Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Prinsinn hugsar mikið um dauðann: „Ég er annaðhvort ofanjarðar eða neðan“

Mynd/Skjáskot. Ingvar Haukur Guðmundsson/RÚV.
Mynd/Skjáskot. Ingvar Haukur Guð­munds­son/RÚV.

„Náttúru­lega, sem Prins, þá er ég svona svolítið að dýrka hversdags­leikann og upphefja hversdags­leikann og setja hann í hátíðlegri búning,“ segir Svavar Pétur Eysteinsson. Hann dýrkar hversdags­leikann með hliðar­sjálfi sínu Prins Póló meðan hann glímir við ólæknandi krabba­mein á fjórða stigi. Hann hugsar mikið um dauðann en óttast hann ekki. Þetta segir hann í samtali við Kveik.

Rætur Svavars liggja í Breið­holtinu. Hann er mótaður af menningar­straumum níunda áratugarins og það kom ekki annað til greina en að feta listræna braut. Hann lauk námi í grafískri hönnun við Lista­háskólann en hefur hitt þjóðina í hjarta­stað með marg­verð­launaðri tónlist sinni og textum þar sem yrkis­efnið er nakinn hversdags­leikinn.

„Að ganga inn í góða sjoppu er bara eins og fara inn í gott gall­erí.“ Mynd/Skjáskot. Ingvar Haukur Guð­munds­son/RÚV.

Svavar og kona hans Berglind Häsler fluttu til Reykja­víkur síðasta sumar með börn sín þrjú frá Karls­stöðum í Berufirði. Þar höfðu þau gert upp býlið, sinnt ferða­þjónustu, matar­framleiðslu og blómlegri menningar­starfsemi í sjö ár.

Flutningurinn varð í kjölfar þess að Svavar greindist með krabba­mein í vélinda árið 2018. Meinið er óskurðtækt og er á fjórða og síðasta stigi, haldið niðri með reglu­legum lyfja­gjöfum.

Sú lífs­reynsla að greinast með ólæknandi krabba­mein hefur haft áhrif á bæði sköpunarþrá Svavars og lista­verkin úr smiðju hans.

„Það er svo mikið sjokk að fá svona greiningu að þú ert kannski bara fyrsta árið svolítið stjarfur,“ segir Svavar.

Svavar segist oft vera spurður á förnum vegi hvernig hann hafi það. Það sé auðvitað eðlileg spurning í ljósi þess að margir vita að hann glímir við erfitt krabba­mein.

„Stundum þreytist maður á að svara þessari spurningu. Því að fyrir mér er það bara að ég er annaðhvort ofanjarðar eða neðan. Og meðan ég stend hérna fyrir framan þig er ég augljós­lega ofanjarðar. Og það í rauninni bara nægir mér. Þó svo að auðvitað sé allt í lagi að ræða málin og fara í gegnum þau, taka stöðuna og svoleiðis, þá finnst mér miklu skemmtilegra að hitta fólk bara og fara beint í að ræða eitthvað hversdagslegt sko. Því það verður oft að einhverju yrkisefni fyrir Prinsinn.“

HÉR er hægt að hlusta á þáttinn í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur