Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Pútín heldur áfram að ögra Vesturveldunum – Mættur til Mariupol

Grey karlinn
Grey karl­inn Mynd: Trausti Hafsteinsson

Vladimir Pútín Rúss­lands­forseti heldur áfram að ögra Vestur­veldunum í óvæntri heimsókn sinni á Krím­skagann. Í gær mætti hann í Mariupol-borg, þar sem ein blóðugustu átök innrásar­stríðsins fóru fram.

Fram kemur á BBC að opinbert myndskeið sýni Pútín keyra um hina herteknu borg og spjalla við heimamenn. Talið er að þetta sé í fyrsta skipti sem forsetinn heimsækir nýlega hertekið svæði í Úkraínu.

Forsetinn er einnig sagður hafa hitt yfirmenn í hernum í Rosto-on-Don, sem er rússnesk borg sem staðsett er austur af Mariupol. Ferðaðist hann til Mariupol í þyrlu en myndband sýnir hann keyra um götur borgarinn ásamt stað­gengli forsætis­ráðherra Rússlands, Marat Khusnullin, sem útskýrði fyrir honum hvernig borgin yrði endur­byggð.

Þá heimsótt Pútín einnig Fílharmoníu­höllina í Mariupol, sem var notuð til að setja upp réttarhöld yfir þeim sem vörðu Azovstal járn og stál verksmiðjuna í fyrra eins og frægt er orðið.

Mariupol-borg hefur verið undir stjórn Rússlands í yfir 10 mánuði eftir að hún var lögð í rúst í einum af lengstu og blóðugustu orrustum stríðsins. Yfirvöld í Úkraínu segja að yfir 20.000 manns hafi látist í þeim átökum. Þá hafa 90 prósent bygginga í borginni verið skemmd samkvæmt greiningu Sameinuðu þjóðanna og um 350.000 manns neyðst til að yfirgefa borgina en fyrir stríðið bjuggu þar um hálf milljón manna.

Hópur íbúa hefur sagt BBC að Rússar séu að eyða miklum fjármunum í að endur­byggja borgina og vinna hug og hjörtu íbúa hennar. Áætlað er að gera Mariupol að rússneskri borg en yfirvöld í Rússlandi segja að nú búi um 300.000 manns þar.

Eitt af því sem Pútín gæti verið sekur um fyrir glæpa­dómstólum, er árás sem gerð var á leikhús Mariupol þar sem hundruðir borgara höfðu leitað skjóls í. Byggingin hrundi til grunna og er talið að minnst þrjúhundruð manns hafi látist.

Alþjóð­legi glæpa­dómstóllinn í Haag sagðist á föstu­daginn hafa gefið út handtöku­skipun á hendur Pútín vegna ólöglegra flutninga Úkraínskra barna til Rússlands. Þýðir þetta að hann gæti verið hand­tekinn stígi hann fæti á eitt af 123 ríkjum sem samþykkja dómstólinn.

Yfirvöld í Úkraínu hafa gefið það loforð að frelsa öll hernumin svæði Úkraínu, þar með talinn Krímskaga sem Rússar eignuðu sér árið 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs