Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Réttindalaus skipstjóri áminntur fyrir kynferðislega áreitni gagnvart stúlkum í áhöfn Herjólfs

Mynd/vegagerdin.is
Mynd/vega­gerdin.is

Einn þriggja skip­stjóra Herjólfs var nýlega áminntur fyrir að sigla skipinu án réttinda og að sögn Harðar Orrar Grettis­sonar, framkvæmda­stjóra Herjólfs ohf., lækkaður í tign. Í fyrra var sami skip­stjóri áminntur fyrir kynferðis­lega áreitni gagnvart tveimur starfs­stúlkum um borð.

Rúv greindi frá því um daginn að skip­stjóri Herjólfs hefði verið áminntur og lækkaður í tign fyrir að hafa siglt skipinu réttinda­laus í 10 daga yfir hátíðirnar. Stjórn Herjólfs ohf. hefur ákveðið að gefa skipt­stjóranum annan sjens þó svo að stjórnin líti málið alvarlegum augum.

Mannlíf hefur eftir áreiðanlegum heimildum frá nokkrum áttum, að sami skip­stjóri hafi í fyrra verið áminntur fyrir kynferðis­lega áreitni gagnvart tveimur starfs­stúlkum um borð í Herjólfi. Ku hann hafa króað aðra stúlkuna af og „verið með einhverjar lýsingar og kennslu­aðferðir á kynlífs­athöfnum“, líkt og því var lýst fyrir blaða­manni Mannlífs.

Heimildir Mannlífs herma að skip­stjórinn sé undir sérstökum verndar­væng stjórnar­formanns Herjólfs, Arnars Péturs­sonar, og að hin meinta lækkun tignar á skip­stjóranum sé þannig úr garði gerð að titillinn „yfir­skipstjóri“ hafi verið búinn til fyrir hann árið 2020 og að nú sé einungis búið að stroka út „yfir“ og hann sé því enn skip­stjóri. Ekki hlaut hann aðra refsingu en áminningu fyrir meinta áreitni gagnvart stúlkunum, samkvæmt heimildum Mannlífs. Þess má geta að Arnar Pétursson er þjálfari handbolta­landsliðs kvenna.

Samkvæmt heimildum Mannlífs er kergja í mörgum í Eyjum vegna málsins en ári áður hafði annar skip­stjóri orðið uppvís að óeðli­legum smáskilaboða­sendingum á unga starfs­stúlku um borð og var sá skip­stjóri raun­verulega lækkaður í tign, niður í stýrimann, en afar erfitt er að vinna sig upp aftur eftir að hafa verið lækkaður í tign.

Hvorki náðist í Hörð Orra Grettisson, framkvæmda­stjóra Herjólfs ohf., né Arnar Pétursson, stjórnar­formann sama fyrir­tækis, í síma, við vinnslu fréttarinnar en skriflegt svar barst frá Herði Orra sem bar fyrir sig trúnaði.

„Allar upplýsingar um starfs­fólk eru meðhöndlaðar og varð­veittar í samræmi við ákvæði laga og reglna á sviði persónu­verndar. Herjólfur ohf. leggur áherslu á að tryggja að meðferð persónu­upplýsinga sé í samræmi við ákvæði laga nr. 90/2018 um persónu­vernd og meðferð persónu­upplýsinga. Ég hef ekki og mun ekki verða við neinum beiðnum um upplýsingar um mitt starfs­fólk.“

UPPFÆRT: Tölvu­póstur barst Mannlífi frá Herði Orra Grettis­syni, framkvæmda­stjóra Herjólfs ohf. þar sem hann neitar því að skip­stjórinn hafi áður verið áminntur í starfi sem er þvert á heimildir Mannlífs um málið.

„Eins og fram kom í fyrri pósti mínum eru allar upplýsingar um starfs­fólk meðhöndlaðar og varð­veittar í samræmi við ákvæði laga og reglna á sviði persónu­verndar.

Eftir samræður við starfs­manninn sem um ræðir tel ég mér þó heimilt og skylt að upplýsa að hann hefur aldrei áður verið áminntur í starfi. Ég bið ykkur því um að leiðrétta og draga til baka frétt sem birtist á vef ykkar þann 26. janúar kl. 12:39 og ber yfir­skriftina „Réttinda­laus skip­stjóri áminntur fyrir kynferðis­lega áreitni gagnvart stúlkum í áhöfn Herjólfs.

Ég mun ekki tjá mig frekar um þetta mál.“

Mannlíf hefur sent Herði nýjan tölvupóst og spurt hvort skip­stjórinn hafi þá fengið tiltal, ef ekki formlega áminningu, vegna áreitni gagnvart starfs­stúlkum Herjólfs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur