InnlentCovid-19Frönsku smitberarnir sleppa við allar afleiðingar gjörða sinna23. september 2020 Frakkarnir tveir sem eru taldir bera ábyrgð á COVID-bylgjunni nú þurfa ekki að borga neina sekt. Samkvæmt svörum ríkislögreglustjóra til RÚV. Frakkarnir voru í umdæmi lögreglustjórans á Suðurlandi. Lögreglan þurfti að hafa afskipti af þeim þar sem þeir fygldu ekki sóttvarnaráðstöfunum til hins ítrasta. Samt var ekki talin ástæða til að sekta þá. „Beiting leiðbeininga og tilmæla hafa reynst vel...
InnlentCovid-19Katrín ekki með COVID en segir stöðuna óhugnanlega22. september 2020 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er ekki smituð af COVID. Hún greinir frá þessu í færslu á Facebook. Sumir veltu því fyrir sér þar sem hún hefur verið veik síðustu daga. Hún segir þriðju bylgjuna sem nú stendur yfir óhugnanlega. „Eitt er það sem er óheppilegt við að eiga alltaf að vera einhvers staðar og það er að það vekur alltaf töluverða...
SkoðunCovid-19Reynir TraustasonLeyndarhjúpur um smitbera22. september 2020 Það er komið á daginn að megnið af þeim smitum sem hafa borist í fólk á Íslandi koma frá frönskum ferðamönnum sem brutu sóttkví. Farvegurinn hefur síðan reynst vera að mestu um öldurhús. Þessi uppákoma öll er grafalvarleg og hefur þegar kostað fjölda einstaklinga þjáningu og sett allt samfélagið í úlfakreppu, fátæktar, einangrunar og hafta með tilheyrandi veikindum og harmleikjum....
InnlentCovid-19Arnar ósáttur við kollegana – Óvíst hvort karókí sé rót COVID-bylgjunnar21. september 2020 Arnar Þór Gíslason, einn eigenda Irishman Pub í miðbænum, er ósáttur við þá veitingamenn sem vilja ekki gefa upp að staðir þeirra tengjast Covid-smitum í þriðju bylgju faraldursins hérlendis. Fjöldi ábendinga hafa borist Mannlíf um að karókígræja sé sökudólgur hópssmits á stað Arnars og kannast eigandinn við umræðu þess efnis. Aðspurður segir Arnar Þór hópinn vissulega hafa farið í karókí...
InnlentCovid-19Kristján var hraustur en COVID braut hann niður: „Minnti mig alltof mikið á martraðirnar“21. september 2020 Kristján Gunnarsson, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar, lýsir síðustu sex mánuðum sem hreini martröð en hann sýktist þá af COVID veirunni alræmdu. Rætt var við Kristján í Kastljósi fyrir nokkrum mánuðum en mál hans sýnir glögglega hvílíkt skaðræði veiran getur verið. Hann var við góða heilsu þegar hann veiktist en hefur síðustu mánuði upplifað skelfileg veikindi. Hann lýsir þeim í færslu á Facebook...
InnlentCovid-19Irishman Pub er staðurinn í miðbænum sem lögreglan tengir við Covid-1917. september 2020 Veitingastaðurinn Irishman Pub er Covid-19 staðurinn í miðborginni sem fjöldi fólks hefur smitast á. Frá þessu var greint rétt í þessu í tilkynningu frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. Lögreglan telur nauðsynlegt að hafa uppi á öllum þeim gestum sem sóttu staðinn síðastliðið föstudagskvöld til þess að koma í veg fyrir frekar útbreiðslu veirunnar. Er þeim sem sóttu ofangreindan stað umræddan dag á...
InnlentCovid-19Kórónuveiran: Önnur bylgjan sækir í sig veðrið17. september 2020 19 tilfelli kórónuveiru greindust á Íslandi eftir sýnatökur í gær, samkvæmt staðfestum tölum Embættis landlæknis. Þar af voru 12 utan sóttkvíar. Fleiri tilfelli hafa ekki greinst á einum sólarhring síðan í apríl, þegar fyrri bylgja faraldursins stóð hvað hæst og stíft samkomubann var í gildi. Önnur bylgja faraldursins virðist því ekki vera í rénun heldur þvert á móti sækja í...
InnlentCovid-19Hjólaferð Kristínar Ýrar endaði með ósköpum – Fékk COVID og enga hjálp: „Enginn virðist vita það“14. september 2020 Kristín Ýr Gunnarsdóttir, ráðgjafi og fyrrverandi fréttakona, smitaðist af COVID-veirunni alræmdu fyrr á þessu ári. Líkt og kom fram í sjónvarpsfréttum RÚV í gær glímir hún enn við eftirköst veirunnar. Hún er 37 ára og greindist í mars. Hún fær enn slæma verki, hjartsláttartruflanir og mæði. Hún greinir á Facebook-síðu sinni frá nýlegu atviki sem sýnir afleiðingar þess að smitast...
InnlentCovid-19Björgólfur Thor með Covid-19 og sér fram á tækifæri14. september 2020 Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir veiktist af Covid-19. Ekki bara hann heldur öll fjölskylda hans en þau eru búsett í Lundúnum. Frá þessu greinir Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, þegar hann auglýsir bók sína Vörn gegn veitu. Í umfjölluninni ræðir Björgólfur Thor um tækifærin sem hann sér í breyttum heimi eftir Covid-19. Hann telur efnameiri ferðamenn koma til með að ferðast...
InnlentCovid-19Jón Ívar segir hættuna af COVID ofmetna: „Ekki heillavænlegt að keyra á hræðsluáróðri“3. september 2020 Grein sem Jón Ívar Einarsson, prófessor við læknadeild Harvard-háskóla í Boston, birti í Morgunblaðinu í dögunum vakti talsverða athygli en í henni gagnrýndi hann íslensk stjórnvöld fyrir hertar aðgerðir á landamærum vegna kórónuveirunnar. Sú grein vakti bæði hrifningu og harða gagnrýni. Í Morgunblaðinu í dag er birt nýr pistill eftir Jón Ívar og gefur hann ekkert eftir. Hann segir að...
InnlentCovid-19Kári gerir Björn Inga afturreka með Farsóttastofnun2. september 2020 Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, hefur ekki áform uppi um að rukka ríkið fyrir skimanir á landamærum í því skyni að gefa íslensku þjóðinni Farsóttastofnun Íslands. Björn Ingi Hrafnsson, kenndur við Viljann, sagði frá því í Kastljósi Ríkisútvarpsins, að í nýrri bók hans um Covid 19 kæmi þetta fram. Björn Ingi sagði Kára ætla að leggja stofnuninni til fjármagn og...
InnlentCovid-19Persónuvernd um Boðaþings- og Hlífarmálin: Gæti þurft að skoða nánar31. ágúst 2020 „Ef þetta eru sambærileg dæmi og tekið mismunandi á þeim, þá gæti þurft að skoða það nánar,“ segir Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, um ólíkar nálganir sóttvarnaryfirvalda gagnvart öldruðum íbúum Boðaþings í Kópavogi og Hlífar á Ísafirði. Í fyrra tilvikinu var smiti leynt vegna persónuverndarsjónarmiða en í því síðara tilkynnt opinberlega um smit og öllu skellt í lás. Persónuvernd varð til...