Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Framsókn hlutlausasti flokkurinn í Reykjavík: Kosningapróf sýnir flokkana með minnstar skoðanir

Þrír efstu frambjóðendur Framsóknarflokksins í Reykjavík, þau Einar Þorsteinsson, Árelía Eydís Guðmundsdóttir og Magnea Gná Jóhannsdóttir.
Þrír efstu fram­bjóð­endur Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík, þau Einar Þor­steins­son, Árelía Eydís Guð­munds­dóttir og Magnea Gná Jóhanns­dóttir. Mynd: framsoknrvk.is

Ef öllum spurningum er svarað hlutlaust og engin afstaða tekin til neinna mála í kosninga­prófi Stundarinnar fyrir sveitar­stjórnar­kosningar í Reykjavík kemur í ljós að Framsóknar­flokkurinn (B) á best við svar­andann. Fast á hæla Fram­sóknar fylgja Sjálfstæðis­flokkurinn (D) og Sósíalista­flokkurinn (J).

Stundin hefur búið til nokkuð ítarlegt og nákvæmt kosninga­próf með það fyrir augum að aðstoða óákveðna kjósendur við að staðsetja sig meðal hinna fjölmörgu flokka sem bjóða fram til sveitar­stjórnar­kosninga um gervallt landið nú um miðjan maí. Þar má velja hvert sveitar­félag fyrir sig og fást þá spurningar við hæfi fyrir það svæði. Þeir sem taka prófið merkja bæði við hversu sammála eða ósammála þeir eru ákveðnum stefnu­málum er varða þeirra sveitar­félag og svo mikilvægi málsins á skalanum 1 til 5. Einnig er hægt að merkja mál sem lykil­atriði, líkt og flokkarnir og fram­bjóðendurnir sjálfir hafa gert eftir eigin forgangs­röðun.

Blaða­maður Mannlífs tók kosninga­prófið fyrir Reykjavík og ákvað fyrir forvitnis sakir að svara öllum spurningum hlutlaust og hreyfa ekki við mikil­væginu, sem er sjálf­krafa stillt á 3, í miðið.

Út frá þeim svörum var það Framsóknar­flokkurinn (B) sem átti best við blaðamann, með 34 prósent samsvörun. Sjálfstæðis­flokkurinn (D) fylgdi fast á hæla Fram­sóknar með 33 prósent samsvörun og sama má segja um Sósíalista­flokkinn (J). Það verður að teljast athyglis­vert að sjá Sjálfstæðis­flokk og Sósíalista­flokk hlið við hlið út frá afstöðu­leysi svaranda og er það ef til vill í eina skiptið sem þessir flokkar eiga saman að sælda út frá nokkrum greiningum.

Mynd/skjá­skot: Stundin

Í fjórða sæti er Reykjavík, besta borgin (E) og Flokkur fólksins (F) í því fimmta.

Mynd/skjá­skot: Stundin

Sá fram­bjóðandi sem er efstur á blaði kjósanda sem er hlutlaus á öllum sviðum er Kjartan Jónsson, sem skipar 10. sæti á lista Pírata (P) í Reykjavík. Í öðru sæti þess kjósanda er Helgi Ö. Viggósson, sem skipar 5. sæti Ábyrgrar framtíðar (Y) og Geirdís Hanna Kristjáns­dóttir, sem situr í 6. sæti á lista Sósíalista­flokksins, í því þriðja.

Mynd/skjá­skot: Stundin

Jósteinn Þorgrímsson, sem er í 2. sæti fyrir Miðflokkinn (M) í Reykjavík, er í fjórða sæti og í því fimmta Anna Kristín Jens­dóttir, sem skiptar 9. sæti á lista Viðreisnar (C) í borginni.

Mynd/skjá­skot: Stundin
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur