Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Rúntað á Rucio – 14. þáttur: Bullið á bakvið ímyndina og Borges

Fyrirtæki, stjórn­málaflokkar og síðan fólk, sem tekur sér aðeins of alvarlega, er afar upptekið að ímynd sinni. Allt sem sagt og gert er miðar að því að hún sé sem fallegust. En lífið sjálft tekur ekkert mark á svona hégóma og miðar einmitt að því að sýna okkur, svart á hvítu, mismuninn á þeim hugmyndum sem við gerum okkur um okkur sjálf og þeim raun­veruleika sem blasir við þegar skyggnst er á milli eyrna okkar. Máli sínu til rökstuðnings segja þeir félagar sögu úr bókinni Berta Isla eftir Javier Marías, einn fremsta rithöfund þeirra Spánverja, en hann féll frá á árinu sem nú var að líða. Telja þeir félagar að hollara væri að huga að hugtaki einsog orðstýr, sem segir til um það hvernig við höfum staðið okkur frammi fyrir augliti heimsins og er mun hollara hugarfar en hégómleg sýn okkar á einhverja ímynd.

Því næst verður talað um tvo Argentínu­menn sem hvor um sig var frumkvöðull á sínu sviði. Farið verður í hljóð­verið hans Astors Piazzola en hann gjör­breytti tangó-tónlistinni og gerði það að verkum að farið var að flytja hana í tónleika­húsum einsog gert er með sígilda tónlist. Hjá honum í hljóð­verinu er enginn annar en skáldjöfurinn Jorge Luis Borges en smásögur hans eiga engan sinn líkan í bókmennta­sögunni. Hann var einnig sannur Íslands­vinur og fór með konu sinni, Maríu Kodama, til Íslands í það sem hann kallaði pílagríms­ferð. Hann var svo heltekinn af bókmennta­arfi okkar að hann lærði íslensku til að geta mælt á sömu tungu og Egill Skallagrímsson og Snorri Stuluson. Farið verður með þeim hjóna­kornum til Íslands þar sem þau taka hús á alls­herja­goðanum, hinum eina og sanna, Svein­birni Bein­teinssyni. Reyndar eru bæði Borges og Piazzola látnir, rétt einsog Svein­björn heitinn, en rúnturinn með Rucio er ekki í vanda með að reisa þessa risa upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt