Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ómar birtir Rússabrandara Reagans sem Baddi Jún sagði fyrst: „Meira bullið hjá ykkur kommunum“

Ómar Ragnarsson veltir fyrir sér bröndurum sem Ronald Reagan safnaði um Rússa á tímum kalda­stríðsins, í skemmtilegri blogg­færslu.

Gleði­gjafinn og fjölmiðla­maðurinn Ómar Ragnarsson skrifaði blogg­færslu þar sem hann talar um Ronald Reagan, fyrrum Bandaríkja­forseta og yndi hans af bröndurum og þá sérstak­lega Rússa­bröndurum. Endar hann svo færsluna á einum góðum frá Reagan þar sem skotið er á Kommúnista, nema hvað. Reyndar heyrði hann brand­arann fyrst hjá Björgvini Júníussyni fyrir Norðan um árið.

„Ronald Reagan Bandaríkja­forseti hafði yndi af bröndurum og safnaði þeim í sérstaka bók fyrir sig.

Suma þeirra má sjá og heyra á Youtube.

Ein tegund brand­aranna voru um samtöl og samanburð milli Bandaríkja­manna og Rússa, sem voru auðvitað allir á kostnað Rússa, en sumir þeirra sagðir gerðir af Rússum sjálfum til þess að draga úr döprum hugsunum þeirra vegna kúgunarinnar í gamla Sovétinu.

Þegar síðuhafi frétti fyrst af Rússa­bröndurum Reagans rak hann í rogastans, því að þarna voru aftur­gengnir brandarar sem Akureyrski grín­istinn, töfra­maðurinn og uppi­standarinn Björgvin Júníusson hafði farið með fyrir norðan á undan Reagan.

Svona­lagað er svosem ekkert nýtt, því að íslensku Hafnar­fjarðar­brand­ararnir voru endur­gerðir danskir Álaborgar­brandarar, sem aftur voru þar áður voru Pólverja­brandarar.

Hér er einn af Rússa­bröndurum Badda Jún, eins og hann var alltaf kallaður fyrir norðan.

KANINN:

Það er nú meira bullið hjá ykkur kommunum að halda því fram hvað þjóð­skipulagið ykkar sé gott.

RÚSSINN:

Þetta er alrangt hjá þér. Við erum mun kristnari en þið, því að hugsunin í komúnunum í kristninni svín­virkar hjá okkur, en þið eruð svo miklir hræsnarar, að þið hugsið bara um eigið rassgat.

KANINN: Ætlarðu að segja mér að ef þú ættir tvo bíla en náungi þinn engan, þá myndir þú gefa náunga þínum annan bílinn þinn?

RÚSSINN:  Já, ég myndi gera það.

KANINN:

Og ef þú ættir tvö sjónvarps­tæki, myndirðu gefa náunga þínum annað þeirra?

RÚSSINN:

Já, alveg eins og skot.

KANINN:

Og ef þú ættir tvo kæliskápa og náungi þinn engan, myndurðu gefa honum annan kælis­skápinn þinn?

RÚSSINN: Já, án þess að hugsa mig um.

KANINN:  Og ef þú ættir tvær skyrtur en hann enga, myndrðu gefa honum aðra skyrtuna þína?

RÚSSINN:  Nei, ég myndi ekki gera það.

KANINN: Af hverju ekki?

RÚSSINN: Ég á tvær skyrtur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt