Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Stórhættulegur ofsaakstur: „Forsetaembættið hefur nú þegar rætt við lögreglu um atvikið“

Guðni Th. Jóhannesson, fyrrum forseti Íslands, er alls ekki hrifinn af ananas á pítsur
Guðni Th. Jóhann­es­son, fyrrum for­seti Íslands, er alls ekki hrif­inn af ananas á pít­sur

Fjölmörgum sem voru akandi á Reykja­nesbrautinni á miðvikudag um kaffi­leytið brá ansi hressilega í brún þegar tveir lögreglu­þjónar á tveimur lögreglu­mótorhjólum – hlið við hlið – óku frá Keflavík til Hafnar­fjarðar á ofsahraða, en þeir voru að fylgja forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, sem var að koma frá Færeyjum, til Bessa­staða.

Hraðinn á mótor­hjólunum tveimur og forseta­bílnum var svo mikill að mikil mildi var að ekki færi illa; árekstrar á slíkum hraða – sem var klárlega mjög nálægt 200 kílómetra hraða – eru ekkert gamanmál.

Mannlíf fór á stúfana og leitaði svara hjá embætti forseta Íslands og Lögreglunni. Engin svör var að fá hjá lögreglu, en Una Sighvats­dóttir sérfræðingur hjá embætti forseta Íslands svaraði fyrir­spurn blaða­manns Mannlífs, sem var svohljóðandi:

Í fyrradag varð ég ásamt tugum annarra vitni að allsvakalegum ofsa­akstri tveggja lögreglu­þjóna á mótor­hjóli – hlið við hlið, og fyrir aftan þá á sama hraða, var forseta­bíllinn. Voru viðkomandi að koma frá Reykja­nesbæ/flugstöð og á leið til Bessa­staða eða annað á höfuð­borgar­svæðinu. Aksturinn var með ólíkindum og margir hafa haft samband við okkur vegna þessa hættulega ofsa­aksturs. Hvers vegna var ekið svo glanna­lega og hreinlega með stór­hættulegum hætti? Er þetta hreinlega löglegt að keyra svona af lítilli eða engri ástæðu?

Una Sighvats­dóttir, sérfræðingur hjá forseta­embættinu, greindi frá því að „forseti Íslands kom til Íslands frá Færeyjum á miðvikudag og lenti á Kefla­víkur­flugvelli. Óskað var aðstoðar lögreglu um fylgd til höfuð­borgarinnar, sem forseta­embættið og lögreglan hafa áður átt gott samstarf um.

Í þetta sinn varð þó einhver misskilningur um tilefnið, sem varð til þess að á Reykja­nesbraut var verklagi forgangs­aksturs beitt.“

Og bætti við:

„Lögreglu var þá þegar tilkynnt um að þess væri ekki þörf, forgangs­akstri var hætt og frekari lögreglu­fylgd afþökkuð þegar komið var til Hafnar­fjarðar.

Fátítt er að forseti njóti lögreglu­fylgdar í forgangs­akstri á ferðum sínum innanlands. Við slíkan akstur ber að sýna tillitssemi og viðhafa varúð gagnvart öðrum vegfarendum. Forseta­embættið hefur nú þegar rætt við lögreglu um atvikið til að fyrir­byggja að viðlíka misskilningur endurtaki sig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur