Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Austfirðingum boðið í kaffi með flóttafólki: „Því líður vel á Eiðum og er mjög ánægt“

Eiðar
Eiðar Mynd: Rúv skjáskot

Austfirðingar hafa fengið boð frá Rauða krossinum í kaffi á laugar­daginn með hópi flótta­fólks frá Úkraínu sem nýlega flutti á Eiðar. Kann hópurinn vel við sig fyrsta mánuðinn og er nú að taka sín fyrstu skref í samfélaginu og atvinnu­lífinu fyrir austan.

„Við ætlum að bjóða Austfirðingum og þeim sem búa á Eiðum í kaffi og vonumst til að heimafólk bjóði þá hjartanlega velkomna í samfélagið fyrir austan,“ segir Róbert Theoródsson, verkefna­stjóri í málefnum flótta­fólks hjá Rauða krossinum í samtali við Austur­frétt.

Kaffi­boðið verður haldið í sal Rauða krossins að Dynskógum 4 á Egils­stöðum, á neðri hæð nytja­markaðar samtak­anna en það verður milli 14 og 16 á morgun. Þar getur áhugasamt fólk aukreitis kynnt sér þar verkefni Rauða krossins er snúa að flótta­fólki en einnig er unnið að því að koma upp félags­neti til að hjálpa fólkinu að komast betur inn í samfélagið.

„Rauði krossinn er í sálfélagslegum stuðningi þar sem markmiðið er að efla félags­virkni og koma í veg fyrir félags­lega einangrun. Við vinnum að gagnkvæmri aðlögum flótta­fólks að íslensku samfélagi og sjáum kaffi­boðið sem gott tækifæri fyrir heimafólk til að kynnast þeim sem sest hafa að á Eiðum.

Við vonumst eftir að fá sjálfboða­liða á svæðinu til að taka þátt í því með okkur. Við erum annars vegar með pörunar­verkefni sem oft er þekkt sem stuðnings­fjölskylda en við köllum leiðsöguvin eða tungu­málavin, þar sem við pörum saman heimafólk við einstakling sem nýtur alþjóðlegrar verndar.

Viðkomandi hefur þá einhvern sem hann getur leitað til með spurningar um íslenskt samfélag og menningu, er hans haukur í horni og aðgangur að íslensku tengsla­neti. Það gefur þeim einnig möguleika á að æfa tungu­málið. Eins höfum við séð fyrir okkur að vera með mánaðar­lega viðburði þar sem fólk hittist í stærri hópi.“

Tekið er fram að sérstak­lega sé leitað að karl­mönnum í sjálfboða­liðastarf þar sem einungis ein kona er í sextán manna hópnum á Eiðum. Er aldurs­bilið breitt en yngsti einstaklingurinn er ríflega 22ja ára en sá elsti á sjötugsaldri.

Að sögn Róberts kann hópurinn vel við sig á Eiðum en hann kom fyrir rúmum mánuði eftir að hafa flúið stríðið í Úkraínu. „Fólkið er smám saman að komast í vinnu, sem er það sem það vill. Þannig er hluti hópsins núna í þjálfun hjá Alcoa Fjarðaáli. Því líður vel á Eiðum og er mjög ánægt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Maðurinn er grunaður um kynferðisbrot
Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp