Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Kórónuveiran: Önnur bylgjan sækir í sig veðrið

Kórónuveiran: Önnur bylgjan sækir í sig veðrið
Mynd / Shutterstock

19 til­felli kór­ónu­veiru greindust á Íslandi eftir sýna­tökur í gær, sam­kvæmt stað­festum tölum Embættis land­læknis. Þar af voru 12 utan sótt­kvíar. Fleiri til­felli hafa ekki greinst á einum sól­ar­hring síðan í apríl, þegar fyrri bylgja far­ald­urs­ins stóð hvað hæst og stíft sam­komu­bann var í gildi. Önnur bylgja far­ald­urs­ins virð­ist því ekki vera í rénun heldur þvert á móti sækja í sig veðrið.

Þetta á ekki bara við um Íslandi, því í byrjun þess­arar viku skráði WHO met­fjölda nýsmita á einum sól­ar­hring. Alls greindust 307.930 til­felli á heims­vísu á sunnu­dag­inn var og virð­ist það hafa slegið tón­inn fyrir vik­una. Mest var aukn­ingin á Indlandi, Banda­ríkj­unum og Brasilíu.

Evrópa fer þó ekki var­hluta af seinni bylgj­unni, því á meg­in­land­inu fer nú til­fellum ört fjölg­andi. Stjórn­völd flestra ríkja halda að sér höndum við að beita við­líka lok­unum eins og gripið var til í vor. Er ekki að undra, því höggið fyrir hag­kerfi heims er nú þegar orðið allt að fjórum sinnum meira en það var í heimskrepp­unni árið 2009, sam­kvæmt OECD. Til að forð­ast aft­ur­hvarf til lok­ana er hins­vegar víða í Evrópu kveðið harðar á um að almenn­ingur virði sam­skipta­fjar­lægð að nýju og and­lits­grímur eru orðnar hluti af dag­legu lifi.

Hvaða lönd glíma við aðra bylgju?

Enn sem komið er virð­ist önnur bylgjan ekki ætla að ná sömu hæðum í Evrópu og hin fyrri gerði í vor. Belgía, Ítalía og Bretland eru meðal þeirra Evr­ópu­landa sem fóru verst út úr veirunni í vor, en þótt þar sé aukn­ing til­fella nú er hún ekki í lík­indum við það sem verst lét í fyrri bylgj­unni.

Í sumum löndum austur Evrópu, svo sem Tékk­landi, Búlgaríu og Albaníu, hefur seinni bylgjan hins­vegar risið hærra en hin fyrri. Þó ber að hafa í huga að þegar far­ald­ur­inn hófst höfðu mörg lönd litla getu til að fram­kvæma skimanir. Fjölgun til­fella í mörgum Evr­ópu­löndum nú má því að hluta til skýra með því að fleiri séu próf­aðir nú heldur en í vor.

Önnur bylgja veirunnar hefur líka valdið usla í Suður-Kóreu og Ástralíu. Ísrael hefur hins­vegar farið hvað verst út úr annarri bylgj­unni með um 4000 ný til­felli á dag. Fyrir vikið taka harðar lok­anir gildi að nýju á morgun, sama dag og nýja árið hefst sam­kvæmt tíma­taldi gyð­inga, og munu þær gilda í minnst þrjár vikur.

Á Íslandi ríkja gild­andi tak­mark­anir vegna far­ald­urs­ins fram til 27. sept­em­ber og munu stjórn­völd end­ur­meta hvort unnt sé að aflétta þeim eftir því sem efni standa til. Haldi þróun mála áfram eins og verið hefur síð­ustu daga má telja lík­legt að ekki verði gefnar frek­ari til­slak­anir í bráð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ