Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Kristján segist ekki vera „rasisti“

„Það er strax farið í að níða mig niður“

Kristján Berg Ásgeirsson
Kristján Berg Ásgeirs­son Selur fisk og heita potta. Mynd: Reynir Traustason

Fiski­kóng­ur­inn svo­kall­aði, Kristján Berg Ásgeirs­son, er allt en sáttur þessa dag­ana en reiði hans bein­ist aðal­lega að konum sem eru 25 til 45 ára gamlar.

Forsaga máls­ins er það að Kristján sagði sögu af konu sem labb­aði út úr verslun hans vegna þess að Kristján bar der­húfu sem ástæðu Make Ísland Great Again og vísar hún í svip­aða húfu sem Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, lét gera á sínum tíma.

Hefur ekki áhrif á Kristján

„Ótrú­legir dagar að baki,“ skrifar Kristján um málið. „Það eru nokkrir virki­lega veikir ein­stak­lingar þarna úti í sam­fé­lag­inum sem eru með "Trump synd róm", á veru­lega hættu­legu stigi. Ég fékk mína der­húfu gef­ins, fannst hún töff og bara hana á mínu höfði. Allt var kreysi!!“ heldur hann áfram.

„Þegar ég segi kreysi, þá eru þetta nokkrir tugir ein­stak­linga, að mestu leyti konur frá 25-45 ára, sem missa sig alveg útí hið óend­an­lega. Það er strax farið í að níða mig niður. Rasisti og önnur ógeðs­leg orð eru notuð um mig og mína. Ég ætla ekki einu sinni að eyða orku minni í að reyna að verja mig, þetta er komið á það stig að þessu er ekki svara­vert. Þessir veiku Trump synt róm ein­stak­lingar þurfa að fá útrás og reyna hvað þeir geta til þess að ríf­ast við mig. Því miður þá geta þeir frekar reynt að pissa uppí vind­inn, þetta hefur ekki áhrif á mig,“ skrifar kóng­ur­inn en tekur fram að der­húfan hans teng­ist ekk­ert der­húfum Trump þó þær séu í sama stíl.

Kristján segir að hug­mynda­þjófn­aður með smá­vegis breyt­ingum sé dag­legt brauð og að der­húfan sé dæmi um það.

Finnst Trump fyndinn

„Ég ætla samt að við­ur­kenna að ég fýla Trump, mér finnst hann fynd­inn, gaman að fylgj­ast með honum, dans­inn hans er hrika­lega flottur og svo mætti lengi telja. Ég er samt ekki að rýna djúpt ofaní hvað hann gerir dags dag­lega, tek bara frá honum það sem mér finnst fyndið og skemmti­legt,“ skrifar Kristján og spyr hvort það sé bannað.

„Þú mátt alveg gagn­rýna mig fyrir það. Ég er bara alltaf léttur og finnst gaman af líf­inu. Ég er ekki að fara að bjarga heim­inum, eins og svo margir sem hafa hraunað yfir mig. Þið Trump synt róm fólk, þið getið bara verið í þeim björg­un­ar­að­gerðum, enda eruð þið háværasta, dóna­leg­asta og leið­in­leg­asta fólkið sem ég hef heyrt í. Ég ætla bara að halda áfram að lifa mínu lífi, án þess að þið fáið að stjórna hvað ég segi, hvernig ég klæð­ist og hvernig ég ver mínum degi. Ef þið þolið ekki Trump, þá notið frekar krafta ykkar til þess að skrifa honum bréf og tjá ykkur.“

Fólkið þarf hjálp

Kristján seg­ist hafa fengið mik­inn stuðn­ing í kjöl­far þess að hann greindi frá sam­skiptum sínum við kon­una og að flestir íbúar Íslands séu and­lega í lagi.

„Ég er full­orð­inn sjálf­stæður ein­stak­lingur sem á sjálfur fæði, klæði og hús­næði. Þetta er spurn­ing um að þora að standa í lapp­irnar og láta ekki bug­ast undan þessu fólki sem reynir af öllum krafti að stjórna þér, með ógeðs­legum orðum, hót­unum og ofbeldi. Þetta fólk þarf hjálp.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

„Þú getur treyst barninu sem þú varst. Jesús gerir það“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu