Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Næturkuldinn í Paradís er erfiður: „Ekki er mikinn yl að fá frá ljósaperunum“

Anna Kristjáns.
Anna Krist­jáns.

Anna Kristjáns­dóttir kvartar yfir kulda í nýjustu dagbókar­færslu sinni á Facebook en lofar að vorið sé á næsta leyti.

Hin bráð­fyndna og skemmtilega kaldhæðna Anna Kristjáns­dóttir býr á Tenerife, eða Paradís eins og hún kallar spænsku eyjuna gjarnan. Þangað flutti hún fyrir nokkrum árum og hefur haldið úti opinni dagbók á Facebook síðan. Eru færslur hennar oftar en ekki löðrandi í húmor og sú nýjasta ekki ekki laus við það, þvert á móti.

Í færslunni kvartar hún meðal annars undan nætur­kulda í Paradís og segir Íslendinga heppna með hita­veituna. Þá talar hún einnig um leit hennar og vina að „dular­fullum vírus“ fyrir þremur árum og á þá um Corona-vírusinn. Færsluna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

„Dagur 1268 – Senn vorar í Paradís.

Ég var víst búin að lofa því að vorið væri á næsta leyti, þó ekki alveg strax en kannski á morgun. Það er eitthvað að byrja að hlýna því hitinn var einni gráðu meira í gær en í fyrradag og stefnir í örlítið hærra hitastig.Fólki á Íslandi getur fundist þetta vera óttalegt kuldaskræfutal, en þegar haft er í huga að hér er engin hitaveita, munar um sérhverja gráðu. Þannig er hita­stigið innandyra vart meira en 15-16°C á nóttunni, jafnvel enn lægra. Ég heyrði af einum sem reyndi að ylja sér við bakara­ofninn í eldhúsinu hjá sér, setti hann á 150 eða 200 gráður og ofninn opinn til að fá smáyl í íbúðina sína. Ekki er mikinn yl að fá frá ljósa­perunum sem flestar eru orðnar led svo ekki talað um tölvurnar né sjón­varpið.Íslendingar voru heppnir. Fyrsta stóriðjan á Íslandi var hita­veitan, Hitaveita Reykja­víkur er búin að vera Reyk­víkingum slík gullnáma að helst ber að benda á olíuforða Norðmanna til jafnaðar við hana sem og aðrar hita­veitur á Íslandi. Ég þekki það af reynslunni.Hér suður í höfum eru það ullar­sokkarnir, vaðmáls­pilsið og flís­peysan sem bjarga heilsunni þessa dagana.—–Það voru leikir í bikar­keppninni í gærkvöldi og í gamla bjór­bikarnum sem nú er kennd við Izusu jeppa áttu hetjurnar okkar leik á útivelli í fjórðu umferð gegn einhverjum Harrows, liði sem er á botninum í sjöundu leið og stefnir hraðbyri niður í áttundu deild. Maður hefði haldið að hetjurnar færu létt með slíkt lið, en ónei. Vissulega voru þær á undan að skora, en botnliðið svaraði fljótt fyrir sig. Eftir 2-2 jafntefli var vítaspyrnu­keppni þar sem hetjurnar okkar mörðu sigur með 6-5. Með sama áfram­haldi enda þær á sama plani og Fótbolta­félag Grútar­tjarnar­hrepps sem féll úr hinni bikar­keppninni á dögunum.—–Nú eru liðin þrjú ár síðan við héldum til La Gomera í leit okkar að dular­fullum vírus sem við höfðum heyrt af og fannst daginn áður á eyjunni og þá í fyrsta sinn á spænsku lands­svæði. Þrátt fyrir mikla leit undir stjórn hins frábæra farar­stjóra José Angel fundum við engan vírus, fórum vonsvikin heim og fengum okkur Coronabjór á barnum. Síðar þótti umrædd veira vera farin að eyði­leggja svo álit Coronabjórsins að rætt var um það í alvöru að breyta nafni bjórsins í Ebola Special. Það varð sem betur ekkert af slíku.Merkilegt að núna þremur árum síðar erum við öll sem fórum þessa ferð stödd hér í Paradís, Inga sem býr hér eins og ég, Hannes og Halldór sem báðir eru gest­komandi á eyjunni þessa dagana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt