Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Safna fyrir flutningi mannsins sem lést í banaslysinu í Þrengslum

„Fullt af fólki er lamað af sorg“

Berglind með vini sínum Javier
Berglind með vini sínum Javier Berglind lýsir Javier sem „fal­leg­ustu sál í heimi“ Mynd: Facebook

Vinir og aðstand­endur Javier Monsalve, sem lést í alvarlegu bílslysi í Þrengslum sunnu­daginn 26. júlí síðastliðinn, hafa hrundið af stað söfnun til að standa straum af kostnaði við að flytja lík hans til Spánar þar sem hann verður jarð­sunginn.

Frá þessu greinir Berglind Sif Viðars­dóttir í færslu á Facebook.

Að sögn Berg­lindar var Javier, sem var frá Kólumbíu en hafði búið á Spáni frá unga aldri, „fallegasta sál í heimi“ og „elskaður af öllum“.

„Sá skelfi­legi atburður gerðist á sunnudags­kvöld að vinur minn til 15 ára og fallegasta sál í heimi, lést í alvarlegu bílslysi í Þrengslunum. Fullt af fólki er lamað af sorg,“ skrifar hún.

Hún segir að Javier hafi aðeins átt tvo nána aðstand­endur á Íslandi, hana og eiginmann hennar.

„Eftir situr hryllilegur kostnaður við að koma honum aftur til Spánar þar sem brotin fjöl­skylda situr og bíður eftir að sjá son og bróður í síðasta skipti,“ segir Berglind.

Hún segir að þau hjónin hafi ákveðið að greiða sjálf 1,1 milljón króna til að standa undir flutnings­kostnaði.

„Til að létta undir móður hans Javi á mjög erfiðum tímum tókum við ákvörðun um að losa hans fjöl­skyldu undan flutnings­kostnaði og ætlum við að greiða 1.100.000 til að koma honum til Spánar og láta jarða hann þar,“ skrifar hún.

Samkvæmt færslunni verður Javier fluttur til Spánar 12. ágúst.

Berglind hvetur þá sem vilja leggja fjöl­skyldunni lið til að styrkja söfnunina. Hún tekur fram að reikningurinn sé eingöngu ætlaður kostnaði við flutning hans til Spánar.

Reiknings­upplýsingar:

  • Reiknings­númer: 0511-14-067797
  • Kennitala reiknings­eiganda: 040594-2139
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur