Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hefði getað farið illa

Reyndur fjall­göngu­maður sem villt­ist í þoku á Horn­ströndum kallar eftir að fjar­skipta­sam­band þar verði bætt. Ferða­manna­straumur hafi auk­ist á svæð­inu og því sé tíma­spurs­mál hvenær stór­slys verði.

Hefði getað farið illa

Benedikt Sig­urðs­son frá Bol­ung­ar­vík er þraut­reyndur fjall­göngu­maður og er að eigin sögn í „brjál­uðu formi“. Það kom þó ekki í veg fyrir að hann lenti í ógöngum í vik­unni þegar hann ásamt eig­in­konu sinni og vina­fólki lagði af stað í göngu frá Hrafns­firði yfir í Reykja­fjörð á norð­an­verðum Vest­fjörðum. „Þetta átti að vera fimm tíma skemmti­ganga um Horn­strandir,“ segir hann, en svarta­þoka olli því að hóp­ur­inn komst í sjálf­heldu og kalla þurfti út björg­un­ar­sveit til að koma fólk­inu til byggða. Í sam­tali við Mannlíf segir Benedikt að þetta hafi kennt honum að það sé aldrei of var­lega farið þrátt fyrir reynslu og þekk­ingu. „Þegar maður lendir í svona svarta­þoku að maður sér ekki nema rétt hend­urnar á sér, þá er maður í hel­víti vondum málum.“

Benedikt kallar eftir því að komið verði á tal­stöðv­ar­sam­bandi á svæði Horn­stranda en ferða­fólki hefur fjölgað mjög á þessum slóðum und­an­farin ár. „Ég fór þrí­vegis upp á fjöll í kring til þess að reyna að ná tal­stöðv­ar­sam­bandi en án árang­urs. Þetta er einskis­manns­land, fólk fer sjó­leið­ina og gengur svo á milli fjarða, eina leiðin til björg­unar er með bátum eða þyrlu,“ útskýrir hann og bætir við að illa hefði getað farið ef ein­hver í hópnum hefði slasast því ekki var hægt gefa upp nákvæma stað­setn­ingu í gegnum tal­stöð­ina. „Í fyrsta lagi hefði ekki verið hægt að koma við­kom­andi í öruggt skjól og í öðru lagi hefði þyrlan ekki getað lent vegna þoku. Björg­un­ar­fólk hefði þurft að koma á bátum og svo hefði þurft að fara fót­gang­andi án þess að vita nákvæma stað­setn­ingu. Það gæti tekið fleiri tíma og hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum ef ein­hver væri lífs­hættu­lega slas­aður. Það er hrika­lega vont að hafa ekki tal­stöðv­ar­sam­band þarna.“

„Það hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum ef ein­hver væri lífs­hættu­lega slas­aður. Það er hrika­lega vont að hafa ekki tal­stöðv­ar­sam­band þarna.“

Benedikt segir mik­il­vægt að setja upp end­ur­varpa á svæð­inu til að koma á tal­stöðv­ar­sam­bandi enda sé margt ferða­fólk þarna og aðstæður hrika­lega erf­iðar. „Það er stundum rosa­lega margt erlent ferða­fólk þarna, suma daga jafn­vel fleiri hund­ruð manns. Það ætti ekki að vera mikið mál að koma á tal­stöðv­ar­sam­bandi á svæð­inu.“

Ferðalag hóps­ins hófst með sigl­ingu frá Bol­ung­ar­vík yfir í Hrafns­fjörð þar sem ætl­unin var að hefja fimm tíma göng­una. „Leiðin yfir í Reykja­fjörð er ágæt­lega merkt nema á einum 5 km kafla þar sem er eng­inn slóði og við lentum akkúrat í þoku þar og fundum ekki réttu leið­ina. Áður en fórum af stað tók ég sem betur fer komp­ásmið stystu leið til baka frá Reykja­firði ef við skyldum vill­ast, sem betur fer. Við ákváðum að fara þessa leið sem síðan allt of erfið yfir­ferðar. Þess vegna töfð­umst við svona mikið og snerum að lokum við,“ útskýrir Benedikt.

Að sögn Bene­dikts er byrjað að stýra umferð inn á svæðið í ein­hverjum mæli. „Áður voru engin tak­mörk en nú fá ferða­skrif­stofur aðeins leyfi til að fara með ákveðið marga í hverjum hópi; 12-15 manns í einu, minnir mig. Þá ber þeim að láta vita af öllum ferðum og gefa upp leið­ar­lýs­ingu.“

Guð­brandur Örn Arnarson, verk­efna­stjóri aðgerða­mála hjá Slysa­varna­fé­lag­inu Lands­björgu, tekur undir að Horn­strandir séu erf­iðar viður­eignar þegar kemur að björg­un­ar­að­gerðum. „Við höfum séð aukn­ingu á verk­efnum á Horn­ströndum. Þar er um langan veg að fara og aðeins fært sjó­leið­ina eða þá með þyrlu. Ann­að­hvort er siglt yfir og síðan þurfa menn að ganga eða það er flogið með þyrlu og reynt að leysa verk­efnið þannig en það er ekki alltaf hægt vegna þoku, eins og í þessu til­felli,“ segir hann.„Það hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum ef ein­hver væri lífs­hættu­lega slas­aður. Það er hrika­lega vont að hafa ekki tal­stöðv­ar­sam­band þarna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina