InnlentGaman að syngja með fjölskyldunni4. janúar 2019 Hinir árlegu Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands verða haldnir 10.-12. janúar undir stjórn danska hljómsveitarstjórans Christian Kluxen. Tveir einsöngvarar koma fram og flytja tvær aríur hvor í sínu lagi og tvo dúetta. Það eru þau Hrafnhildur Árnadóttir Hafstað sópransöngkona og Sveinn Dúa Hjörleifsson tenór. Eins og venja er má búast við glitrandi kjólum, að hljómsveitarmeðlimir setji á sig hatta og dansarar munu skreyta rýmið.
InnlentGert á skoplegan og ýktan Chaplin-ískan hátt29. desember 2018 Þjóðleikhúsið frumsýndi á annan í jólum Einræðisherrann eftir Charlie Chaplin. Sigurður Sigurjónsson verður í aðalhlutverkunum – annars vegar í hlutverki flækingsins og hins vegar í hlutverki Hinkels (Hitlers) en flækingurinn verður einræðisherra fyrir röð mistaka þar sem þeir Hinkel eru svo líkir. Sigurður segir að þótt viðfangsefnið sé um þá skelfilegu hluti sem tengjast síðari heimsstyrjöldinni þá sé þetta gert...
InnlentValinn af Andrew Lloyd Webber í hlutverk Óperudraugsins28. desember 2018 Garðar Thór Cortes hefur ekki verið mikið í fréttum á Íslandi undanfarin ár en það þýðir þó engan veginn að hann hafi setið auðum höndum. Hann hefur verið að syngja aðalhlutverkið í söngleik Andrews Lloyd Webber, Love Never Dies, víða um Evrópu og túrað með söngleiknum um Bandaríkin. Og það sem meira er, Lloyd Webber handvaldi hann sjálfur í hlutverkið.
InnlentSjarmerandi illvirki og ógeð27. desember 2018 Borgarleikhúsið frumsýnir Ríkharð III eftir Shakespeare laugardaginn 29. desember og fer Hjörtur Jóhann Jónsson með hlutverk hans en um er að ræða eitt stærsta karlhlutverk leiklistarsögunnar.
InnlentEftirlæti Andrews Lloyd Webber27. desember 2018 Andrew Lloyd Webber heyrði Garðar Thór Cortes syngja í fyrsta sinn fyrir rúmum þremur árum og bókaði hann á staðnum til að fara með hlutverk Óperudraugsins í Love Never Dies. Garðar prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs Mannlífs sem kemur út á morgun.
Innlent„Bara rosalega þakklát og stolt líka“17. desember 2018 Ásta Hafþórsdóttir leikgervahönnuður hefur verið að gera það gott í Noregi síðustu ár og unnið þar að hverju stórverkefninu á fætur öðru. Fram undan eru ýmis spennandi verkefni.
Fólk„Álfar eru ekki síður spennandi en draugar“15. desember 2018 Í bókinni Krossgötur fjalla Bryndís Björgvinsdóttir, þjóðfræðingur og rithöfundur, og Svala Ragnarsdóttir heimildaljósmyndari um álfatrú, álfabyggðir og aðra bannhelga staði á Íslandi, en við slíkum stöðum megum við mannfólkið ekki hrófla samkvæmt þjóðtrúnni. Bókin er einnig ljósmyndaverk þar sem Svala myndaði alla þá 54 staði sem fjallað er um í verkinu.
InnlentRáðin framkvæmdastjóri þjóðarhljómsveitar Kanada15. desember 2018 Arna Kristín Einarsdóttir, sem hefur verið framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands undanfarin ár, hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri Þjóðarhljómsveitar Kanada, National Arts Centre Orchestra, og hefur hún störf með vorinu.
InnlentRígheldur í jólakortahefðina12. desember 2018 Margrét Eir Hönnudóttir, söngkona, leikkona og kennari, segir mikilvægt að slaka aðeins á og njóta aðventunnar og jólanna. Hún heldur í ýmsar gamlar hefðir á þessum tíma og síðustu þrjú ár hefur tónleikahald bæst við. Tónleikar hennar verða í Fríkirkjunni í Hafnarfirði þann 14. desember klukkan 20.
Innlent„Sýni hver vændiskonan raunverulega er“9. desember 2018 Guðrún Sigríður Sæmundsen, viðskiptafræðingur og rithöfundur, sendir frá sér skáldsöguna Andstæður nú fyrir jólin. Bókin fjallar um vændi og Guðrún fór í heilmikla rannsóknarvinnu við skrif hennar. Útkoman er raunsönn mynd af reynslu kvenna í þessum heimi.
InnlentHeillaðist af rómantískum hugmyndum um ábyrgðarlítið líf9. desember 2018 Hafliði Helgason, upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins, kann sannarlega að meta góðar bókmenntir og Mannlíf kom því ekki að tómum kofanum þegar það bað Hafliða um að nefna þær bækur sem hafa haft einna mest áhrif á hann.
Innlent„Skrýtið og skemmtilegt að sjá sjálfa sig á hvíta tjaldinu“8. desember 2018 Halla Þórðardóttir fer með hlutverk í kvikmyndinni Suspiria sem var frumsýnd í Bíó Paradís í vikunni. Þetta er fyrsta hlutverk hennar á hvíta tjaldinu og segir Halla sem fer með hlutverk dansara að það hafi verið lærdómsríkt að leika á móti stjörnum eins og Tildu Swinton og Dakotu Johnson. Myndband