Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Leifur áreitti fyrrverandi nemanda sinn: „Hann var aftur og aftur að hafa samband seint á kvöldin“

Mynd / Skjáskot RÚV.
Mynd / Skjáskot RÚV.

Fyrrum nemandi Leifs Garðars­sonar fékk óviðeigandi skilaboð frá Leifi eftir að þau urðu vinir á Facebook. Konan bað hann ítrekað að hætta en hann hélt áfram. Þá kvörtuðu nokkrir kennarar undan honum í Áslands­skóla.

Sjá einnig: Leifur Garðars ráðinn sem deildar­stjóri unglinga­deildar Stapa­skóla: „Fólk var varla að trúa þessu“

Mannlíf sagði frá því í gær að Leifur Garðarsson hafi verið ráðinn sem deildar­stjóri unglinga­deildar Stapa­skóla og síðan þá hafa fleiri ábendingar borist Mannlífi. Ein þeirra kemur frá fyrrum nemanda Leifs en í dag er hún fullorðin kona. Henni þótti mjög vænt um Leif þegar hann kenndi henni í grunn­skóla, þegar hún var 8-12 ára. „Leifur var frábær kennari, hann hélt vel utan um bekkinn og við öll sem vorum hjá honum þótti mjög vænt um hann en þetta var þegar hann var ný byrjaður að kenna, hann var aldrei óviðeigandi þegar ég var nemandi hans,“ sagði hún í samtali við Mannlíf. En svo fyrir fimm árum síðan bætti hún honum við sem vin á Facebook og þá breyttist álit hennar á honum. „Auðvitað er ég fullorðin í dag en fannst þetta mjög óviðeigandi en þá sérstak­lega það að hann var aftur og aftur að hafa samband seint á kvöldin um helgar að spyrja hvort ég væri komin upp í rúm,“ sagði konan og bætti við að tilgangurinn hafi verið að sofa hjá henni. Konan vildi taka það fram að henni þætti það hrikalega sorglegt og auðvitað rangt, hvernig hann hafi hagað sér síðustu ár.

Þá hefur Mannlíf einnig frá áreiðanlegum heimildum að nokkrir kvenkyns kennarar hafi kvartað undan óviðeigandi hegðun Leifs er þær kenndu í Áslands­skóla þar sem hann var skóla­stjóri. Samkvæmt heim­ildunum brást skóla­skrifstofan ekki við kvörtununum á sínum tíma en eftir að óviðeigandi hegðun Leifs við unga körfu­knattleiks­konu komst í hámæli í fréttum, var hann sendur í leyfi. Síðar sagði hann upp skólastjóra­stöðunni.

Sjá einnig: Leifur Garðarsson hættir sem skóla­stjóri eftir óviðeigandi samskipti við konu

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá