Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Stefán Ómar greiddi gegn samningnum við Arion: „Ekki á móti Blikastaðalandi, það mun byggjast“

Stefán Ómar Jónsson
Stefán Ómar Jónsson Mynd: mosfellingur.is

Bæjar­fulltrúi Vina Mosfells­bæjar, Stefán Ómar Jónsson, greiddi einn bæjar­fulltrúa atkvæði gegn stað­festingu samstarfs­samnings milli Mosfells­bæjar og Blika­staðalands ehf. sem er í eigu Arion banka, á fundi bæjar­stjórnar miðvikudaginn 4. maí 2022.

Í samtali við Mannlíf sagðist Stefán ekki vera á móti byggð í Blika­staðalandi. „Er ekki á móti Blika­staðalandi, það mun byggjast. Það er ekkert nýtt að Mosfellsbær eignist allar lóðir og opin svæði, eins og Leir­vogstungu, Helgafell og Hulduhóla.“

Það sem Stefáni fannst einna helst við samninginn að athuga eru eftir­farandi punktar.

Í fyrsta lagi var bæjar­fulltrúum fyrst kynnt drög samningsins fyrir rúmri viku síðan.

Í öðru lagi voru samnings­drögin algert trúnaðarmál og máttu bæjar­fulltrúar ekkert tjá sig um þau utan lokaðs fundar, ekkert tjá sig á opinberum vettvandi né leita álits utanfrá.

Í þriðja lagi liggur ekki fyrir nein skoðun eða saman­burður á öðrum valkostum varðandi uppbyggingu bæjarins og byggða­þróun hans.

Hér að neðan er niðurlag úr ræðu bæjar­fulltrúans við umræðu um málið og bókun hans eftir að samningurinn hafði verið samþykktur.

„Ágæti forseti.

Vinir Mosfells­bæjar segja að skipulag eigi að vera á forsendum íbúa, með íbúum og fyrir íbúa, en ekki á forsendum banka­stofnunar. 

Forseti ég er hér í dag til þess að verja aðkomu og skoðana­frelsi íbúa Mosfells­bæjar, ekki til þess að taka þátt í leyndar­hjúp. Ég hefði kosið að fá mun betri tíma tíl að rýna samnings­drögin, til að leita utanað komandi álita og til að eiga (vondandi ásamt ykkur öllum) samtal við íbúa Mosfells­bæjar um verkefnið.“

Umræðu um málið má sjá og heyra af upptöku frá bæjar­stjórnar­fundinum hér.

Stefán Ómar kom með bókun eftir að samningurinn hafði verið samþykktur.

„Bæjar­fulltrúi Vina Mosfells­bæjar vísar til ræðu sinnar hér fyrr á fundinum, hvar í ræðunni hann reyfaði og vitnaði m.a. til lýðræðis­stefnu Mosfells­bæjar um virka aðkomu íbúa að öllum grund­vallar stefnu­mótunum/framkvæmdum, þar sem hann mótmælti þeim leyndar­hjúp sem hvíldi yfir samnings­gögnum allt þar til komið var á þennan fund. 

Bæjar­fulltrúinn telur að nauðsynlegt hafi verið að hafa fleiri valkosti til saman­burðar og þar sem hann óttast að þetta stóra verkefni dragi um of úr mætti bæjarins til að endurbæta og viðhalda þeim þjónustu­stofnunum sem við þegar erum með í dag.

Það er mikið talað um að hið lýðræðis­lega ferli og að samráð við íbúa eigi eftir að fara fram. 

Til hvers erum við að gera samning núna ef allt samráð á eftir að fara fram og hvað gerum við ef mál þróast þannig að samnings­ákvæði samningsins verða ekki skipulags­lega uppfyllt? 

Bæjar­fulltrúi Vina Mosfells­bæjar greiðir, í ljósi alls þessa, atkvæði gegn stað­festingu samningsins.“

Atkvæði voru greidd um frestun á samningnum en var sú tillaga felld með 5 atkvæðum S- og V- lista, samþykkt af L-, S- og M- lista og C- listi sat hjá. Samningurinn var svo samþykktur með 5 atkvæðum S- og V- lista, S-, C- og M- listi sátu hjá, L- listi greiddi atkvæði á móti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur