Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Ragnheiður Inga rektor er gestur Guðna: „Skordýraræktun sem getur verið til fóðurs eða manneldis“.

Ragn­heiður Inga Þórarisndóttir, rektor Land­búnaðar­háskóla Íslands, ræddi við Guðna Ágústsson. Hún fæddist í Reykjavík og var þriggja ára þegar fjöl­skyldan flutti til Danmerkur þar sem faðir hennar fór í nám og þar bjuggu þau í sex ár. Hún gekk í Hvassaleitis­skóla og fór síðar í Mennta­skólann við Hamrahlíð og útskrifaðist þaðan árið 1987. Hún fór síðan í nám við Danska tækni­háskólann; fór í efna­verkfærði og sérhæfði sig í lífefna­fræði og næringar­fræði. Í kóngskins Köben kynntist hún ástinni í lífi sínu; bóndasyni úr Húna­vatnssýslu, Ólafi Pétri Pálssyni, sem er prófessor í iðnaðar- og vélaverk­færði við Háskóla Íslands.

„Ég segi alltaf að lambakjöt eigi að vera miklu dýrara. Við getum gert miklu meira með það heldur en við erum að gera í dag í vöruþróun og bara hækka verð á þessu dýrindis kjöti,“ segir dr. Ragn­heiður

Við ættum að vera að flytja út miklu meira af græn­meti heldur en við erum að flytja inn.

Stjórn­málamenn, vísinda­menn og fleiri hafa sagt að ein stærstu tækifæri land­búnaðarins liggi í garðyrkju. „Við ættum að vera að flytja út miklu meira af grænmeti heldur en við erum að flytja inn. Við erum að framleiða allar gúrkurnar okkar og við erum aðeins farin að flytja út gúrkur til Grænlands og Danmerkur og það er mjög erfitt að flytja út gúrkur segja menn mér. Erfitt í flutningi. Hvað varðar tómata þá er kannski verið að framleiða helminginn sem við erum að neyta sjálf og kannski innan við 10% af paprikunum,“ segir Ragn­heiður og talar meðal annars um að hér á landi sé verið að framleiða á 20 hekturum en í Hollandi á um 10.000 hekturum. „Stærstu fyrir­tækin hér á landi eru um einn hektari og þau eru nokkur. Meðal­stærðin í Hollandi er um fimm hektarar þannig að stærstu fyrir­tækin okkar eru að ná um 20% af meðalstærð fyrir­tækja í Hollandi. Og 10 stærstu fyrir­tækin í Hollandi eru um 500 hektarar. Þetta er samkeppnin sem við búum við.“

Tækifærin hér á landi eru mörg og segist Ragn­heiður halda að það verði miklar breytingar á næstunni og bendir meðal annars á að stöðvunum sé að fækka og þær stóru eru að stækka og fram­leiðslan að aukast.

Er Ísland korn­ræktarland?

Þannig að það séu þá ein­hvers konar korn­sam­lög sem geti tekið við.

„Ég held við getum ræktað miklu meira af korni. Auðvitað erum við háð veðrum og það koma brestir í það en eitt af þeim málefnum sem við höfum verið að leggja áherslu á er að nýta jarð­varmann aftur til þess að þurrka, koma upp þurrk­stöðvum og geymslum þannig að það séu þá einhvers konar korn­samlög sem geti tekið við þannig að bændur þori að framleiða meira af því að þeir vita þá að það er einhver sem tekur við og það sé utan­umhald utan um það til þess að styrkja markaðinn til þess að við getum aukið fram­leiðsluna.“

Skyrið flýgur víða og íslenski hesturinn þannig að tækifærin eru víða.

„Við höfum ekki nefnt önnur nýsköpunar­tækifæri eins og skordýra­ræktun sem getur verið til fóðurs eða manneldis. Eða þörunga. Skordýr eru fæða fyrir um tvo milljarða manna í dag og það er hægt að setja þetta í samhengi við rækju og humar.“ Ragn­heiður segir að í þessu sambandi séu þau aðallega búin að vera að skoða mjölorma og svörtu hermanna­fluguna. „Þær eru mjög vinsælar í ræktun í Evrópu og eru nokkur fyrirtæki að koma upp fram­leiðslu. Svo eru þörunga­fyrirtæki að spretta upp hér; ætlu þau séu ekki orðin sjö. Þá er hampur kominn í prufu­framleiðslu á nokkrum bæjum.

Við eigum gríðarleg tækifæri en við erum kannski ekki að nýta þau nógu vel af því að við erum auðlinda­þjóð og höfum það gott.“

Tilraun á rottum

Ragn­heiður fæddist í Reykjavík og var þriggja ára þegar fjöl­skyldan flutti til Danmerkur þar sem faðir hennar fór í nám og þar bjuggu þau í sex ár. Hún gekk í Hvassaleitis­skóla og fór síðar í Mennta­skólann við Hamrahlíð og útskrifaðist þaðan árið 1987. Hún fór síðan í nám við Danska tækni­háskólann; fór í efna­verkfærði og sérhæfði sig í lífefna­fræði og næringar­fræði. Í kóngskins Köben kynntist hún ástinni í lífi sínu; bóndasyni úr Húna­vatnssýslu, Ólafi Pétri Pálssyni, sem er prófessor í iðnaðar- og vélaverk­færði við Háskóla Íslands. „Ég fann hann á Hviids Vinstue,“ segir Ragn­heiður. Börnin eru fjögur og barna­börnin nokkur.

„Ég gerði í loka­verkefninu tilraun á rottum og fóðraði þær með mismun­andi fiskiolíum og fékk meðal annars sendar fiskiolíur frá Lýsi.“

Við notum um 10% af jarð­hit­anum í fram­leiðslu.

Síðan var flutt heim. Ragnheiði bauðst starf hjá Iðntækni­stofnun og vann í sambandi við plastefni. Hún skráði sig svo í doktorsnám í efnis­fræði; tæringu málma. „Þannig að ég tók doktors­gráðuna mína frá Danska tækni­háskólanum starfandi hjá Iðntækni­stofnun og síðar hjá lagna­deild Rannsóknar­stofnunar bygginga­iðnaðarins og kláraði síðan doktors­gráðu frá Danska tækni­háskólanum í tæringu málma. Það varð síðar tenging í næsta starf af því að ég var sérstak­lega að stúdera tæringu málma í hita­veitukerfum og næsta starf var hjá Orku­stofnun. Þá var ég búin að setja mig inn í orkumálin svolítið og hafði sérstakan áhuga á jarð­hitakerfum og hvernig við erum að nýta heita vatnið. Ég fór síðan að vinna svolítið sjálfsætt í verkefni í nýsköpun; hringrásar­verkefni – hvernig við gætum búið til mat og nýtt heita vatnið okkar í meira mæli. Við notum um 10% af jarð­hitanum í fram­leiðslu og manni finnst að sá geiri ætti að stækka. Þetta fer meðal annars í í ylrækt og fiskeldi og manni hefur þótt þarna vera mikil tækifæri fyrir okkur.“

Gengur vel að fá styrki

Ragn­heiður varð rektor Land­búnaðar­háskóla Íslands árið 2019.

„Ég myndi hiklaust segja að þetta sé mest spennandi háskólinn á Íslandi og hér séu stærstu tækifærin. Og það var það sem kallaði til manns þegar ég sótti um starfið að þarna væru mál málanna – það er matvæla­framleiðsla, umhverfið og loftslags­málin og skipulags­málin.“

Ragn­heiður segir að lengi vel hafi um 300 nemendur stundað grunnnám við skólann hverju sinni en í dag eru þeir um 600 fyrir utan þá sem eru í endur­menntun.

„Við skiptum þessu upp í þrjár fagdeildir og það var nýtt skipurit sett upp 1. janúar 2020. Það hafði áður verið ein háskóla­deild og ein starfs- og endur­menntunar­deild þannig að við skiptum þessu upp til þess að gera námið sýnilegra og það var líka hugsað til þess að ná meiri samlegð á milli brauta.“ Þessar þrjár fagdeildir kallast ræktun og fæða, skipulag og hönnun og svo loks náttúra og skógur. „Síðan röðuðum við brautunum þarna inn; fjórar brautir í hverri deild og allar deildir bjóða þá upp á starfs­menntanám á framhalds­skólastigi, grunnnám, BS-námið, og síðan framhaldssnám; meistara- og doktorsnám.“

Eftir þessa aukn­ingu hefur verið biðlisti á nem­enda­garða.

Um 120 nemendur búa á nemenda­görðum og eftir þessa aukningu hefur verið biðlisti á nemenda­garða. Þá hefur verið biðlisti á meðal skipti­nema.

Ragnheiði gengur vel að fá styrki. „Já, ég hef verið svolítið góð í því. Við höfum á þessum árum núna verið frá því að fá styrki úr samkeppnis­sjóðum um 120 milljónir á ári á tímabilniu 2012-2018 og núna 2019, 2020 og 2021 erum við komin í 330 milljónir. Þannig að við erum komin langt í það að þrefalda þá upphæð sem við fáum úr samkeppnis­sjóðum sem þýðir það að við getum ráðið til okkar sérstak­lega doktorsnemendur þannig að þeir eru núna um 20 talsins. Það er vegna þessara fjármuna sem við getum ráðið þá í vinnu. Þeir eru nátt­úrlega flestir á launum og síðan erum við með postdoc og fleiri sérfræðinga þannig að ef þú ert með 200 milljónir til viðbótar þá getur þú ráðið í fleiri störf.“

Landbúnaðurinn er „in“

Búfræðin blómstrar í háskóla­umhverfinu.

„Búfræðin hefur verið sú braut sem hefur verið vinsælust og við höfum þurft að vísa fólki frá. Það hefur stundum verið þannig að fólk hefur verið með stúdents­próf og viljað koma inn í búfræðina og hefur þá farið í búvísindi á háskóla­stigi og bætt síðan við sig búfræðinni til að fá praktíska hlutann. Þannig að ég myndi segja að búfræðin sé kannski vinsælasta námið í gegnum tíðina.“ Í fyrra var bætt við fjarnáms­bekk og segir Ragn­heiður að áhugi sé fyrir því að bæta líka við staðnámið. „Við gerum þá kröfu í búfræðinni að nemendur sem vilja koma í fjarnámið séu starfandi í greininni.“

Það er mikil tækni­væð­ing og nýjar til­lögur og hug­myndir að koma fram.

Það segir manni að land­búnaðurinn sé „in“ hjá ungu fólki.

„Ég held það. Ég held að við munum líka sjá breytingar til framtíðar. Það er mikil tækni­væðing og nýjar tillögur og hugmyndir að koma fram.“

Skólinn er í samstarfi við land­búnaðar­háskóla á öllum hinum Norður­löndunum sem og baltnesku löndunum og geta nemendur farið út til að taka kúrsa. „Við höldum sameiginlega kúrsa og svo er líka mikið sameiginlegt rannsóknar­starf. Við erum til dæmis með meistaranám, loftslags­breytingar á norðurslóðum, í samstarfi við háskóla í Helsinki og Svíþjóð; sænska land­búnaðar­háskólann. Síðan erum við með ansi spennandi verkefni núna sem við vorum að senda í Evrópu­sambandið sem er samstarf átta evrópskra háskóla. Ég held að þetta sé grund­völlurinn að vexti til framtíðar að við séum í góðu samstarfi við erlenda háskóla sem eru stærri og geta verið með miklu betri innviði á þeim sviðum sem borgar sig kannski ekki fyrir okkur að byggja upp. Þannig að við getum þá sent nemendur út og fengið kennara að utan hingað heim. Þá geta bæði nemendur og starfs­menn farið á milli á auðveldan máta.“ Hún nefnir líka fjar­kennslu. „Það skiptir kannski ekki alltaf máli hvar þú situr ef þetta er bóklegt.“

Þá er skólinn í samstarfi við aðra íslenska háskóla.

Ný tæki

Ragn­heiður segir að það sé gott samstarf við Svandísi Svavars­dóttur matvæla­ráðherra sem og fyrr­verandi land­búnaðar­ráðherra sem hún segir að hafi stutt vel við bakið á skólanum. „Hluti af fjár­veitingu skólans er ennþá í landbúnaðar­ráðuneytinu eða núna matvæla­ráðuneytinu sem snýr að rann­sóknum. Og 2020 gerðum við nýjan samning til þriggja ára þar sem var sú breyting að það var eiginlega tíundað aðeins hvaða verkefni við myndum setja í forgang í samstarfi við ráðuneytið. Þannig að ráðuneytið bað okkur sérstak­lega um að gera skýrslu um fæðu­öryggi og eins um stöðu sauðfjár­bænda og svo stendur til að fara í garðyrkju­málin líka. Þetta er þriggja ára samningur og byggður á því að við myndum hafa reglulegri fundi en hafði verið.“

En ég myndi segja að í dag séu rann­sókn­irnar að efl­ast.

Ragn­heiður er spurð hvernig hin gamla rannsóknar­stofnun land­búnaðarins standi inni í land­búnaðar­háskólanum sem var hér sterk lengi vel.

„Þegar þetta var lagt saman þá held ég að það hafi verið um 160 starfs­menn. Í dag erum við 100 og höfum verið að byggja okkur upp. Ég held það hafi verið komið niður í 80. Sameining var í byrjun árs 2005 og menn fóru bjartsýnir af satð. Svo svo kom hrun og alls konar í kjölfarið þannig að það var svolítið erfitt fyrir skólann á margan hátt fyrstu árin. En ég myndi segja að í dag séu rann­sóknirnar að eflast.“

Ragn­heiður segir að lögð hafi verið mikil áhersla á að bæta innviðina. Kaupa tækja­búnað. „Við höfum sótt fram eins og ég sagði í samkeppnis­sjóðina; nátt­úrlega líka í tækjakaupa­sjóði eins og jarðræktar­miðstöðin okkar er mjög sterk. Við höfum verið að kaupa ný tæki fyrir hátt á annað hundrað milljónir meðal annars með styrk frá tækjakaupa­sjóði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt