Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Jarðamógullinn fyrir austan flytur til Mónakó

Jim Ratcliffe, auð­kýf­ing­ur­inn sem keypt hefur fjölda jarða á Aust­ur­landi, ætlar að flytja frá Bret­landi til Mónakó sem gerir honum kleyft að spara and­virði hund­ruð millj­arða króna í skatt­greiðslur. Þetta útspil hans hefur verið harð­lega gagn­rýnt í ljósi þess að hann var einn helsti stuðn­ings­maður þess að Bretland gengi úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Jarðamógullinn fyrir austan flytur til Mónakó
Jim Ratcliffe

The Sunday Times greindi frá því á dög­unum að Ratcliffe, stofn­andi efna­vinnslu­fyr­ir­tæk­is­ins Ineos og rík­asti maður Bret­lands, hafi í sam­ráði við end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækið PricewaterhouseCoopers (PwC) á und­an­förnum mán­uðum und­ir­búið flutn­ing hans og Ineos til Mónakó. Slíkur flutn­ingur gæti sparað Ratcliffe og Ineos, sem metið er á 35 millj­arða punda, marga millj­arða í skatt­greiðslur af alþjóð­legum tekjum fyr­ir­tæk­is­ins. Tveir stórir hlut­hafar í Ineos, Andy Currie og John Reece, sem hvor um sig á 20 pró­senta hlut gegn 60 pró­senta hlut Ratcliffes, eru einnig sagðir ætla að flytj­ast til Mónakó. Samkvæmt breskum fjöl­miðlum munu þessir þrír ein­stak­lingar spara sér and­virði að minnsta kosti 68 millj­örðum króna í greiðslur til hins opin­bera með flutn­ingnum.

Þessi vend­ing þarf í sjálfu sér ekki að koma á óvart í ljósi sög­unnar, því árið 2010 flutti Ratcliffe höf­uð­stöðvar Ineos til Sviss eftir deilur við skatta­yf­ir­völd. Margir hafa stigið fram og gagn­rýnt þessar fyr­ir­ætl­anir því áætlað heild­ar­tap breskra skatta­yf­ir­valda hleypur á millj­örðum punda. „Ég er furðu lost­inn því þetta er einn hinna ofur-ríku. Við erum ekki að tala um ein­hvern sem er á von­ar­völ. Fyrir hvert penný sem for­aðað er undan skatti, hvað þýðir það? Það þýðir í raun að NHS [breska heil­brigð­is­stofn­unin] getur ekki sinnt sjúk­lingum sínum eins vel og hægt er, að börnin okkar njóta ekki fullrar fjár­fest­ingar í menntun og það þýðir minna öryggi fyrir okkur hin á götum úti,“ segir John McDonnell, þing­maður Verka­manna­flokks­ins.

Reiði fólks hefur einnig beinst að PricewaterhouseCoopers sem hannað hefur umrædda skattaund­an­skota­á­ætlun. Árið 2017 greiddi Ineos 5,1 milljón punda til PwC og 5,8 millj­ónir punda árið þar áður. Stór hluti þess var fyrir skatta­ráð­gjöf. Samkæmt Sunday Times mun það hafa komið til tals innan PwC að áætlun Ratcliffe gæti skaðað orð­spor fyr­ir­tæk­is­ins og íhug­aði fyr­ir­tækið að ganga frá borði, en tals­maður fyr­ir­tæk­is­ins hefur hafnað því.

Hefur keypt á fimmta tug jarða

Jim Ratcliffe hefur keypt á fimmta tug jarða á Norð­aust­ur­landi und­an­farin ár, meðal ann­ars í Vopna­firði, Þistil­firði og Gríms­staði á Fjöllum. Í gegnum fjár­fest­ingar sínar hefur hann fengið yfir­ráð á nokkrum af gjöf­ul­ustu lax­veiðiám lands­ins auk ann­arra rétt­inda sem fylgja jörð­unum. Skiptar skoð­anir eru um fyr­ir­ætl­anir auð­kýf­ings­ins. Sumir leggja trú á orð auð­kýf­ings­ins um að hann vilji vernda og byggja upp lax­veiðiár á meðan aðrir gruna að eitt­hvað annað og stærra búi að baki.

Uggandi íbúar vilja sundlaug

Í Vopna­firði og nágrenni, þar sem Ratcliffe hefur verið hvað ötulastur í jarða­kaupum, hafa komið upp kröfur um að auð­kýf­ingur leggi eitt­hvað til sam­fé­lags­ins enda jarð­irnar í eigu hluta­fé­laga sem ein­göngu greiða fast­eigna­skatta en ekk­ert útsvar. Flest félögin eru skrá­sett í Lúx­em­borg. Til að mynda hafa íbúar lagt til að Ratcliffe gefi sveit­ar­fé­lag­inu sund­laug enda engin slík til staðar í Vopna­fjarð­ar­hreppi.

Talsmenn Brexit flýja Bretland

Flutn­ingur Ratcliffes til Mónakó þykir ekki síst kald­hæðn­is­legur í ljósi þess að hann var einn helstu stuðn­ings­manna útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu. Þarna er Ratcliffe reyndar ekki einn á báti því margir úr hópi þeirra iðn­jöfra sem töl­uðu mjög fyrir Brexit hafa látið sig hverfa frá Bret­landi eftir að nið­ur­staðan varð ljós. James Dyson flutti höf­uð­stöðvar síns fyr­ir­tækis til Singapúr, Nigel Lawson sem var for­maður Vote Leave hóps­ins sótti um dval­ar­leyfi í Frakk­landi og fjár­fest­inga­stjóður Jacobs Rees-Mogg, sem er einn harð­asti tals­maður Íhalds­flokks­ins í Brexit-málum, opn­aði starfs­stöð í Dublin.

Í fararbroddi mengandi iðanaðar

Efna­vinnslu­fyr­ir­tæki Ratcliffes, Ineos, hefur verið í far­ar­broddi þeirra sem þrýsta á rík­is­stjórn Bret­lands um að afnema álögur sem lagðar hafa verið meng­andi iðnað í því skyni að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Að sama skapi hefur Ratcliffe haft uppi stór­huga hug­myndir um berg­brot (e.fracking) til vinnslu jarð­efna­elds­neytis í Bret­landi. Þær áætl­anir hafa ekki gengið eftir, meðal ann­ars vegna strangra reglna um berg­brot. Ratcliffe hefur barist hart fyrir því að þær reglur verði rýmkaðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð