Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Daníel lá á sjúkrahúsi í 12 vikur með 3. stigs bruna

Daníel Örn Sigurðsson er leigu­bílstjóri og spila­töframaður. Hann var ungur greindur með ADHD og einkenndust næstu ár og í raun áratugir af stjórn­leysi: Hann var rekinn úr skóla í 8. bekk, sendur á heimili úti á landi fyrir vandræða­fólk og hann fór út í neyslu 15 ára og braust inn á neyslu­tímabilinu. Daníel talar líka um slysið þegar hann brenndist illa þegar hann féll ofan í hver, veikindi sem og dauðann og sorgina en einn hálf­bróðir hans var einnig í neyslu og framdi síðar sjálfs­morð. Þá lést móðir hans í fyrra. Áföllin hafa haft áhrif á andlegu heilsuna.

Daníel sagði sögu sína í helgar­viðtali Mannlífs.

Árið er 1999 og Daníel er 16 ára. „Þetta var aðeins meira en unglinga­vinna. Þetta var fyrir vandræða­börn og var ég til dæmis að mála grindverk. Við fórum nokkur sem unnum saman einn daginn í ágúst í Reykjadal þar sem ég sá hver og stoppaði tvo metra frá honum. Svo sá ég hvernig lappirnar á mér byrjuðu að búa til fótspor ofan í jörðina og áður en ég vissi af var ég kominn hálfur ofan í jörðina í 200 gráðu heitan leir­hverinn.

Félagar mínir reyndu að koma mér til hjálpar en það brotnaði alltaf undan þeim þannig að þeir komust ekki að mér.“ Það tókst þó að lokum að draga Daníel upp úr hvernum og var hann kældur með vatni og síðan þurfti hann að ganga í um kortér að bílnum. Það var stoppað á leiðinni og handklæði bleytt.

„Þegar einn úr hópnum ætlaði að taka hand­klæðið af öðrum fætinum á mér þá gat hann það ekki af því að það var svo heitt. Leirinn var ennþá sjóðandi heitur og festist á fætinum eins og olía.“

Daníel lá á sjúkrahúsi í 12 vikur.

3. stigs bruni.

„Lappirnar voru svo illa farnar að það þurfti að taka húð af hægra lærinu til þess að setja á vinstri löppina af því að hún var svo ónýt. Lýta­læknirinn settist hjá mér einn daginn eftir að ég var búinn að vera í einangrun; hann var voðalega líbó gæi. Hann sagði að þetta væri mesta krafta­verk sem hann hefði séð og að allt í læknis­fræðinni segði að það væri ekki hægt að lifa svona af. 35% af líkama mínum brenndust og 20% af því var 3. stigs bruni.“

Hann talar um bláa dúnúlpu sem hann var í daginn sem hann brenndist. „Það var um 20 stiga hiti og ekki ský á himni en allir aðrir voru í stuttermabol. Ef ég hefði ekki verið í þessari dúnúlpu þá væri ég ekki að tala við þig í dag af því að hún hélt mér á floti.

Mamma fór á miðils­fund í nóvember sama ár. Þá sagði miðillinn „hérna er hrokkinhærð kona eða kona með permanent og hún segir að hún sé ánægð með að úlpan hafi komið að góðum notum“. Daníel segir að um sé að ræða látna ömmu sína sem hafði gefið honum úlpuna á sínum tíma. Úlpuna bláu.

það kom bíll á um 110 kíló­metra hraða og ók beint í hlið bíls­ins.

„Það er búið að segja mér margoft að það er einhver sem vaki yfir mér vegna þess að þetta er ekki í eina skiptið.

Við mamma áttum alltaf Þorláks­messu saman. Skötuna. Alltaf skata á Þorláks­messu. Þetta hefur verið um 1998. Hún var að skutla einhverjum heim og ég var bara heima með stjúppabba mínum. Svo þegar hún kom heim ætlaði hann að skutla mér til afa sem bjó í sama hverfi. Við fórum út og það var kalt en enginn snjór þannig séð. Í staðinn fyrir að taka bíl mömmu, sem var heitur þar sem hún var nýkomin á honum, þá tók hann sinn bíl sem var ískaldur. Það var ekið á bílinn á leiðinni en það kom bíll á um 110 kílómetra hraða og ók beint í hlið bílsins.

Ef við hefðum farið á bílnum hennar mömmu þá væri ég ekki að tala við þig í dag af því að í hinum bílnum sem við vorum í voru stálbitar í hurðinni þar sem ég var en ekki í bíl mömmu. Allt svona raðast þannig að ég slepp alltaf með ólíkindum fyrir slysni.“

Hér er hægt að lesa meira um ótrúlegt lífsskeið Daníels:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá