InnlentAlls ekkert fyrir aumingja23. febrúar 2019 6.750 krónur á mánuði. 80.000 á ári. Jafnvel 200.000 ef þú átt börn. Þetta kallar ríkisstjórnin aðgerðir til kjarabóta fyrir þá sem eru á lægstu laununum. Launum sem reyndar eru langt undir framfærsluviðmiðum og allir vita að ekki er hægt að framfleyta sér á. 80.000 á ári. Það eru þriggja daga laun alþingismanns, nær ekki einu sinni dagslaunum bankastjóra. En nógu gott fyrir aumingjana, greinilega. Þeir eiga bara að bukta sig og þakka.
InnlentJarðamógullinn fyrir austan flytur til Mónakó23. febrúar 2019 Jim Ratcliffe, auðkýfingurinn sem keypt hefur fjölda jarða á Austurlandi, ætlar að flytja frá Bretlandi til Mónakó sem gerir honum kleyft að spara andvirði hundruð milljarða króna í skattgreiðslur. Þetta útspil hans hefur verið harðlega gagnrýnt í ljósi þess að hann var einn helsti stuðningsmaður þess að Bretland gengi úr Evrópusambandinu.
SkoðunSólveig JónsdóttirRáðuneyti skugganna20. febrúar 2019 Síðast en ekki síst Líklega er ég ekki ein um að leiða hugann að stjórnmálum í Bretlandi þessa dagana. Um þau má hugsa út frá ótal sjónarhornum, hvort heldur sem er frá alþjóðlegum vinkli eða hvaða þýðingar nýjustu vendingar koma til með að hafa innanlands. Sjálf hef ég líka velt því fyrir mér hvort Theresa May og eiginmaður hennar skipti...
HeimurEinstæð móðir geldur andstöðuna við Pútín dýru verði17. febrúar 2019 Anastasia Shevchenko, einstæð þriggja barna móðir, er fyrsta manneskjan í Rússlandi sem sætir ákæru á grundvelli alræmdra laga um „óæskileg samtök“. Mál Anastasiu er enn ein birtingarmyndin í linnulausri herferð Vladímírs Pútín og stjórnvalda í Kreml gegn tjáningarfrelsi í landinu.
HeimurNýr grænn sáttmáli – minni ójöfnuður og endurnýjanleg orka14. febrúar 2019 Bandaríska þingkonan Alexandria Ocasio-Cortez heldur áfram að sýna pólitískt hugrekki. Á stuttum tíma hefur hún orðið svo gott sem heimsfræg og nýtur mikilla vinsælda, einkum meðal ungs fólks í Bandaríkjunum. Skal engan undra, enda fer hugrekki og alþýðleiki hennar saman við pólitíska innistæðu sem sést meðal annars með framlagningu hennar á ályktun um Grænan nýjan sáttmála eða „Green New Deal“ í samstarfi við Edward Markey.
InnlentHefur hlustað of mikið á Útvarp Sögu10. febrúar 2019 Í hverju tölublaði tiltekur Mannlíf þá aðila sem átt hafa góða viku og slæma viku. Jón Gunnarsson, ekki samgönguráðherra, er sigurvegari vikunnar sem senn er á enda en Páll Óskar hefur átt betri vikur.
InnlentAðstoðarmenn teknir til starfa9. febrúar 2019 Sex þingflokkar af átta hafa gengið frá ráðningu aðstoðarmanna. Áætlaður kostnaður við fjölgun aðstoðarmanna í ár nemur 120 milljónum króna.
InnlentFlokkarnir njóta líka góðærisins8. febrúar 2019 Rekstrarumhverfi stjórnmálaflokka hefur gjörbreyst á undanförnum tveimur árum eftir að framlög til þeirra úr ríkissjóði hafa meira en tvöfaldast á tveimur árum. Á sama tíma hafa framlög einkaaðila farið hækkandi. Auk þess að fjölga í starfsliðinu þurfa flokkarnir sömuleiðis að grynnka á skuldum sem í einhverjum tilfellum eru langt umfram eignir þeirra.
InnlentMiðflokkurinn orðinn fjórða hjól ríkisstjórnarinnar?7. febrúar 2019 Athyglisverðar sviptingar hafa átt sér stað undanfarna daga á Alþingi. Bergþór Ólason, einn af Klaustursliðum er hættur sem formaður umhverfis-og samgöngunefndar og í staðinn er kominn Jón Gunnarsson, þingmaður sjálfstæðisflokksins. Reyndar neitaði hann fyrir að hann væri næsti formaður nefndarinnar í gær, þó annað hafi komið á daginn í morgun.
FólkKlausturmáliðBergþór Ólason stígur til hliðar7. febrúar 2019 Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, hefur ákveðið að láta af formennsku í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Þetta segir í fréttatilkynningu frá Vinstrihreyfingunni – grænu framboði, Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum. Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins mun taka við sem formaður tímabundið. Fréttatilkynningin í heild sinni: „Umhverfis- og samgöngunefnd hefur nú verið óstarfhæf um tíma og hefur það truflar störf Alþingis. Ekki hefur verið fundað...
InnlentGamlir menn með ómissandi skoðanir6. febrúar 2019 Eva H. Baldursdóttir skrifar um afl gamla hvíta mannsins í pólitík í sínum nýjasta pistli.
InnlentReykjavíkurborgHverfið mitt5. febrúar 2019 SKOÐUN eftir Kolbrúnu Baldursdottir Nýlega kom út skýrsla átakshóps um aðgerðir til að bæta stöðu á húsnæðismarkaði og leiðir til að auka framboð á íbúðum í Reykjavík. Í skýrslunni eru fjölmargar góðar tillögur og margt gagnlegt kemur þar fram. Í skýrslunni er þó ekki sérstaklega fjallað um félagslega blöndun og mikilvægi þess að í hverfum séu fjölbreyttar gerðir húsnæðis á ólíku verðbili.