Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Íbúar í Vesturbæ ósáttir vegna skilaboða á trampólíni: „Verið að kenna þeim að skilja útundan“

Vesturbær – myndin tengist fréttinni ekki beint
Vest­ur­bær – myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Töluvert fjaðrafok hefur orðið meðal Vesturbæinga vegna trampólíns sem sett var upp á leikvelli í hverfinu. Trampólínið er sagt einungis ætlað börnum búsettum í ákveðnum húsum við götuna.

Trampólíninu var nýverið komið upp á litlum leikvelli við Grana­skjól í Vesturbæ. Mynd var birt af því í hverfis­hópi Vesturbæinga á Facebook en það sem fór fyrir brjóstið á höfundi innleggsins var miði sem búið var að festa á trampólínið. Á miðanum segir: „Halló krakkar! Þetta trampólín er bara fyrir börn í Grana­skjóli 29 og Grana­skjóli 66-90“. Höfundur segir trampólínið staðsett á leikvelli í eigu borgarinnar og því sé það fráleitt að foreldrar planti því þar og ætli sér síðan að takmarka notkun þess við ákveðin börn.

Miðinn sem hefur verið festur við trampólínið.

Margir íbúar taka undir sjónarmið höfundar upphafs­innleggsins og segja meðal annars að með þessu sé verið að senda börnum kolröng skilaboð.

„Hvaða rugl/tíska er það að efnað fólk í Vestur­bænum sé að taka land í „fóstur“ aka stela landi hægri vinstri? Ég ætla að biðja þessa foreldra að taka niður trampólínið af landinu mínu og þínu! Eða að taka niður skiltið og eyða út þessari ljótu reglu,“ segir í upphafs­innlegginu.

Ekki um borgarland að ræða

Við eftirgrennslan blaða­manns Mannlífs kom hins vegar í ljós að leik­völlurinn er alls ekki á borgar­landi, heldur tilheyrir lóðin íbúum við Grana­skjól 66-88. Þeir foreldrar sem reistu trampólínið og vilja takmarka notkun þess hafa því fullt leyfi til þess, burtséð frá skoðunum fólks á útilokun annarra barna í nágrenninu.

„Þetta er eign þeirra. Grana­skjól 66 til 88 á þessa lóð. Hús 29, sem er líka skráð fyrir þessu trampólíni, á ekki lóðina,“ sagði starfs­maður Reykja­víkurborgar í samtali við Mannlíf, sem hafði þegar fengið ábendingu um málið.

Lóðin og leiktækin sem á leik­vellinum standa eru því á ábyrgð íbúa þessara húsa og þeim frjálst að hagnýta hann að vild. „Þau eiga þessa lóð og kannski hafa þau sett upp leiktækin sem eru þarna. Það er bara þeirra val.“

„Nú er spurning hvað hefur verið sagt við krakkana sem búa á þessum heimilum. Eru krakkarnir að reka aðra krakka úr ef þeir búa ekki þarna. Er ekki verið að kenna þeim að skilja útundan með þessu,“ spyr einn íbúi Vestur­bæjar í athugasemd við færsluna í hverfis­hópnum.

„Á sama tíma og flestir foreldrar leitast við að ala það upp í sínum börnum að það eigi alltaf að gefa með sér og leyfa öðrum að prófa dótið sitt þá eru þetta skila­boðin sem önnur börn fá frá sínum foreldrum,“ skrifar annar íbúi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur