Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Andrei sendur aftur til Rússlands í sumar: „Mjög miklar líkur á að ég verði handtekinn við komuna“

Andrei Menshenin
Andrei Mens­henin Mynd: Facebook-skjáskot

Rússneski blaða­maðurinn og aktivistinn Andrei Menshenin hefur verið á Íslandi síðan 2016 við nám. Nú virðist sem hann neyðist til að fara aftur til Rússlands í sumar en þar gæti löng fangelsis­vist beðið hans.

Andrei sérhæfir sig í skrifum um flugvélar en í Rússlandi var hann á tíma með sinn eiginn sjónvarps­þátt um mál tengdum flugvélum. Árið 2016 kom hann svo til Íslands og hóf nám í alþjóða­samskiptum við Háskóla Íslands. Þá tók hann eitt ár í íslensku og svo reyndi hann fyrir sér í BA-námi í íslenskri tungu en segist hafa verið of upptekinn til að geta lært almennilega og því kláraði hann ekki námið. Náms­dvalar­leyfið rennur út í sumar en hann áttaði sig á því að rússneska vegabréf hans rennur út á árinu en það er ómissandi í umsóknar­ferlinu fyrir nýtt dvalar­leyfi. Sendiráð Rússa í Reykjavík sagði Andrei að það í mars gæti tekið þrjá mánuði að fá nýtt vegabréf og því er þetta ansi tæpt. Vegna mótmæla hans gegn yfir­völdum í Kreml, á hann það á hættu að vera fangelsaður við komuna til Rússlands.

Stofnaði sinn eiginn miðil

Mannlíf ræddi við Andrei í síma í dag og spurði hann út í málið. „Ég kom til Íslands árið 2016 en ég hef unnið sem blaða­maður síðan 2009 en síðasta starfið sem ég hafði áður en ég kom hingað var sjónvarps­þáttur um flug sem ég stýrði í Rússlandi. Árið 2014 réðust Rússar fyrst á Úkraínu og tóku Krímskaga með valdi. Það var þá sem ég ákvað að fara frá landinum mínu þar sem mig grunaði í hvað stefndi. Síðan ég kom hingað hefur ástandið í Rússlandi einungis versnað. Varðandi klípuna sem ég er í núna, þá var einfaldast fyrir mig að fá dvalar­leyfi á grund­velli náms. Fyrsta ætlun mín þegar ég kom hingað var að fá vinnu sem blaða­maður en enginn fjöl­miðill á Íslandi sýndi því áhuga að ráða sérfræðing í flugmálum sem blaðamann hjá sér, hvað þá einhvern sem talaði ekki íslensku fullkomlega. Þannig að ég stofnaði minn eiginn miðil, flugblogg.is og er vel þekkt innan flug­geirans á Íslandi. En nú stend ég andspænis mjög miklum erfið­leikum. Til þess að sækja um fram­lengingu á dvalar­leyfinu þarf ég fullt af skjölum og fyrst og fremst, vegabréf. Vega­bréfið mitt rennur nefnilega út í nóvember á þessu ári. Fyrst ætlaði ég að skreppa til Rússlands og endurnýja vega­bréfið en svo skall stríðið á. Pútin forseti skrifaði undir ný lög en í þeim segir að hver sá Rússi sem gagnrýnir innrásina og jafnvel kallar þetta stríð, gæti átt yfir höfði sér fangelsisdóm.“

Sendiherrann ógnandi

Aðspurður út í mótmæli sem hann hefur tekið þátt í segir hann að nýleg mótmæli við sendiráð Rússa hafi ekki verið hans fyrstu mótmæli á Íslandi. „Árið 2017 mótmælti ég og góður vinur minn frá háskólanum, fyrir framan sendiráð Rússa en þá hafði skýrsla sem Alexei Navalny hafði gert eftir að hafa rannsakað spillingu Dmitry Medvedev forsætis­ráðherra. Skýrslan olli mikilli hneikslan í Rússlandi og þetta var ástæðan fyrir því að við mótmæltum. Þar sem við stóðum með mótmæla­skilti okkar komu nokkrar manneskjur út úr sendi­ráðinu og hófu að taka af okkur ljós­myndir. Við höfðum staðið þarna í tæpa tvo klukku­tíma, ekki öskrandi eða neitt, bara héldum á mótmæla­skiltum. Stuttu seinna kom lögreglan að og sagði okkur að sendi­ráðið hefði hringt á þá. Eftir að við útskýrðum fyrir þeim hvað við værum að gera þarna, óskaði lögreglan okkur góðs gengist og fóru. Sendi­herra Rússlands á Íslandi, sá sem var á undan þeim sem er núna, kom svo á bíl sínum og keyrði hratt í áttina að okkur og stöðvaði svo bílinn nokkrum sentimetrum frá okkur, renndi niður rúðunni og spurði okkur hvernig það væri að elska landið sitt svona langt í burtu. Svo keyrði hann í burtu.“

Ekkert sérstaklega gefinn fyrir mótmæli

Andrei sagði í samtalinu að hann væri ekkert sérstak­lega gefinn fyrir mótmæli, það væri ekki hans starf en hann hafi verið fenginn í það af öðru fólki.

„Ég er ekkert sérstak­lega hrifinn af því að mótmæla, það er ekki mitt starf. Ég fylgist venjuelga með frá hliðar­línunni, svona í ljósi þess að ég er blaða­maður. En löngu síðar höfðu við mig samband Rússar sem búa á Íslandi, sumir með íslenskt vegabréf en aðrir ekki, og spurðu hvort við ættum ekki að gera eitthvað, mótmæla stjórn­völdum í Rússlandi. Þannig að úr varð að ég stofnaði mótmæla­viðburð á Facebook. Þannig varð ég skipuleggjandi mótmælanna. Stærstu mótmæli Rússa á Íslandi voru árið 2021 þegar Navalny var hand­tekinn í Rússlandi. Og svo mótmælti ég auðvitað þegar stríðið hófst í Úkraínu, það var ekki einu sinni spurning, ég vissi að ég þyrfti að gera það. En vegna allra þessara mótmæla var ég fljótt spottaður af sendi­ráðinu enda voru þau með ljós­myndir af mér og fleira. Ég hef áreiðanlegar heimildir fyrir því að ég sé á óopinberum svörtum lista sendi­ráðsins sem þýðir að ég geti ekki sótt um styrki hjá þeim fyrir viðburðum af hvaða tagi sem er, sem aðrir Rússar á Íslandi geta sótt um.“

Fangelsi bíður sennilega við heimkomuna

Vega­bréfið hans Andrei rennur út eins og áður segir, seinna á árinu en vegna þess að það tekur þrjá mánuði að endurnýja það í Rússlandi, verður Andrei að öllum líkindum sendur aftur til Rússlands, þegar dvalar­leyfi hans rennur út í júní. En hvað heldur Andrei að bíði hans við komuna til Rússlands? Fangelsi jafnvel? „Ég held að það séu mjög miklar líkur á að ég verði hand­tekinn við komuna til Rússlands, út af þessum nýju lögum sem ég sagði þér frá áðan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur