Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Kona gekk öskrandi um hverfið – Fíkniefnaræktun í Kópavogi

Lögreglan
Lög­reglan

Það var annasöm nóttin hjá lögreglunni og gistu sjö á bak við lás og slá. Samkvæmt dagbók lögreglu telst það óvenju mikið á virkum degi. Í Kópavogi báru lögreglu­menn kennsl á ökumann sem hafði verið sviptur ökuréttindum eftir ítrekaðan vímuefna- og áfengis­akstur. Maðurinn var ekki á því að stöða bílinn, sinnti ekki stöðvunar­merkjum lögreglu og reyndi að komast undan. Komst hann ekki langt þar sem hann ók fljótlega á aðra bifreið. Greip hann þá til örþrifa ráða og reyndi að hlaupa undan lögreglu. Loks var maðurinn hand­tekinn eftir eltinga­leikinn en var hann undir áhrifum fíkniefna og með fíkniefni í fórum sínum.

Stuttu eftir miðnætti barst lögreglunni tilkynning um yfir­standandi innbrot í fyrirtæki. Lögregla kom að þjófnum inni í húsnæðinu en hafði hann spennt upp glugga og skriðið þar inn. Þjófurinn var hand­tekinn og gisti fanga­klefa. Fyrr um kvöldið framkvæmdi lögregla húsleit í Kópavogi. Var grunur um að þar væru ræktuð fíkniefni og reyndist það vera rétt. Lagt var hald á búnað til rætunar og fíkniefni. Einn maður var hand­tekinn.

Karlmaður ók á grindverk nágranna síns í Hafnar­firði í gærkvöldi. Þegar betur var að gáð reyndist maðurinn ekki vera með ökuréttindi. Þá voru nágrannar konu í Kópavogi ekki par sáttir í morgun þegar hún gekk um hverfið öskrandi. Reyndist hundurinn hennar hafa sloppið út og leitaði hún að honum „með heldur miklum gassa­gangi fyrir smekk sofandi nágranna sinna,“ segir í dagbók lögreglu.

Að lokum, tveir eftir­lýstir félagar voru hand­teknir í miðbænum í gærkvöldii. Annar þeirra gerði heiðar­lega tilraun til þess að stinga lögreglu af „en varð að láta í minni pokann fyrir þraut­þjálfuðum laganna vörðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur