Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Ofbeldi í andlega heiminum: „Þetta minnti mig á neysluumhverfi. Þetta var bara sjúkt“

Selma Kröyer. Mynd/Skjáskot: https://www.depop.com/selmakroyer/
Selma Kröyer. Mynd/Skjáskot: https://www.depop.com/selmakroyer/

Selma Kröyer og Kolbeinn Sævarsson sögðu frá reynslu sinni af ofbeldi í andlega heiminum. Þau voru að leita að annarra lausna við sínum andlegu meinum. Í nýjasta Kompás þætti segja þau bæði frá kynnum sínum af manni sem þóttist vera hæfur leið­beinandi til að stjórna kakó­athöfnum, en reyndist svo vera ofbeldis­maður í leit að athygli.

Selma var búin að vera edrú í nokkur ár þegar hún ákvað að skella sér og hafði góða reynslu af hugleiðslu­hringjum og kakó­athöfnum.

„Það er mjög mikið crossover inni á 12 spora­fundum og inni i andlega heiminum. Það er stór hópur innan fundanna sem er mikið að sækjast í svona.. Jóga, hugleiðslu, kakó, svett,“ segir Selma.

Selma fylgdi alls kyns áhrifa­völdum á Instagram og hreifst því sem þeir voru að gera. Og þar er sannarlega af nógu að taka. Hún sótti það sem kallast Kakó-retreat til eins þeirra, ásamt nokkuð stórum hópi fólks, sem varði yfir heila helgi.

„Það var farið í náttúru­ferðir, rosa mikið verið að drekka kakó og borða veganmat, stunda jóga og hugleiðslur. Og svo átti maður að standa upp fyrir framan alla og segja frá einhverju djúpu leyndar­máli.“

„En þetta er ekki öruggt umhverfi, þó að manni gæti liðið þannig þá er það ekki. Það er enginn sem er hæfur til að grípa þig eða hjálpa þér í gegn um þetta. Leiðbeinendurnir voru bara tveir einstaklingar sem voru að setja sig í sæti leið­beinanda og allir áttu að sækjast í að fylgja þeirra lífs­stefnu,“ segir Selma.

„Þetta minnti mig á neysluumhverfi. Þetta var bara sjúkt.“

Kolbeinn hefur slæma reynslu af sama manni. „Við vorum um 20 einstaklingar, og mikið af þeim nýkomnir úr meðferð og margir með vandamál, andleg vandamál, geðræn vandamál,“ segir Kolbeinn. „Þetta minnti mig á neyslu­umhverfi. Þetta var bara sjúkt.“

Eins og gerðist í kakó-helginni sem Selma fór í, þá var ætlast til þess í hópnum sem Kolbeinn var í að allir ættu að opna sig, tala um áföllin sín eða það sem fólki leið illa yfir. Sumir eiga mjög auðvelt með að tala um sín áföll, ég er ekki einn af þeim.“

Kolbeinn reyndi að láta vita af óánægju sinni og gagnrýndi aðferðir leið­beinandans. „Hann tók þessu alls ekki vel. Sagði eitthvað um að þarna væru 19 einstaklingar sem fannst þetta allt í lagi. Svo var ég bara eitthvað einn að væla,“ segir Kolbeinn. „Svona menn sjá náttúru­lega bara þjáninguna hjá fólki og að þeir geti grætt á því. Annað hvort fjárhags­lega eða bara að með því að drottna yfir öðrum líður þeim eitthvað stærri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur