Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Ólga á Húsavík vegna meintra brota kennara og sveitarstjórnarfulltrúa: „Það hringir engum bjöllum“

Húsavík
Húsavík Mynd: Ouicoude.

Samkvæmt heimildum Mannlífs ríkir nú nokkur ólga á Húsavík vegna aðila í sveitar­stjórn Norður­þings sem einnig starfar við skóla á svæðinu. Þá hafa ótal ábendingar vegna aðilans borist Mannlífi nýverið sem snúa að brotum og ámælis­verðri hegðun, bæði í kennslu­starfi sem og í sveitar­stjórn Norður­þings.

Viðkomandi hefur starfað sem kennari í allmörg ár. Hann hefur nýverið hlotið kjör í sveitar­stjórn Norður­þings fyrir flokk sinn.

Aðilinn er þannig sagður hafa fyrir nokkru síðan meðhöndlað ungt barn, í yngstu deild grunn­skóla, harkalega svo sá á barninu. Málið hafi komið til tals innan sveitar­stjórnar en að endingu hafi stjórnin ekki talið sig hafa heimild til að taka málið fyrir, heldur hafi skólinn gert það innanhúss. Ekki er ljóst með hvaða hætti það var gert, að öðru leyti en því að engin viðurlög urðu vegna málsins og viðkomandi hélt áfram kennslu.

Sami aðili er sagður hafa sýnt af sér slæma hegðun í garð samstarfs­fólks síns í sveitar­stjórn Norður­þings og hafa sumir talað um einelti í því samhengi. Samkvæmt heimildar­mönnum Mannlífs hefur aðilinn komið illa fram við samstarfs­fólks, talað niður til sumra og verið óþægilegur í umgengni. Þá eru starfs­menn innan sveitar­stjórnar sagðir hafa hætt vegna fram­komunnar. Mannlíf hafði samband við umræddan einstakling sem kannaðist ekki við þær ásakanir sem á hann hafa verið bornar. Aðspurður hvort hann hafi hrifsað í barn harkalega svo sá á barninu sagði hann svo ekki vera.

„Nei, það hringir nú engum bjöllum hjá mér“. Þá kannaðist hann ekki við það að hafa lagt samstarfs­fólk í einelti. „Ég var bara að sinna skyldum mínum sem fulltrúi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá