Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Lögreglumennirnir fimm segja saklausir af morðinu á Tyre Nichols – Handóku hann með barsmíðum

Hinir fimm fyrr­verandi lögreglu­menn sem sakaðir eru um að hafa drepið Tyre Nichols sögðust fyrir rétti í dag vera saklausir.

Þeir Tadarrius Bean, Demetrius Haley, Desmond Mills Jr, Emmitt Martin III og Justin Smith

tóku allir þátt í handtöku Nichols þann 7. janúar síðastliðinn. Hafði fórnar­lambið verið stoppað af lögreglu­mönnunum vegna kæruleysi­legs aksturs­lags. Myndskeið sem dreift var á samfélags­miðlum sýndu lögreglu­mennina fimm berja Nichols til óbóta en hann lést á sjúkra­húsi þremur dögum síðar.

Blessuð sé minn­ing hans

Dauði hans olli bylgju mótmæla í Memphis-borg og var til þess að allir lögreglumennir fimm voru reknir ásamt nokkrum öðrum starfs­mönnum lögreglunnar í borginni. Þá hefur sérstök deild sem átti að berjast gegn ofbeldi, verið tíma­bundið leyst upp.

Dómari réttarins staðfest að mennirnir fimm hafi allir sagst saklausir af ákærum um morð af annarri gráðu, grófa líkams­árás, gróft mannrán, embættis­brot og opinbera kúgun. Dómarinn, James Jones Jr. bað um þolinmæði á meðan lögmennirnir byggðu upp sitt mál. „Þetta mál gæti tekið svolítinn tíma,“ sagði hann við sakborningana þar sem þeir stóðu við hlið lögmanna þeirra í glæpa­dómstól Shelby-sýslu. „Við biðjum ykkur um að sýna þolinmæði og áfram­haldandi kurteisi í þessu máli.“

Fjölskyldu­meðlimir Nichols voru í réttar­salnum ásamt þeirra lögmanni, Ben Crump, mann­réttinda­lögfræðingi. Fyrir utan spjallaði svo móðir hins látna, RowVaughn Wells við frétta­menn og lýsti því hvernig var að sjá sakborningana með eigin augum. „Þeir höfðu ekki einu sinni nægt hugrekki til að lýta í augun á mér,“ sagði hún. Lofaði hún að mæta á hvern einasta dag réttar­haldanna; „þar til við fáum réttlæti fyrir son minn.“

Hinir fyrr­verandi lögreglu­menn stóðu þöglir hjá lögfræðingum sínum, klæddir í jakkaföt og með andlits­grímur sumir hverjir. Enginn þeirra talaði í þetta skiptið enda aðeins um að ræða stuttan dag að ræða í réttar­höldunum. Lögfræðingarnir staðfestu það að þeir segðust saklausir af ákærunum.

Það var þann 26. janúar sem lögreglu­mennirnir voru hand­teknir og settir í gæslu­varðhald eftir að Memphis-lögreglan hafði farið yfir myndskeið af hand­tökunni. Þar heyrist Nichols Nichols kalla á móður sína á meðan lögreglu­mennirnir létu höggin dynja á honum. Þá var hann einnig spreyjaður með piparúða og sparkað í hann. Nichols var aðeins 29 ára er hann lést.

Lögreglu­stjóri Memphis, Cerelyn Davis sagði, eftir að hafa horft á mynd­skeiði, að ekki væri um að ræða „bara fagleg mistök“ heldur „skortur á grunnmensku gagnvart annarri manneskju.“

Lögreglu­mennirnir voru allir dökkir á hörund, rétt eins og fórnar­lambið en móðir Nichols sagði við BBC að þetta snérist ekki um litarhaft lögreglu­mannanna, heldur litarhaft fórnar­lambsins. „Okkur er alveg sama hvort þeir séu svarti, hvítir, bleikir, fjólu­bláir. Það sem þeir gerðu var rangt,“ sagði hún og bætti við: „Og það sem þeir eru að gera samfélagi svartra er rangt. Við höfum ekki áhyggjur af húðlit lögreglu­manna. Við höfum áhyggjur af framferði þeirra.“

Sakborningarnir eru lausir gegn tryggingu, sem þýðir að þeir eru ekki í fangelsi eins og er. Næsti dagur réttar­haldanna hefur verið settur þann 1. maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs