Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ekkert sérstakt lögreglueftirlit með öfgahópum á Íslandi

Ekki er hægt að úti­loka hættu á hryðju­verkum á Íslandi að mati grein­ing­ar­deildar Embættis rík­is­lög­reglu­stjóra. Lögreglu ber­ast reglu­lega til­kynn­ingar um menn sem dreifa öfga­fullum hat­ursá­róðri á sam­fé­lags­miðlum en í grunn­inn er ekki fylgst sér­stak­lega með slíkum aðilum.

Ekkert sérstakt lögreglueftirlit með öfgahópum á Íslandi
Mynd / Hákon Davíð Björns­son|

Alvar­legar skotárásir í Banda­ríkj­unum og raunar víðar hafa færst mjög í aukanna undan farin ár og í flestum til­fellum eru árás­ar­menn­irnir hvítir karlar sem lýst hafa á sam­fé­lags­miðlum öfga­fullum skoð­unum, meðal ann­ars í garð inn­flytj­enda og ann­arra minni­hluta­hópa. Um síð­ustu helgi bár­ust fréttir af tveimur slíkum árásum með aðeins 13 klukku­stunda milli­bili sem sam­tals kost­uðu 31 mann lífið en í þeim særð­ust 50 að auki. Annars vegar í ver­sun Walmart í El Paso í Texas, þar sem 22 lét­ust og hins vegar í Dayt­on í Ohio, þar sem níu manns voru skotnir til bana fyrir utan bar.

Í mars fyrr á þessu ári myrti Brenton Tarrant 51 mann í skotárás á tvær moskur í Christchurch á Nýja- Sjálandi og Norð­mönnum er enn í fersku minni þegar Anders Behring Breivik myrti 79 manns í Útey og mið­borg Óslóar 22. júlí 2011 vegna hat­urs hans á inn­flytj­endum. Dæmi um slík hryðju­verk eru mörg og þau ger­ast víða. Þótt almenn­ingur á Íslandi vilji sjálf­sagt ekki hugsa þá hugsun til enda þá gætu sams­konar óhæfu­verk allt eins verið framin hér­lendis.

Lögreglan horfir til Norðurlanda

Ásgeir Karlsson, hjá grein­ing­ar­deild Embættis rík­is­lög­reglu­stjóra, segir nauð­syn­legt að á Íslandi sé tekið mið af við­bún­aði við hryðju­verkum sem tíðkast ann­ars staðar á Norð­ur­löndum, en það felst meðal ann­ars í því að veita lög­reglu­yf­ir­völdum sam­bæri­legar heim­ildir á sviði hryðju­verka­varna og gert er í nágranna­ríkjum, en jafn­framt að tryggja fullt eft­ir­lit Alþingis og dóm­stóla með slíkum heim­ildum.

Ásgeir Karlsson, hjá grein­ing­ar­deild Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra.

„Við gerum áhættu­möt og ég veit að sér­sveitin tekur til­lit til þeirra og æfir taktík út frá því sem þar kemur fram. Ég vil kalla þetta fyr­ir­byggj­andi aðgerðir. Það er gott fyrir alla að við búum í öruggu sam­fé­lagi,“ segir Ásgeir og bendir á að í mati rík­is­lög­reglu­stjóra á hættu af hryðju­verkum sem gefið var úr fyrir tveimur árum hafi ýmsar spár orðið að veru­leika.

„Þó að lög­reglan sjálf sé ekki að vakta þetta þá er almenn­ingur bara svo með­vit­aður um þessi mál að hann kemur þessu á fram­færi við okkur.“

Í mat­inu segir að Evr­ópu­lög­reglan sjái fram á að umræður á sam­fé­lags­miðlum muni í vax­andi mæli ein­kenn­ast af gíf­ur­yrðum og hat­urs­orð­ræðu. Evr­ópu­lög­reglan segi að ógnin geti lýst sér í ofbeld­is­verkum ein­stak­linga og hópa og nefni að í fram­tíð­inni kunni lík­ams­árásum, íkveikjum og alvar­legri verkn­uðum þar með talið morðum að fjölga. „Enn fremur kunni ein­stak­lingar, stjórn­mála­flokkar, fjöl­miðlar og mann­rétt­inda­sam­tök sem and­mæla mál­flutn­ingi öfga­hópa að verða fórn­ar­lömb hat­ursá­róð­urs og hvatn­ingar til ofbeld­is­verka.“

Ekki hægt að útiloka hættu á hryðjuverkum á Íslandi

Á grund­velli þeirra upp­lýs­inga sem fyrir liggja og greint er frá í mat­inu er nið­ur­staða grein­ing­ar­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra sú að hættu­stig á Íslandi er metið í með­al­lagi en það er skil­greint þannig að almennt sé „talið að ekki sé hægt að úti­loka hættu á hryðju­verkum vegna ástands inn­an­lands eða í heims­málum“.

„Almenningur kemur þessu á framfæri við okkur“

Spurður hvort lög­reglan vakti sér­stak­lega aðila sem dreifa öfga­fullum hat­ursá­róðri á sam­skipta­miðlum neitar Ásgeir því en bendir á að lög­regl­unni ber­ist reglu­lega til­kynn­ingar um slíkt frá almenn­ingi. „Varðandi ofbeld­is­fullan áróður þá er það sem betur fer þannig að almenn­ingur er oft og tíðum að koma á fram­færi upp­lýs­ingum til lög­reglu,“ segir hann. „Þó að lög­reglan sjálf sé ekki að vakta þetta þá er almenn­ingur bara svo með­vit­aður um þessi mál að hann kemur þessu á fram­færi við okkur. Þeim er fylgt eftir ef ástæða þykir til.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina