Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Foreldrafélög Stapaskóla vilja ekki Leif: „Í ljósi alvarlegra ásakana um óviðeigandi hegðun“

Mynd / Skjáskot RÚV.
Mynd / Skjáskot RÚV.

Foreldra­félög Stapa­skóla í Reykja­nesbæ hafa sent áskorun á stjórn­endur skólans og á bæjar­stjóra Reykja­nesbæjar, þar sem krafist er að horfið sé frá ráðningu Leifs Garðars­sonar í stöðu deildar­stjóra unglinga­sviðs. Kemur þetta fram í frétt Víkur­frétta.

Mannlíf hefur fjallað ítarlega um málið undan­farna daga en ráðningin hefur verið mjög umdeild í Reykja­nesbæ. Leifur var látinn hætta fyrir ári síðan, bæði sem skóla­stjóri Áslands­skóla og sem körfu­knattleiks­þjálfari í efstu deild, eftir að upp komst um óviðeigandi skilaboð sem hann sendi á 22 ára gamlan leikmann í kvenna­flokki. Hann var einnig látinn taka poka sinn sem þjálfari Víkings árið 2011 eftir að hann sendi fyrir slysni excel-skjal á alla leikmenn liðsins, þar sem hann hafði flokkað þá og lýst yfir áliti sínum á hverjum og einum leikmanni. Þá kom einnig fram hjá Mannlíf að samkvæmt áreiðanlegum heimildum hefðu nokkrar konur sem störfuðu í Áslands­skóla sem kennarar, sent kvörtun vegna Leifs en að engin viðbrögð hefðu borist frá skóla­skrif­stofunni.

Sjá einnig: Leifur áreitti fyrr­verandi nemanda sinn: „Hann var aftur og aftur að hafa samband seint á kvöldin“

„Foreldra­félög Stapa­skóla hafa sent áskorun á stjórn­endur skólans og bæjar­stjóra, þess efnis að hverfa frá ráðningu Leifs Garðars­sonar í stöðu deildar­stjóra unglinga­sviðs. Í ljósi alvarlegra ásakana um óviðeigandi hegðun hans gagnvart ungum konum er almenn óánægja foreldra og nemenda skólans með ráðningu hans,“ segir í yfir­lýsingu foreldra­félaga Stapa­skóla á grunn­skóla og leik­skólastigi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá