Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Það er líf eftir Hrúta

Héraðið, ný íslensk kvik­mynd Gríms Hákon­ar­sonar verður frum­sýnd næsta mið­viku­dag í bíó­húsum um allt land. Mannlífi náði tali af leik­stjór­anum sem við­ur­kennir að það sé pressa að fylgja eftir hinni margróm­uðu mynd Hrútum. Auk þess hafi hann farið langt út fyrir þæg­ind­ara­mmann við gerð þess­arar nýj­ustu myndar sinnar sem er hans stærsta verk­efni til þessa.

Það er líf eftir Hrúta
Héraðið er ný mynd frá leik­stjór­anum Grími Hákon­ar­syni sem síð­ast

„Ég verð nú að játa að þótt maður hafi gert þetta oftar en einu sinni og alveg verið stress­aðri en núna, þá fær maður samt alltaf smá­fiðr­ing í mag­ann fyrir frum­sýn­ingu. Sér­stak­lega þegar maður er að fara að frum­sýna á Íslandi. Það er bara öðru­vísi til­finn­ing sem fylgir því að sýna mynd­irnar sínum nán­ustu en ein­hverjum blaða­mönnum og gagn­rýnendum úti í heimi. Álit vina og vanda­manna og bara Íslend­inga yfir­höfuð vegur ein­hvern veg­inn þyngra,“ segir Grímur, þegar hann er spurður að því hvort frum­sýn­ing­ar­skjálft­inn sé eitt­hvað far­inn að gera vart við sig.

Hann bætir við að það sé auð­vitað líka ákveðin pressa að fylgja eftir kvik­mynd eins og Hrútum, enda hafi hún notið vel­gengni þegar hún kom út árið 2015, bæði hlotið góða dóma og rakað til sín verð­launum um allan heim. Eðlilega séu ákveðnar vænt­ingar í gangi og hann sé með­vit­aður um það. „Já já, fólk á klár­lega eftir að bera Héraðið saman við Hrúta þrátt fyrir að þessar tvær myndir eigi nú eig­in­lega fátt sam­eig­in­legt fyrir utan það að þær skuli báðar ger­ast í sveit og bera mín höf­und­ar­ein­kenni. Hrútar var til dæmis fjöl­skyldu­saga með flókið bræðra­sam­band í for­grunni, á meðan Héraðið snýst um Ingu, mið­aldra kúa­bónda sem gerir upp­reisn gegn kaup­fé­lagi og er því hrein og bein sam­fé­lags­á­deila. Þetta eru bara mjög ólíkar myndir.“

„Ég skal alveg vera fyrstur manna til að við­ur­kenna að mínar eigin myndir hafa verið frekar karllægar hingað til. Ástæðan er bara sú að það er auð­veld­ara að skrifa um það sem maður þekkir.“

Fékk innblástur við lestur Heiðu fjalldalabónda

Héraðið segir Grímur enn fremur vera hetju­sögu konu sem rís upp gegn karllægu sam­fé­lagi en inn­blást­ur­inn að per­són­unni hafi meðal ann­ars verið fengin úr Heiðu – fjall­dala­bónda, sögu Stein­unnar Sig­urð­ar­dóttur um Heiðu Guðnýju Ásgeirs­dóttur sem valdi að ger­ast sauð­fjár­bóndi í stað þess að verða fyr­ir­sæta í New York. „Sú bók sýnir nefni­lega svo vel þær breyt­ingar sem hafa orðið á ímynd íslenskra bænda und­an­farin ár. Þegar talað var um bændur hér áður fyrr sá maður strax fyrir sér karla en það hefur breyst eftir að konur fóru að ganga í öll störf í sveit­inni og halda úti búum. Þar eru karl­leg við­horf og íhalds­söm gildi því ekki lengur alls­ráð­andi. Eig­in­lega má segja að viss kvenna­bylt­ing hafi átt sér stað. Mér fannst áhuga­vert að skoða það þegar ég skrif­aði hand­ritið að mynd­inni.“

Héraðið ger­ist í litlu sam­fé­lagi og segir sögu Ingu, kúa­bónda, sem gerir upp­reisn gegn kaup­fé­lag­inu á staðnum. Hún reynir að fá aðra bændur í lið með sér en það gengur erf­ið­lega þar sem kaup­fé­lagið hefur sterk ítök í sveit­inni.

Alls ekki barnanna bestur

Grímur segir þó fleira hafa ráðið val­inu á við­fangs­efni. Aukin umræða um rýrt hlut­skipti kven­per­sóna í íslenskum kvik­myndum hafi til dæmis haft áhrif. „Ég skal alveg vera fyrstur manna til að við­ur­kenna að mínar eigin myndir hafa verið frekar karllægar hingað til. Ég er því langt frá því að vera barn­anna bestur. Ástæðan er bara sú að það er auð­veld­ara að skrifa um það sem maður þekkir. Ég hugsa að það sé til dæmis ein helsta ástæðan fyrir því að við sjáum svona fáar kvik­myndir um konur á Íslandi. Bransinn hérna er bara svo karllægur. Mikill meiri­hluti félags­manna í Samtökum kvik­mynda­leik­stjóra eru karlar og þeir skrifa frekar út frá eigin reynslu­heimi, því sem þeir þekkja vel. Það segir sig ein­fald­lega sjálft að það er auð­veld­ara.“

Áskorun að gera mynd um konu

Hann segir að sjálfum hafi sér fund­ist það vera áskorun að bregða út af van­anum og gera mynd út frá sjón­ar­hóli konu. Hann hafi þurft að fara ansi langt út fyrir þæg­ind­ara­mmann. „Maður verður nátt­úr­lega hræddur um að gera þetta eitt­hvað vit­laust og útkoman verði ein­tóm klisja. En sem betur fer held ég að við sem komum að mynd­inni getum verið sátt við hvernig til tókst með per­són­una og hennar sögu, þótt ég segi sjálfur frá. Þær konur sem hafa séð hana eru að minnsta kosti nokkuð ánægðar,“ segir hann og þakkar það ekki síst leikkon­unni Arndísi Hrönn Egils­dóttur sem fer með hlut­verk bónd­ans Ingu í mynd­inni. „Já, það er óhætt að segja að Arndís hafi búið sig gríð­ar­lega vel undir hlut­verkið. Dvaldi meðal ann­ars á sveita­bæjum í tvær vikur til að læra réttu hand­tökin svo hún liti ekki út fyrir að vera „leik­kona að moka flór“, eins og hún orð­aði það sjálf. Hún lagði sig alla fram um að gera per­sónu Ingu sem trú­verð­ug­asta og á hrós skilið.“

Arndís Hrönn Egils­dóttir, sem hefur meðal ann­ars leikið í sjón­varps­þátt­unum Pressu og Föngum og í kvik­mynd­inni Þröstum, leikur Ingu í mynd­inni. Sigurður Sig­ur­jóns­son fer einnig með stórt hlut­verk, en hann lék einmitt í síð­ustu mynd Gríms, Hrútum.

Vissi ekki hvort hann myndi gera aðra leikna mynd

Héraðið er stærsta og dýrasta verk­efni Gríms til þessa, helm­ingi dýr­ari í fram­leiðslu en Hrútar sem hann seg­ist hafa gert á sínum tíma fyrir lít­inn pen­ing, nán­ast ein­göngu fyrir styrk frá Kvik­mynda­sjóði. Í þetta sinn hafi feng­ist meira fjár­magn, líka erlendis frá sem varð til þess að meiri tími gafst til að gera mynd­ina og það hafi eðli­lega kostað sitt. „Já, það er gaman að segja frá því að vel­gengni Hrúta hjálp­aði til við að fá pen­ing­ana sem er frá­bært þar sem ég vissi hrein­lega ekki hvort ég myndi gera fleiri leiknar myndir. Fyrstu leiknu mynd­inni minni, Sum­ar­land­inu, var nefni­lega ekk­ert allt of vel tekið og ég vissi að Hrútum þyrfti því að ganga vel svo ég fengi fjár­magn til að gera þá næstu. Gott gengi Hrúta breytti því miklu fyrir mig sem kvik­mynda­gerð­ar­mann og í raun alla sem komu að þeirri mynd. Án hennar hefði Héraðið hugs­an­lega aldrei orðið að veru­leika.“

Þegar seld til yfir 30 landa
Ljóst er að heil­mikil eft­ir­vænt­ing er fyrir Héraðinu því myndin hefur þegar verið seld til yfir 30 landa og kemur til með að verða sýnd í kvik­mynda­húsum víðs­vegar um Evrópu með haustinu. Að mati Gríms segir það ýmis­legt um mynd­ina að fyr­ir­tæki um alla Evrópu skuli vilja kaupa hana. „Já, það sýnir ein­fald­lega að fólk hefur trú á henni,“ segir hann. „Hins vegar á alveg eftir að koma í ljós hvernig áhorf­endur og gagn­rýnendur taka henni. Það er ekk­ert sjálf­gefið að þeir muni fíla hana þótt fyr­ir­tækin geri það. Og þótt mynd fá til dæmis góða umfjöllun hér heima er ekki þar með sagt að hún fái góða dóma erlendis og öfugt. Hrútum var vel tekið bæði hér heima og erlendis, sem er nokkuð sjald­gæft. Það er í raun alltaf ákveðin óvissa og spenna í kringum mynd­irnar manns. Maður verður eig­in­lega bara að krossa fingur og vona það besta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ