Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Bara rosalega þakklát og stolt líka“

Ásta Haf­þórs­dóttir leik­gerva­hönn­uður hefur verið að gera það gott í Noregi síð­ustu ár og unnið þar að hverju stór­verk­efn­inu á fætur öðru. Fram undan eru ýmis spenn­andi verk­efni.

„Bara rosalega þakklát og stolt líka“
|

Eins og fram hefur komið í fjöl­miðlum er stór­fram­leið­and­inn HBO Nordic um þessar mundir að vinna að nýrri spennu­þátta­röð með Ágústu Evu Erlends­dóttur og Jóhann­esi Hauki Jóhanns­syni, sem kall­ast Befor­eigners (Frem­vand­rerne). Þetta er ein umfangs­mesta sjón­varps­fram­leiðsla sem Norðmenn hafa ráð­ist í en þau Ágústa Eva og Jóhannes Haukur eru ekki einu Íslend­ing­arnir sem koma að verk­inu því Ásta Haf­þórs­dóttir leik­gerva­hönn­uður vinnur að þátt­unum og í sam­tali við Mannlíf segir hún að hún hafi verið hvort tveggja í senn skap­andi og krefj­andi ferli.

„Þetta eru nátt­úr­lega 120 leik­arar og 2000 auka­leik­arar, þannig að getur rétt ímyndað þér það,“ segir hún og hlær. „Fyrir utan það þá koma per­sónur þátt­anna frá mis­mun­andi tíma­bilum, alveg frá stein­öld til dags­ins í dag og þ.a.l. liggur heil­mikil heim­ilda­vinna á bak­við útlit hverrar per­sónu,“ bætir hún við en í þátt­unum leika Jóhannes Haukur og Ágústa Eva vík­inga sem skjóta skyndi­lega upp koll­inum í Noregi nútím­ans og í kjöl­farið kemur í ljós að þau eru tíma­flakk­arar.

Þetta eru nátt­úr­lega 120 leik­arar og 2000 auka­leik­arar, þannig að getur rétt ímyndað þér það

„Í fram­rás þátt­ana aðlag­ast þau, og fleiri per­sónur sem koma úr for­tíð­inni, sam­fé­lagi nútím­ans og einn hluti af minni vinnu var að sýna mynd­rænt hvernig það ger­ist, með breyt­ingum á útliti,“ útskýrir Ásta.

Orðuð við Óskarinn

Befor­eigners er ekki fyrsta stór­verk­efnið sem Ásta kemur nálægt því hún á að baki langan og far­sælan feril í kvik­mynda­brans­anum, bæði hér á Íslandi og í Noregi þar sem hún hefur verið búsett frá árinu 2010. Hún segir að á þeim tíma séu verk­efnin í Noregi mörg hver búin að vera skemmti­leg og auk þess mjög ólík, allt frá ævin­týra­myndum fyrir börn upp í stór­slysa­myndir (Bølgen/The Wave og Skjelvet). Eig­in­lega sé erfitt að gera upp á milli þeirra en ef hún eigi að nefna til­tekin verk­efni sem standi upp úr þá séu það einna helst tvö.

Annars vegar Netflix-vík­inga-þætt­irnir Norsemen, vegna þess hversu mikla vinna þurfti að leggja í útlit per­són­anna þrátt fyrir lítið fjár­magn, sem hafi verið gríð­ar­leg áskorun. Hins vegar seinni heims­styrj­aldar kvik­myndin The 12th Man (Den 12. Mann) þar sem aðal­per­sónan, maður á flótta undan nas­istum, missir m.a. fingur og tær og létt­ist um heil 20 kíló sem þurfti allt að leys­ast með sminki.

Stilla út Netflix-þátt­unum Norsemen.

„Ætli The 12th Man sé ekki skemmti­leg­asta og mest krefj­andi verk­efni sem ég hef nokkurn tím­ann tekið mér fyrir hendur,“ segir hún en þess má geta að myndin hefur hlotið góða dóma víða erlendis og hefur Ásta verið orðuð við til­nefn­ingu til Ósk­arsverð­launa fyrir sinn hlut. Hvort sem af verður eða ekki segir hún það vera mik­inn heiður, eig­in­lega alveg magnað bara það eitt að hún skuli koma til greina. „Ég er bara rosa­lega þakk­lát fyrir það og stolt líka.“

Saknar vina og vandamanna á Íslandi

Aðspurð hvað hafi orðið til þess að hún flutti til Noregs á sínum tíma svarar Ásta að rétt eftir hrun hafi sér boð­ist vinna þar við sjón­varps­þætti sem til stóð að taka í fimm mán­uði og hún hafi ákveðið að láta slag standa. Upp úr því sé hún búin að hafa nóg að gera enda þyki hún fær á sínu sviði og svo hafi hún ein­fald­lega verið „á réttum stað á réttum tíma“ þegar góð tæki­færi buð­ust sem hafi opnað enn fleiri dyr í brans­anum.

Síðustu ár sé búið að vera brjálað að gera og nú sé tími til kom­inn að slaka aðeins á og njóta árang­urs­ins, velja verk­efnin vel og gefa sér meiri tíma í þau. Nokkur spenn­andi verk séu fram undan, m.a. vinna við for­leik (prequel) Norsemen og end­ur­gerð hinnar róm­uðu myndar The Emmigrants (Utvand­rarna, 1971). Þess utan seg­ist Ásta ætla að finna stund milli stríða til að sinna betur upp­bygg­ingu eigin fyr­ir­tækis, Makeup design studio (www.makeupdesignstudio.no) sem hún á og rekur ásamt hægri hönd sinni Dimitru Drakopoulo.

En saknar hún þess aldrei að búa og starfa á Íslandi? „Jú, ég sakna vina minna og fjöl­skyldu mikið, þ.m.t. „bíó-fjöl­skyld­unnar“, sem ég vann með í fimmtán ár og fyrstu árin var ég alltaf á leið­inni heim. En svo eign­að­ist ég tví­bura og gat ekki hugsað mér að vera ein­stæð móðir í brans­anum heima. Vinnu­um­hverfið hér úti er bara hent­ugra, ég þarf t.d. ekki að vera verk­taki heldur get ég verið laun­þegi sem felur í sér mikið öryggi, vinnu­dag­arnir eru styttri og launin betri,“ segir hún en tekur fram Íslend­ingar séu hins vegar meiri atvinnu­menn en Norðmenn á sumum sviðum, m.a. þegar kemur að aðbún­aði starfs­manna.

Í augna­blik­inu er fremur ólík­legt að ég snúi heim.

„Ég þurfti t.d. að setja það sem skil­yrði fyrir þessu verk­efni sem ég er í núna að ég fengi smink-rútu,“ segir hún. „Svo­leiðis er ekki til í Noregi.“

Ertu þá alveg búin að skjóta rótum þarna úti? „Ja maður veit nátt­úr­lega aldrei hvað ger­ist en í augna­blik­inu er fremur ólík­legt að ég snúi heim. Mér sýn­ist ástandið vera erfitt fyrir marga á Íslandi,“ segir hún en kveðst svo allt eins til í að prófa að búa á ein­hverjum heit­ari stað. „Ég er alltaf að skoða þá mögu­leika.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð