Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Richards og Sheen deila um OnlyFans síðu dóttur þeirra: „Þetta gerðist ekki undir mínu þaki“

Denise og Charlie
Denise og Charlie

Fyrrum leikaraparið Denise Richards og Charlie Sheen hafa tjáð sig um tilkynningu dóttur þeirra, Sami, um að hún sé búin að stofna OnlyFans reikning.

Í gær birti hin 18 ára gamla Sami, hlekk á OnlyFans síðu sem hún var að stofna. Á myndinni er hún í litlu bikini og skrifar undir myndina: „Smelltu á hlekkinn í bio hjá mér ef þú vilt sjá meira 💋“

Móðir hennar, Richards skrifar athugasemd við færslu Sami: „Sami, ég mun ávalt styðja þig og alltaf standa við bakið á þér. Ég elska þig.“

Jeff Ballard, talsmaður Charlie Sheen, sendi yfir­lýsingu fyrir hönd Sheen á ET-slúður­miðilinn þar sem hann tjáði sig um málið. Virðist hann í yfir­lýsingunni kenna móðurinni um það að dóttir þeirra sé komin á þennan full­orðins samfélags­miðil.

„Hún er 18 ára nú og býr hjá móður sinni. Þetta gerðist ekki undir mínu þaki. Ég samþykki þetta ekki en þar sem ég get ekki komið í veg fyrir það, hvatti ég hana til að hafa þetta smekklegt, skapandi og að hún fórni ekki heilindum sínum.“

Richards svaraði um hæl og sagði dótturina hafa rétt á eigin ákvörðunum og líkama og bætti við: „Sami er 18 ára og þessi ákvörðun hennar var ekki byggð á því hjá hvaða foreldri hún býr.“

Þau Richards og Sheen voru gift frá 2002 til 2006 og eignuðust tvær dætur, þær Sami og hina 17 ára Lolu. Þá á Richards dóttur úr öðru sambandi sem er hin 10 ára Eloise. Eftir að þau skildu hefur samband þeirra verið með storma­samt sem náði hámarki er hún fékk nálgunar­bann á Sheen. Árið 2010 afsalaði hann lagalegu forræði yfir dætrum sínum í kjölfar eiturlyfja­fíknar, heilsu­vandamáls og lagalegra vandræða. Er hann nú að ná sér á strik aftur og undirbýr nú endurkomu sína í sjónvarpi en hann er með HIV veiruna sem er haldið í skefjum með lyfjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt