Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Dreifði myndbandi af sjálfboðaliða – „Þarna er bara verið að gera lítið úr manni“

Skjáskot af myndbandinu
Skjáskot af mynd­band­inu

Elín Soffía Harðar­dóttir, kennari og sjálfboða­liði til margra ára, lenti í leiðinlegu atviki á dögunum. Myndband var tekið upp á dyrabjöllu­myndavél og þar sem Elín bankaði upp á og bauð heimilis­manni rauða rós. Spurði heimilis­maðurinn þá hvort hún væri á vegum Samfylkingarinnar og svaraði hún því játandi.

„Viltu ekki bara setja hana í gráu tunnuna sem er þarna hægra megin við þig?,“ spyr maðurinn en mynd­bandinu var dreift víða á samfélags­miðlum. Elín sagði í samtali við Vísi að henni hefði brugðið að sjá mynd­bandið á netinu, samtalið hefði í raun verið lengra en seinni hlutinn var klipptur út. Elín hafði þá sagt manninum að það muni hún aldrei gera (henda rósinni). Hann hafi þá sagst vera að grínast og bað hana um að leggja hana á bekk við húsið og þar með þegið rósina.

„Ég er búin að vera í sjálfboða­liðastarfi fyrir flokka og í forseta­kosningum síðan ég var sextán ára, og nú komin á sjötugsaldur. Ég hef bara aldrei orðið fyrir svona, þarna er bara verið að gera lítið úr manni,“ sagði Elín sem sárnaði er hún sá mynd­bandið. Ótal margir hafi sett sig í samband við hana eftir atvikið og fundið fyrir stuðningi. „Fólki finnst þetta bara ferlega ómerkilegt, að vera að ráðast svona á fólk sem er að vinna sjálfboða­vinnu“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur