Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Anna minnist gamalla félaga: „Við sættumst að lokum eftir nokkrar ískaldar vikur á milli okkar“

Anna Kristjáns.
Anna Krist­jáns.

Anna Kristjáns­dóttir minnist tveggja fallinna starfs­manna Vélskóla Íslands í nýjustu dagbókar­færslu sinni.

Frá því að Anna Kristjáns­dóttir vélstjóri flutti til Tenerife, sem hún kallar Paradís, hefur hún skrifaði dagbókar­færslur á Facebook á hverjum degi. Skín kaldhæðnin og húmorinn í gegn í þeim öllum og má það sama segja um nýjust færslu hennar.

Í færslunni minnist Anna tveggja starfs­manna Vélskóla Íslands, þeirra Boga Arnars Finnboga­sonar, fyrrum skrif­stofustjóra skólans sem lést á dögunum og Andrésar Guðjóns­sonar, fyrrum skóla­stjóra skólans sem lést árið 2009. Þá rifjar hún upp í leiðinni spaugilegar smáauglýsingar sem Anna birti sem ritstjóri Skrúf­unnar, sem var málgagn Skóla­félags Vélskólan Íslands. Færsluna má lesa hér í heild sinni:

„Dagur 1260 – Ársritið Skrúfan.

Þegar ég var ung og falleg bar ég ekki sömu virðingu fyrir fólki eins og síðar varð. Þar sem vafi er hvort ég hafi gegnt stöðu frétta­ritara né öðrum fjölmiðla­störfum hefi ég aldrei þurft að standa skil á ýmsum vafasömum ummælum sem ég hefi látið frá mér fara í gegnum tíðina. En samt. Einu sinni var ég ritstjóri og kunni mér að sjálfsögðu engin takmörk og birti allt sem að mér var rétt. Tímaritið hét Skrúfan og var málgagn Skóla­félags Vélskóla Íslands. Skóla­stjóri vor lá veikur með alvarlegan hjarta­kvilla á spítala og þótti okkur ekki nema eðlilegt að reyna að hjálpa honum með eftir­farandi auglýsingu sem birtist í blaðinu:„Vantar lensidælu. Andrés.“Skóla­stjóri vor náði sér ágætlega eftir þessi veikindi og stjórnaði skólanum í mörg ár eftir þetta og aldrei man ég til þess að hann gerði athugasemd við þessa litlu smáauglýsingu.Einn af mínum bestu félögum í Vélskólanum var Hall­grímur Guðfinnsson frá Bolungarvík. Hann var róttækur og síðar átti hann bát í félagi við aðra sem hét Karl Marx ÍS-153. Þeir félagarnir gerðu í því að gleyma tilkynninga­skyldunni til þess eins að heyra auglýst eftir Karli Marx í útvarpinu. Hall­grímur þótti fremur forn í háttum og því birtist eftir­farandi smáauglýsing í Skrúfunni:„Vilhjálmur Stef­ánsson land­könnuður hélt því fram að til að komast af á heimskauta­svæðum þyrfti fólk að lifa og hegða sér að hætti innfæddra. Hall­grímur Guðfinnsson lifir að hætti berfættra og sýpur soðið af sokkunum sínum.“Síðar eignaðist Hall­grímur kvóta og seldi og fékk fullt af peningum fyrir. Að sögn kunnugra varð hann alveg miður sín er hann sá hve mikið hann fékk og gerði allt sem hann gat til að losna við þessa fjármuni enda sósíal­isti af guðs náð. Ég held að hann sé enn á lífi, orðinn aldraður bóndi á Suður­landi. Yndis­legur félagi.Skrif­stofustjóri Vélskólans sem jafnframt var kennari var Bogi Arnar Finnbogason þekktur ensku­kennari og þýðandi hjá Sjón­varpinu sem lést á dögunum hinn ágætasti maður, en hann slapp samt ekkert við grínið. Hans veikleiki var hárkollan sem hann bar stoltur og hélt að fæstir vissu. Einhver skóla­félaginn bað mig um að birta eftir­farandi smáauglýsingu í Skrúfunni og sem mér var ljúft að sinna:„Er ég eða er ég ekki með hárkollu. Það er eitt af leyndar­málum nátt­úrunnar.Bogi Arnar Finnbogason“.Bogi var ekki sáttur við þessa auglýsingu, en við sættumst að lokum eftir nokkrar ískaldar vikur á milli okkar.Síðar varð ég vara­formaður og loks formaður skóla­félagsins um skeið, sat jafnframt í skóla­nefnd Vélskólans áður en ég varð aftur ritstjóri skóla­blaðsins í fjórða stigi og við breyttum fyrir­komulagi útgáfu Skrúf­unnar í það form sem það hefur verið alla tíð síðan og fram á þennan dag, þá sem fjáröflunar­verkefni fyrir úrskriftar­nemendur Vélskólans. Þar með hefi ég játað syndir mínar í blaða­mennsku ef hægt er að nota þau orð um misheppnaðan ritstjórnar­tíma minn.Þetta ritað í tilefni af andláti og útför Boga Arnars Finnboga­sonar á dögunum. Blessuð sé minning hans sem og Andrésar Guðjóns­sonar skóla­stjóra sem lést árið 2009.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt