Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Fjölgun innflytjenda í opinberum störfum: „Liður í að styrkja stöðu innflytjenda á vinnumarkaði“

Guðmundur Ingi Guðbrandsson
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnu­markaðs­ráðherra, hefur mælt fyrir þings­ályktunar­tillögu um framkvæmda­áætlun innflytjenda á Alþingi. Í tillög­unni er lagt til að ráðist verið í viðamikla stefnu­mótun í mála­flokknum og að unnið verði að gerð grænbókar og í fram­haldinu hvítbókar þar sem mörkuð er langtíma sýn í málefnum innflytjenda. Áhersla er á að sjónarmið fjöl­menningar endur­speglist í allri stefnu­mótun, stjórn­sýslu og þjónustu hins opinbera. Að virk þátttaka innflytjenda á öllum sviðum samfélagsins sé talin eðlileg, sjálfsögð og mikilvæg.

Þings­ályktunar­tillagan byggir á fimm megin stoðum um samfélag, fjöl­skyldu, menntun, vinnu­markað og flótta­fólk. Undir hverri stoð eru lagðar til aðgerðir til að ná fram markmiðum hverrar stoðar. Framkvæmda­áætlun í málefnum innflytjenda snertir á flestum málefnum samfélagsins. Jöfn tækifæri til þátttöku eru lykill að farsælu samfélagi og með áætluninni er mörkuð leið á þeirri vegferð.

„Við höfum ekki hikað við að takast á við krefjandi verkefni. Ísland hefur þegar mótað sér stefnu um að taka á móti flótta­fólki í sérstak­lega viðkvæmri stöðu í gegnum störf Flóttamanna­nefndar. Í framkvæmda­áætlun er því lögð áhersla á að efla fræðslu um réttindi til þess hóps sem og fagfólks sem kemur að móttöku þeirra,“ sagði Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnu­markaðs­ráðherra, í ræðu sinni.

„Jöfn tækifæri á vinnu­markaði eru mikil­vægur liður í að styrkja stöðu innflytjenda á vinnu­markaði. Þar er mikilvægt að hið opinbera leiði með góðu fordæmi í ráðningum og því snýst ein af aðgerðunum um fjölgun innflytjenda í opinberum störfum. Að opinberar ráðningar endur­spegli þá staðreynd að innflytjendur eru 15,5% lands­manna. Þá er jafnframt nauðsynlegt að endur­skoða löggjöf um atvinnu­réttindi útlendinga. Snýr sú endur­skoðun meðal annars um að ákvæði er varða útgáfu dvalar­leyfa á grund­velli atvinnu­þátttöku verði rýmkuð og skilvirkni aukin. Þá verði tryggt að fólk sem fær dvalar­leyfi á grund­velli mannúðar­sjónarmiða eða sérstakra tengsla við landið fái samhliða óbundið atvinnu­leyfi,“ sagði Guðmundur Ingi einnig í ræðunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur