Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Kanye kominn úr dvala: „Mig langar að lýsa mig dáinn í ár“

Kanye West
Kanye West

„Þið vitið að ég fór í smá dvala. Ég sagði: Mig langar bara til að lýsa mig dáinn í ár. Enginn á að senda mér skilaboð. Þið vitið, mig langar bara til þess að vera utan þjónustu­svæðis. En Puff er ansi aðgangs­harður.“

Þetta sagði rapparinn Kanye West þegar hann kom fram á BET Awards verðlauna­hátíðinni í gær til þess að afhenda tónlistar­manninum Diddy heiðurs­verðlaun fyrir ævistarf sitt. Þetta kemur fram hjá E-News.

Diddy er eitt af sviðs- og gælu­nöfnum Sean Love Combs, en hann er bandarískur rappari, laga­höfundur, upptöku­stjóri, plötuúfgáfueigandi og frumkvöðull. Hann hefur í gegnum tíðina gengið undir nöfnunum Puff Daddy, P. Diddy, Diddy og Puffy.

Þetta er í fyrsta sinn í marga mánuði sem Kanye kemur opinber­lega fram. Í ræðu sinni talaði hann um það hversu mikil áhrif Diddy hafi haft á líf sitt. Hann skaut líka að athugasemd um hjónaband og skilnað sinn og Kim Kardashian.

„Ég fer til hans til þess að fá ráð enn þann dag í dag,“ sagði Kanye í ræðu sinni. „Hann er mér innblástur í svo ótrúlega mörgum ákvörðunum. Svo mikið af ákvörðunum í lífi mínu. Ákvörðunum mínum um eiginkonu.“ (e. So many of my life choices. My wife choices.)

„Og hérna erum við, takk fyrir það Puff,“ sagði Kanye og virtist þarna gera grín að þeirri stöðu sem uppi hefur verið milli hans og Kim Kardashian. Hún sótti um skilnað í byrjun árs 2021 en hann neitaði að skrifa undir pappírana. Síðastliðið haust fóru Kim og grín­istinn Pete Davidson að stinga saman nefjum og fljótlega fór Kanye að viðhafa niðrandi ummæli um Pete opinber­lega og á samfélags­miðlum, og áreita Kim. Málið vakti heims­athygli og þótti vera dæmi um að jafnvel valda­miklar og ríkar konur á borð við Kim gætu átt erfitt með að sleppa frá áreitni og meiðandi framkomu fyrr­verandi maka. Málið náði ákveðnum toppi eftir að Instagram lokaði reikningi Kanye tíma­bundið vegna haturs­orðræðu, áreitni og meiðandi ummæla. Honum var einnig bannað að koma fram á Grammy-verðlauna­hátíðinni. Fljótlega eftir það hvarf hann af sjónar­sviðinu.

Svona kom Kanye West fram á verð­launa­há­tíð­inni.

Eftir ummæli Kanye í ræðu sinni á BET verðlauna­hátíðinni útskýrði hann að hann hefði ákveðið að koma óvænt fram vegna þess að hann gæti hreinlega ekki sleppt tæki­færinu til að heiðra Diddy og feril hans.

„Hvert einasta okkar í þessu herbergi – ef Puff þarf einhvern tíma á okkur að halda, þá verðum við að stökkva til og mæta á staðinn. Þessi maður hefur gengið í gegnum margt og lifað ýmislegt af, og brotið ýmsar hindranir á bak aftur, svo við gætum staðið hér. Ég veit að það á að minnsta kosti við um mig. Hann braust í gegnum svo margar hindranir á borð við stétta­skiptingu. Smekkur, kúltúr, stíll. Puff, ef ég hef aldrei sagt þér það, þá elska ég þig. Þú ert bróðir minn.“

Mynd frá hátíð­inni.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt