtt „look“: „Beyoncé vildi leika sér að tískunni sem aldrei fyrr,“ segir Enninful í ritstjóra­leiðara sínum í Vogue. Settið varð að passa fullkomlega inn í “glittering retro-futurism” sem var þema mynda­tökunnar.

„Mér finnst eins og ég og Beyoncé höfum alist upp saman, því tónlistin hennar var alltaf til staðar,“ segir Piotrek aðal­hönnuður tísku­hússins Area, en hann stóð fyrir heildar­útlitinu. „Það er súrrealískt að hugsa til þess að mörgum árum síðar hefur draumur okkar ræst. Við höfum náð stórkost­legum ljós­myndum af dívunni.“

Beyoncé. Mynd/skjá­skot. Vogue

„Okkur finnst við hafa unnið mikin tísku­sigur með því að hanna, sauma og setja saman kjólinn. Við erum þekkt fyrir glæsi­legan útsaum, en þessi kjóll er virkilega til heiðurs kjóla­saumsins,“ fullyrðir Piotrek sem er annt um að hæfi­leikar hönnunar­teymisins Area tísku­hússins fái sinn sess.

Hún vill upplifa heiminn í ró

Á meðan að þessi vinna fór fram, komst ég ekki hjá því að hugsa um alla þá múra sem söngkonan þarf að setja upp til þess að geta lifað nokkuð eðlilegu lífi, útskýrir blaða­maðurinn. Það er stöðugt áreiti á henni. Það var áhugavert að sjá að þeir virðast ekki hafa haft áhrif á að egó-ið hennar. Heldur þvert á móti. Þeir virðast vera þarna svo hún geti sleppt sér og verið meira hún sjálf.

Beyoncé. Mynd/skjá­skot. Vogue

Beyoncé nefnir að: „Jörðin mín, hjartað, jarð­vegurinn og geðheilsan mín er það sem skiptir mig mestu máli.“ Hún segir að það felist mikil ró og vernd í því að fá að upplifa heiminn með þessi gildi að leiðar­ljósi. Hún vill upplifa heiminn eins rólega og hægt er. Blaða­maður tekur það fram að það hafi sennilega tekið langan tíma  og mikla andlega vinnu til að komast á þennan stað! Hvort sem það er breyting á orkuflæði hennar, eða eitthvað annað þá virðist hún vera á góðum stað, upplifir blaða­maður Vogue. Hún segir að þessi tíma sé sérlega dýrmætur tími í lífi sínu, en hún er 40 ára og segist líða mjög vel sem móður, lista­manni og konu.

Spilaði hittarana sína af nýju plötunni

Beyoncé. Mynd/skjá­skot. Vogue

Beyoncé spurði blaða­manninn hvort hann vildi hlusta á nýju tónlistina hennar? Blaða­maður varð hissa að hún hafi boðið honum að hlusta á tónlistina. Hann segist hafa fundið fyrir náladofa þegar hún bar upp spurninguna og spennan hafi magnast þegar þau gengu að hljóð­verinu hennar og vinnu­stofu. Hún tók upp fartölvuna sína og tengdi hana í samband þar sem við sátum í sófanum. Og í rólegheitum spilaði hún aðal­hittarana sína á væntanlegri plötu.

Samstundis fylltist herbergið af djúpum takti. Svífandi söngur hennar og takturinn í tónlistinni sameinuðust og á sekúndu­broti var ég komin aftur á dans­gólfið. Mig langaði að standa upp og byrja að hreyfa mig. Þetta er tónlist sem fær þig til að standa upp, tónlist sem sýnir okkur inn í ólíka menningar­heima og aðallega menningu svartra í Banda­ríkjunum í fortíð og nútíð. Tónlistin mun sameina fólk á dans­gólfinu, segir blaða­maðurinn hughrifinn. Eins og alltaf þegar það snýr að Beyoncé, þá búa lögin hennar yfir vissum ásetningi og hún hefur ekki vikið frá því á nýjustu plötunni.

Sköpunar­ferlið tók mjög langa tíma, útskýrir Beyoncé, þar sem heims­faraldurinn gaf henni aukinn tíma til að hugsa og endur­skoða hverja einustu ákvörðun.

Endurreisnin

Beyoncé. Mynd/skjá­skot. Vogue

Beyoncé hefur tilkynnt næstu plötu sína, Renaissance, komi út þann 29. júlí næst­komandi. Platan er sjöunda sóló-plata tónlistar­konunnar og sú fyrsta frá 2016 þegar hin mjög svo vinsæla Lemonade kom út.

Tónlistar­konan eyddi nýverið prófíl­myndum sínum á samfélags­miðlum og breytti upplýsingum um sig á Instagram og Twitter þannig að á síðu hennar stendur nú einungis: „act i, RENAISSANCE; 7.29“.

Streymis­veiturnar Spotify, Apple Music, Tidal og Youtube hafa einnig staðfest fréttirnar um plötuna með mynd sem stendur á „Act i, Renaissance“.

Beyoncé. Mynd/skjá­skot. Vogue
Beyoncé. Mynd/skjá­skot. Vogue
Beyoncé. Mynd/skjá­skot. Vogue
Beyoncé. Mynd/skjá­skot. Vogue
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt