Innlent„Í fullkomnum heimi þarf ekki siðanefndir“11. ágúst 2019 Megintilgangur nýrra siðareglna fyrir alþingismenn er að efla gagnsæi í störfum þingmanna og ábyrgðarskyldu þeirra, og jafnframt að efla tiltrú og traust almennings á Alþingi. Margir hafa þó efast um gildi siðareglna – sérstaklega í ljósi þess að erfitt hefur reynst að fá sátt um siðareglur og þá sérstaklega siðanefndir. Gríðarlega mikil umræða hefur sprottið upp í kjölfar nýlegra niðurstaðna forsætisnefndar þar sem hún féllst á álit siðanefndar í nokkrum umdeildum málum.
InnlentEkki sérstök viðbragðsáætlun vegna skotárása11. ágúst 2019 Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum (LSH) myndi viðbragðsáætlun sem þegar er í gildi og síðast var uppfærð í desember 2018 verða sett í gang ef alvarleg skotárás yrði gerð á Íslandi.
Innlent„Nokkuð viss um að ég er með Asberger“10. ágúst 2019 Birgitta Jónsdóttir hefur ekki verið áberandi í umræðunni síðan hún hætti á þingi haustið 2017. Á því varð þó breyting eftir yfirhalningu fyrrum samstarfsmanna á henni á fundi Pírata fyrir skömmu. Hún viðurkennir að þau ummæli hafi verið áfall, en hún vilji ekki fara niður á sama plan og þau með því að svara fyrir sig. Hún hafi lent í mun erfiðari raunum á lífsleiðinni og lært að takast á við sjálfa sig og áföllin.
InnlentSár verkfræðingur en sælir kaupsýslumenn10. ágúst 2019 Erlendir kaupsýslumenn höfðu ærna ástæða til að gleðjast í vikunni á meðan íslenskur verkfræðingur, sem stóð í málaferlum við HR, reið ekki feitum hesti.
InnlentÞað er líf eftir Hrúta10. ágúst 2019 Héraðið, ný íslensk kvikmynd Gríms Hákonarsonar verður frumsýnd næsta miðvikudag í bíóhúsum um allt land. Mannlífi náði tali af leikstjóranum sem viðurkennir að það sé pressa að fylgja eftir hinni margrómuðu mynd Hrútum. Auk þess hafi hann farið langt út fyrir þægindarammann við gerð þessarar nýjustu myndar sinnar sem er hans stærsta verkefni til þessa. Myndband
InnlentMikið af skotvopnum á Íslandi10. ágúst 2019 Þegar hugsað er til áhættu af alvarlegum skotárásum á Íslandi ber að hafa í huga að rúmlega 72.000 skotvopn eru skráð á Íslandi samkvæmt skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra frá 2015. Þar segir jafnframt að þessi vopn séu í eigu 27.249 einstaklinga. Jafnframt er vitað að fjöldi óskráðra vopna er í umferð. Samkvæmt úttekt sem gefin var út fyrir um ári síðan...
InnlentHefði getað farið illa10. ágúst 2019 Reyndur fjallgöngumaður sem villtist í þoku á Hornströndum kallar eftir að fjarskiptasamband þar verði bætt. Ferðamannastraumur hafi aukist á svæðinu og því sé tímaspursmál hvenær stórslys verði.
Innlent„Ólýsanleg tilfinning að sjá regnbogann alls staðar á lofti“9. ágúst 2019 Hinsegin dagar fagna 20 ára afmæli í ár. Gunnlaugur Bragi Björnsson, varaborgarfulltrúi og formaður Hinsegin daga, segir að af því tilefni og þess að 50 ár skuli vera liðin frá Stonewall-uppreisninni svokölluðu komi hátíðarhöldin í ár til með að verða umfangsmeiri en áður.
InnlentEkkert sérstakt lögreglueftirlit með öfgahópum á Íslandi9. ágúst 2019 Ekki er hægt að útiloka hættu á hryðjuverkum á Íslandi að mati greiningardeildar Embættis ríkislögreglustjóra. Lögreglu berast reglulega tilkynningar um menn sem dreifa öfgafullum hatursáróðri á samfélagsmiðlum en í grunninn er ekki fylgst sérstaklega með slíkum aðilum.
Innlent„Ber engan kala til þessa fólks“9. ágúst 2019 Birgitta Jónsdóttir segir það vissulega hafa verið áfall að hlusta á fyrrverandi samstarfsfólk úthúða sér á opinberum fundi en hún hafi tekist á við erfiðari hluti í lífinu og hafi ekki áhuga á að munnhöggvast opinberlega. Pólitík sé brútal vinnuumhverfi og þeir sem ekki geti tekið því endist ekki lengi.
InnlentLögreglan lýsir eftir Tómasi Má8. ágúst 2019 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Tómasi Má Sævarssyni, fæddum 93. Tómas er skolhærður, 1.74cm á hæð, klæddur í gráar joggingbuxur, gráa joggingpeysu sem er rennd að framan og í íþróttaskó.
MannlífiðLoka einnig Mikkeller og Systir8. ágúst 2019 Búið er að loka Mikkeller & Friends og Systir til viðbótar við Dill.