Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Siggi Stormur alveg stúmm: „Undarlegt að afgreiða svo stórt mál í bæjarráði daginn fyrir kosningar“

Siggi Stormur
Siggi Stormur

Samkvæmt grein Fjarðar­frétta var boðað var til fundar í bæjarráði á afar óhefðbundnum tíma, á föstu­daginn 13. maí, klukkan 10. Segir miðillinn að fundarboð hafi borist þremur mínútum eftir áskyldan fyrirvara, en fundinn sátu:

Ágúst Bjarni Garðarsson formaður, Kristinn Andersen vara­formaður, Ólafur Ingi Tómasson aðalmaður, Adda María Jóhanns­dóttir aðalmaður, Jón Ingi Hákonarson aðalmaður, Sigurður Pétur Sigmundsson varamaður, Sigurður Þórður Ragnarsson áheyrnar­fulltrúi; auk þeirra sátu fundinn Rósa Guðbjarts­dóttir bæjar­stjóri og Sigurður Nordal sviðs­stjóri stjórnsýslu­sviðs.

Rósa Guð­bjarts­dóttir og Ágúst Bjarni Garð­ars­son

Á fundinum áður­nefnda voru það fimm mál sem tekin voru fyrir á þessum síðasta degi fyrir kosningar.Fyrst voru teknir fyrir bæjarráðs­styrkir þar sem 1,3 milljónir kr. til þriggja aðila. Einnig samþykkti bæjarráð að afsala sér forkaups­rétti á fiskiskipinu Guðrúnu BA 127 en hafnfirska Útgerðar­félagið Dagný ehf. átti skipið; var að selja það úr bænum. Í slíkum tilfellum á sveitar­félag seljanda forkaups­rétt. Þriðja málið á dagskrá var endurnýjun á þjónustu­samningi við Fjöl­smiðjuna, sem gerður var við Samtök sveitar­félaga á höfuð­borgar­svæðinu. Er viðbótar­framlagið 11,5 milljónir og hlutdeild Hafnar­fjarðar í því 1.495.000 kr. Heildar­framlag sveitar­félaganna hækkar því um 105 prósent frá gerð samningsins árið 2020.Síðustu tvö málin sem tekin voru fyrir á umræddum fundi hafa verið nokkuð mikið til umræðu; aðallega vegna skorts á formlegum heimildum: En bæjarráð heimilaði á fundi sínum 3. maí síðastliðinn að veita heimild til að undirbúa útboð vegna byggingar reið­skemmu Sörla og knatthúss Hauka. Því hefur það ekki tekið nema rúma viku að undirbúa útboðin, en Fjarðar­fréttir greina svo frá að miðillinn hafi mjög áreiðanlegar heimildir fyrir því að sú undir­búnings­vinna hafi þegar verið hafin á framkvæmda­sviði Hafnar­fjarðar­bæjar.Einnig kemur fram að nú, rúmri viku síðar, samþykkti bæjarráð að ráðist verði í útboð á 1. áfanga reið­hallar Sörla í samræmi við fyrir­liggjandi útboðs- og verk­skilmála; við útboðið áskilur sveitar­félagið sér allan rétt til að hafna öllum tilboðum yfir fram­lagðri kostnaðar­áætlun. Það verði nýkjörinnar bæjar­stjórnar að taka afstöðu til þess; hvort og þá líka hvaða tilboði verður tekið að afloknu útboði.Sama form var á samþykkt bæjarráðs á útboði á 1. áfanga knatthúss Hauka. Það verður því nýkjörin bæjar­stjórn sem tekur málið fyrir, enda málinu vísað til bæjar­stjórnar til stað­festingar sem eðlilega tekur afstöðu til þess hvaða tilboði verði tekið að loknu útboði eða hafni þeim öllum.Sigurður Þ. Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi Stormur, þáverandi fulltrúi Miðflokksins, sagði mikilvægt að afstaða flokka í núverandi bæjar­stjórn til þessa máls sé ljós; enda komi það í hlut nýkjörinnar bæjar­stjórnar að samþykkja útboðið endanlega. Sigurður lýsti undrun sinni á að afgreiða svo stórt mál í bæjarráði, daginn fyrir kosningar. Og bókaði:„Fulltrúi Miðflokksins styður að setja framkvæmdir við knatthús Hauka í útboð. Það er mikilvægt að afstaða flokka í núverandi bæjar­stjórn til þessa máls sé ljós, enda kemur það í hlut nýkjörinnar bæjar­stjórnar, með sitt endurnýjaða umboð, að samþykkja útboðið endanlega. Fulltrúi Miðflokksins lýsir hins vegar undrun sinni á að afgreiða svo stórt mál í bæjarráði, daginn fyrir kosningar.“

Annar Sigurður, Sigurður P. Sigmundsson, fulltrúi Bæjar­listans, sagðist í bókun sinni mótmæla harðlega þeirri aðferð bæjar­stjórnar­meirihluta Sjálfstæðis­flokks og Framsóknar­flokks að taka til afgreiðslu í bæjarráði degi fyrir sveitar­stjórnar­kosningar tillögu um að farið verið strax í útboð á framkvæmdum við knatthús Hauka og reið­skemmu Sörla.Sagði hann ekki tímabært að taka þessa ákvörðun og ekki rétt stjórnsýslu­lega séð að binda hendur næstu bæjar­stjórnar með þessum hætti. Réttara væri að bæjar­stjórn taki málið til afgreiðslu og þannig myndu allir bæjar­fulltrúar fá tækifæri til að taka þátt í umræðum og afgreiðslu:„Þá skal á það bent að umhverfismat um byggingu knatt­hússins mun ekki liggja fyrir fyrr en í ágúst eða september 2022. Að samþykkja útboð með fyrirvara um niður­stöðu umhverfis­matsins er ekki góð stjórn­sýsla. Þá er nokkuð ljóst að ekki verður hægt að hefja jarðvinnu á starfs­svæði Sörla fyrr en í september 2022. Það er sem sagt ekkert sem kallar á það að bjóða þessi verkefni út núna. Það liggur því fyrir að ekki er búið að tryggja fjár­mögnun til þessara verkefna. Ef þessar fjár­festingar eru ekki innan fjárhags­áætlunar þarf viðauka við fjárhags­áætlun, sem bæjarráð þarf að vísa til bæjar­stjórnar til samþykktar,“ segir Sigurður og tekur fram að þessi gjörn­ingur útiloki tvo af fjórum minnihluta­flokkunum frá því að taka formlega afstöðu; tillagan er sett fram í bæjarráði þar sem ekki allir hafa atkvæðis­rétt.„Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem þessi meirihluti hagar sér svona í sambærilegum málum,“ segir Sigurður að lokum í bókun sinni. Hann samþykkti þó, en lét fylgja með að hann teldi aðgerðina dansa á línu þess löglega.

Adda María Jóhanns­dóttir, þáverandi fulltrúi Samfylkingarinnar, en hún gaf ekki kost á sér fyrir kosningarnar í gær, samþykkti auglýsingu útboðs, en sagði athyglis­vert að meirihluti Framsóknar­flokksins og Sjálfstæðis­flokksins ætli að enda kjör­tímabilið með sama hætti og þeir hófu það; með því að dansa á línu þess löglega við afgreiðslu mála er varða uppbyggingu íþrótta­mannvirkja.Adda segir í bókun sinni að fundarboð fyrir fundinn hafi verið sent út með minnsta löglega fyrirvara; á afar óhefðbundnum fundar­tíma; þegar umboð fráfar­andi fulltrúa er um það bil að renna út.„Með þessari tillögu er enn verið að gefa innihalds­laus loforð og óútfylltur tékki sendur áfram á nýja bæjar­stjórn. Umhverfismat vegna knatthúss á Ásvöllum hefur ekki verið lokið og fyrirvari gerður um það í útboðs­gögnum. Þá hefur heldur ekki fyllilega verið gert ráð fyrir fjár­mögnun þessara verkefna í gildandi fjárhags­áætlun og ekki verið gerður viðauki vegna útboðanna.Skv. sveitar­stjórnar­lögum er óheimilt að víkja frá fjárhags­áætlun nema sveitar­stjórn hafi áður samþykkt viðauka, sem geri grein fyrir breytingum á útgjöldum og skuld­bindingum,“ sagði Adda og benti á að fyrir um það bil ári síðan hafi bæjar­stjóri tekið fyrstu skóflu­stungu að knatthúsi Hauka og að formaður bæjarráðs hafi gert slíkt hið sama að reiðhöll Sörla. Ekkert hafi hins vegar gerst fyrr en nú þegar málið er sett á dagskrá á loka­metrum kosninga­baráttunnar:„Hér er um sýndar­tillögu að ræða til að slá ryki í augu kjósenda,“ sagði Adda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur