Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Samtök kynlífsverkafólks ósátt við Eddu Falak – „Vændi er ekki kynlíf“

Samsett mynd
Samsett mynd

Samtökin Rauða Regn­hlífin berjast fyrir öryggi og réttindum fólks í kynlífs­vinnu á Íslandi. Samtökin gagnrýna nýjasta hlaðvarps­þátt Eigin Kvenna harðlega og hvetja viðmælendur þáttarins, Brynhildi Björns­dóttur og Evu Dís Þórðar­dóttur, til að kynna sér réttinda­baráttu kynlífs­verkafólks. Samtökin gagnrýna Eigin Konur og stað­hæfingar Brynhildar og Evu Dísar í þættinum.

„Eva Dís og Brynhildur segjast vilja sýna að vændi jafnvel þótt það sé óþvingað, geti haft miklar og slæmar afleiðingar […] „Við verðum að berjast gegn því að normalisera vændi, af því að það er bara ekkert normal við vændi,“ segir Brynhildur og bætir við að 90 prósent þeirra sem hafa verið í vændi upplifi það sem ofbeldi,“

Rauða Regn­hlífin svarar:

„Þær ættu að kynna sér réttinda­baráttu kynlífs­verkafólks. Við viljum útrýma ofbeldi í iðnaði okkar og fá vinnu­réttindi því við erum vinnandi fólk sem á ekki að upplifa ofbeldi í vinnunni. Ég skrifa þetta sem manneskja sem vann í sjálfs­bjargar kynlífs­vinnu sem er algengasta tegund kynlífs­vinnu. Ekki einhverskonar „hamingju­sama hóran“ bull. Við erum fjöl­breyttir einstaklingar sem vilja réttindi og mýtur og skoðanir settar fram sem stað­reyndir breyta því ekki.“

Venjulegar konur- Vændi á Íslandi

Eva Dís er baráttu­kona og leið­beinandi hjá Stíga­mótum. Hún er þolandi vændis og hefur, síðan árið 2016, talað opinskátt um reynslu sína af því og afleiðingarnar sem glímdi við í kjölfarið.

Mynd Skjáskot/Youtube

Brynhildur hefur unnið sem fjölmiðla­kona í tvo áratugi og .er meðhöfundur fræðslu­stuttmyndarinnar Fáðu já (2013). Hún leik­stýrði stuttmyndunum Stattu með þér (2014) og Myndin af mér (2018), en allar þrjár myndirnar vöktu mikla athygli og eru ætlaðar til fræðslu barna og unglinga um kynlíf og kynferðis­ofbeldi. Hún er stofn­félagi í feminíska vefritinu Knúz og hefur verið virk á marg­víslegum vígstöðvum í þágu kven­réttinda og gegn kynferðis­ofbeldi.

Í næstu viku kemur út bókin Venjulegar konur – Vændi á Íslandi sem Brynhildur skrifaði í samvinnu við Evu Dís. Í bókinni er rætt við sex íslenskar konur sem hafa verið í vændi og fagfólk sem vinnur með þolendum vændis.

Vændi er ekki kynlíf

Eins og fyrr segir er Rauða Regn­hlífin hagsmuna­samtök sem berjast fyrir öryggi og réttindum fólks í kynlífs­vinnu á Íslandi. Þau styðja skaða­minnkun og vilja binda enda á fordóma gegn fólki sem selur aðgang að líkama sínum.

Brynhildur segir að vændi sé ekki kynlíf.

„Vændi er ekki kynlíf, og þess vegna er orð eins og kynlífs­sala og kynlífs­vinna, það bara gengur ekki upp í raun og veru sem hugtök. Því þetta er ekki kynlíf, ef við skilgreinum kynlíf sem eitthvað sem tveir einstaklingar njóta saman af virðingu og væntumþykju. Og ef það er ekki kynlíf, hvað er það þá,“ segir Brynhildur.

Rauða regn­hlífin var ekki sammála þessari stað­hæfingu og sagði að vændi væri víst kynlíf.

„Þetta er víst kynlíf. Þessi kona fær ekki að alhæfa um upplifanir þúsundir manns um allan heim og á Íslandi sem selja kynlífs­þjónustu með hennar móralísku skoðunum um hvað kynlíf ætti að vera. Svona ógeð grefur undan réttindum okkar og reynir að stöðva baráttu okkar fyrir virðingu og mann­sæmandi lífi. Einnig er þetta heavy stigmatising og segir samfélaginu okkar að það eigi ekki að hlusta á kynlífs­verkafólk af því einhver annar veit alltaf betur en við um okkar upplifanir og okkar heim. Kynlífs­verkafólk er til og við eigum skilið virðingu og upplyftingu eins og aðrir jaðar­settir hópar. Við erum mjög vonsvikin að heyra þetta. Kynlífs­verkafólk er ekki up for debate. Þetta er brutally óábyrgt. Þessar skoðanir hafa ríkið hér í yfir 20 ár og um leið og við byrjum að tjá okkur um okkar upplifanir loksins, kemur strax valda­mikið fólk og reynir að þagga í okkur.“

Vill lög sem tryggja öryggi kynlífsverkafólks

Renata Sara Arnórs­dóttir, einn af meðlimum í Rauðu Regn­hlífarinnar, deildi upphaf­lega skjáskotinu hér að ofan og merkti Eddu. Hún var í viðtali hjá DV í desember í fyrra þar sem hún ræddi um réttindi kynlífs­verkafólks, starf sitt sem strippari í Berlín, flutningana til Íslands og reynslu sína af OnlyFans.

Í viðtalinu ræddi hún um það sem hún telur megi betur fara í íslenskum lögum þegar kemur að kynlífs­vinnu og -verka­fólki. Afglæpa­væðing sé það sem hún vilji helst sjá á kaupum og sölu allrar kynlífs­þjónustu. Næsta skref væri síðan að setja lög sem tryggja öryggi kynlífs­verkafólks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur