Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Gabríelu synjað án skýringa: „Þau taka svo mikið af geðþóttaákvörðunum“

Gabríela Bryndís
Gabríela Bryndís

Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, sálfræðingur og formaður baráttu­hópsins Lífs án ofbeldis, var á dögunum synjað þátttöku á námskeiði sem auglýst var fyrir sálfræðinga í dómsmálum. Samkvæmt heimildum Mannlífs er námskeiðið, sem ætlað er mats­mönnum, 40 klukku­stunda langt og kostar 330 þúsund krónur. Áætlað er að 20 stundir verði kenndar nú í maí og aðrar 20 í október. Umsjóna­menn námskeiðsins eru Álfheiður Steinþórs­dóttir, Gunnar Hrafn Birgisson, Guðrún Odds­dóttir og Oddi Erlingsson, en öll hafa þau starfað sem matsmenn.

Starfs­hættir matsmanna hafa verið gagn­rýndir víða á samfélags­miðlum undan­farnar vikur og hafa bæði Mannlíf og DV fjallað um málin. Gabríela sagði frá reynslu sinni í hlaðvarps­þættinum Eigin konum.

„Það var verið að auglýsa námskeið fyrir matsmenn til að reyna að fá nýtt fólk inn og líka svara þörf fyrir meiri fræðslu, sem er bara frábært. En svo kemur í ljós að það fá ekkert allir sálfræðingar að fara á þetta námskeið. Þau bara ákveða hverjir það eru því þau taka svo mikið af geðþótta­ákvörðunum,“ segir hún í viðtalinu.

Gabríelu hefur ekki enn borist skýring hvers vegna henni var synjað um þátttöku á námskeiðinu þrátt fyrir að hún hafi kallað eftir rökstuðningi. Hefur hún verið gagnrýnin á starfs­hætti matsmanna í forsjár­málum og sagðist hún hafa hug á því að kynna sér fræðin sem fylgja því að vera matsmaður. Gabríela, sem er sálfræðingur að mennt, uppfyllti öll skilyrði sem þurfti fyrir þátttöku námskeiðisins og sótti um strax og námskeiðið var auglýst. Ekki liggur fyrir hvers vegna Gabríelu var synjað en mun Mannlíf uppfæra fréttina er niður­staða liggur fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá