Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Rúv tók viðtal við Vilmund dýnuhvíslara út úr kvöldfréttum:„Ég veit ekkert hvað fór þeim í millum“

Vilmundur skoðar heilsusamlegar svefnvörur.
Vil­mundur skoðar heilsu­sam­legar svefn­vörur. Mynd: Aðsend

Nýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarps­þættinum Þvotta­húsið er Vilmundur Möller Sigurðsson, rafeindar­virkja­meistari og dýnu­hvíslari.

Vil­mundur Möller Sig­urðs­son.

Fárveikur á heilsu­dýnu

Vilmundur uppgvötvaði fyrir að um 5 árum að heilsu­dýnan sem hann hafði keypt dýrum dómi árið 2006 væri í raun alvarlega heilsu­spillandi. Hann var farin að glíma við alvarlega heilsu­kvilla á borð við króníska verki um allan líkamann, sár, útbrot, hárlos, bólgur og gigt. Þá var hann kominn með kæfisvefn og ofsasvita, stöðuga síþreytu og drauga­verki sem færðust til um líkamann án nokkurs samengis. 

Vilmundur var orðinn fárveikur og botnaði ekki í hvað væri raun­verulega að veikja hann. En síðan uppgötvaði hann ástæðuna: Skaðleg útgufun úr svamp­efnum í svefnvöru. „Þegar ég uppgötvaði þetta var ég orðinn eins og kannski manneskja sem nær sér ekki eftir Covid, sinnum þrír, ef ekki meira.“ 

Vilmundur stofnaði Facebook-hóp um málefnið og þar eru rúmlega 10.000 manns. „Ég hélt ég gæti bara gengið inn á landlækni og sagt honum að ég vissi um stór­hættulegt efni sem er að veikja hundruði ef ekki þúsundir manna hér á landi og það þyrfti að bregðast við þessu.“

Léleg viðbrögð landlæknis

Aðspurður um viðbrögð land­læknis sagði Vilmundur: „Ég fékk léleg viðbrögð. Bæði Þórólfur og Alma sögðu að það væri ekkert sem þau gætu gert þar sem þetta væri ekki vísinda­lega sannað. Að þetta væru veikindi frá efnavöru og þar af leiðandi gætu þau ekkert gert. Ég sagði þeim að það væri veikt fólk til umræðu en það virðist ekki hafa neitt vægi. Ég sagði þeim að „það er fullt af veiku fólki hérna, hópur sem er stofnaður og sögur þar inni, hundruðir af sögum þar sem fólk er að lýsa því hvernig það hefur verið veikt og hvernig það nær aftur betri heilsu með því að fara úr svamp­efnunum og yfir í heil­næmari efni.“ Og ég náði nú að kreista mig á þrjá fundi með landlækni og tvo með umhverfis­stofnun. Og einn fund með fulltrúa heilbrigðis­ráðherra og einn með heilbrigðis­ráðherranum að lokum.  Og það er bara stutt og laggott. Ekkert að gerast hjá þeim sem eru heilbrigðis­ráðherra og land­læknir. Umhverfis­stofnun er hins vegar að vinna svolítið í þessum efnum núna og koma með einhverjar rann­sóknir og yfir­lýsingar um að mjúkt plast sé hættulegt en þau hafa ekki farið ennþá í það að segja að svefn­varan sé hættuleg.“

Viðbrögðin fram úr björtustu vonum

Ákvað Vilmundur ásamt eiginkonu sinni að prófa að flytja inn heilnæmar dýnur og athuga hvort ekki væri áhugi fyrir því í Facebook-hópnum. „Og það urðu þetta líka svakalegu viðbrögð. Fólk stóð bara í röð fyrir utan hjá okkur þegar við opnuðum fyrst.“

Gunnar vildi fá að vita hvað væri í þessari dýnu sem Vilmundur fann í Bretlandi. „Ég var að leita að einhverju sem kæmi stutt frá og svo var ég búinn að sjá að ull væri málið. Af því að ull í fatnaði er æðislegt. Og þarna í Englandi var hægt að finna ullar­svefnvörur sem innihéldu upp, hamp, gorma og lífrænan bómull, að það væri ekkert útgufunar­plastefni í því.“ Endingar­tíminn á slíkum dýnum er um 12 til 15 ár.

Hér er dæmi um ull­ar­rúm.

Davíð spurði Vilmund hvernig þessar dýnur standa gegn stoðkerfis­vanda og almennum svefn­gæðum. „Þetta er ekki alveg einfalt að útskýra sko. En við getum sagt að ef þú ert með bólgur í líkamanum þá þarftu svona þrýsti­jöfnunar­dýnu en um leið og hún er að leysa þetta mál með þrýsti­jöfnun þá er hún að auka bólgur. Eða hún er að viðhalda bólgum. Hún bjó til þessar bólgur til að byrja með þegar þú varst nokkuð slæmur og þurftir kannski bara að hreyfa þig eða eitthvað en þú keyptir þér þessa æðislegu dýnu sem átti líka að hjálpa þér og hún er með svona þrýsti­jöfnuð. En hún fer jafnvel að auka bólgurnar og þar af leiðandi þarftu á þrýstjöfnunardýnu að halda til þess að geta bara fúnkerað í lífinu.“

Þöggun Rúv

Fjöl­miðlar hafa sýnt máli Vilmundar nokkurn áhuga en hann lenti þó í því að vera tekinn út úr kvöld­fréttum Rúv. „Það var tekið við mig viðtal sem átti að birtast í kvöld­fréttum Rúv, það kvöldið. Og síðan fékk ég bara að heyra það rétt fyrir kvöld­fréttir að það yrði fellt niður. Að þetta yrði fellt niður eftir að þeir töluðu við söluaðila svefnvara. Þetta var bara saga um mín veikindi. Og saga um veikindi fleiri fólks.“

Gunnar spurði Vilmund af hverju það breytti einhverju, að Rúv hafi talað við söluaðila heilsu­dýna. „Kannski hótuðu þeir að taka allar auglýsingar út úr miðlinum. Sölu­aðilinn var nafn­greindur en ég veit ekkert hvað fór þeim í millum en það var þetta sem gerist, að þessi frétt er dregin til baka. Eftir þetta er ég orðinn svo desperat því ég vissi um svo mikið af veiku fólki, alla daga, í skila­boðum og í símtölum en þetta var áður en ég hóf innflutning á dýnunum. Þannig að ég var búinn að tala við þau á Rúv og Kveik og Kastljós og heyrði það seinna að ég væri bara orðinn einhver vandræða­gemsi á Rúv, pirrandi gaur.“

Þennan upplýsandi og sjokkerandi þátt má sjá í heild sinni á spil­aranum hér fyrir neðan ásamt að þætti þvotta­hússins má finna á öllum helstu streymis­veitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

„Megi Allah veita öllum þeim sem eiga um sárt að binda styrk“
Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt