Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Björguðu 18 eftirlegukindum úr afrétt: „Þetta er þolinmæðisvinna á þessum tíma náttúrulega“

Kindurnar sóttar á fjöll.
Kind­urnar sóttar á fjöll. Mynd: Kári Gunnarsson

Föstu­daginn síðastliðinn bjargaði Andrés bóndi í Tungu í Göngu­skörðum við annan mann, sautján kindum úr Vestur­fjöllum og koma þeim til byggða.

Kindurnar voru í ágætu ásig­komulagi þrátt fyrir fannfergi og frost. Nokkrum dögum áður hafði Andrés náð að staðsetja féð og nappa einu lambi og taka það heim á leið.

Það er

Feykir

sem sagði frá þessari fræknu björgun á fénu.

Á fimmtudaginn fyrir viku fór Andrés Helgason bóndi í fjalla­leiðangur á belta­hjóli sínu í þeirri von að hann næði að hnika fénu nær byggð. Það tókst honum eins síns liðs en hann kom fénu, sem hafðist við í vestanverður Stakk­fellinu til móts við Gvendar­staði, yfir í Kálfárdal. Daginn eftir bættist honum liðsauki er Birgir Hauksson bóndi í Valagerði hjálpaði honum að koma kindunum heim í Tungu.

Sáttir bændur

„Þetta gekk í raun og veru bara vel. Þetta er þolinmæðis­vinna á þessum tíma náttúru­lega en ég var svo heppinn að það var þarna ein ær sem að fór vel á undan og fór í slóðina á hjólinu. Þetta tók bara tíma,“ sagði Andrés í samtali við Feyki og tók fram að ærnar hafi verið í mjög góðu standi enda nógur hagi þar sem þær dvöldu. „Það er mjög gott lag á þeim, það var ekki vanda­málið. Það eina sem að var var að klaka­brynja var komin í þær sem var til trafala og þurfti að skera úr til að létta á þeim, sérstak­lega í einu lambi.“

Kind­urnar sóttar

Samkvæmt Feyki voru flestar kindurnar í hópnum úr Skaga­firðinum en ein tvílembd er frá Bakkakoti í Austur-Húna­vatnssýslu. Þá voru níu þeirra úr Hegranesinu, sex frá Ríp og tvílemba frá Svana­vatni. Aukreitis var tvílemba frá Halldórs­stöðum og lamb frá Glaumbæ. Sjálfur átti Andrés tvær ær. „Þannig að þetta kemur úr sitt hverri áttinni sagði Andrés og fullyrti að hann hefði ekki náð þessu ef hann hefði ekki haft fjór­hjólið sem er á beltum, líkt og björgunar­sveitir nota enda var færi þungt.

Ekki segist Andrés viss um það hvort fleira fé leynist í Vestur­fjöllum.„Ég veit ekki um neitt en það vantar enn og ekki fundist ennþá hvernig sem það er. Auðvitað vantar alltaf eitthvað sem aldrei kemur, getur farið ofan í eða orðið afvelta og alla vega. En þegar vantar samstæður, ær með lömbum, þá heldur maður frekar í vonina að það sé einhvers staðar og finnist.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp