Fyrr í dag á upplýsingafundi almannavarna upplýsti Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra að ríkisstjórn Íslands hafi samþykkt að leggja til að húsnæðisstuðningur við Grindvíkinga verði framlengdur. Sérstakur húsnæðisstuðningur var upphafalega til þriggja mánaða en nú standi til að framlengja hann út veturinn.
Á fundinum greindi Katrín líka frá því að 80 íbúðir verði leigðar til Grindavíkinga en það er leigufélagið Bríet sem kemur að því málið. Meirihluti þeirra verða teknar í notkun fyrir jólin. Sjö íbúðar verða svo leigðar út af leigufélaginu Bjargi eftir áramótin.
Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, sagði á fundinum að stuðningurinn væri mikilvægur fyrir Grindvíkinga.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir